Ferill 641. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1049  —  641. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um skaðabótarétt vegna samkeppnislagabrota.


     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir lagabreytingum til að styrkja réttarstöðu þolenda samkeppnislagabrota með innleiðingu á skaðabótatilskipun ESB (2014/104/ESB) og með því að auðvelda neytendum að sækja skaðabætur fyrir samkeppnislagabrot í samræmi við ábendingar Samkeppniseftirlitsins?
    Tilskipun 2014/104/ESB um skaðabætur vegna samkeppnisbrota (skaðabótatilskipunin) tók gildi í Evrópusambandinu árið 2014 og aðildarríkjum bar að vera búin að innleiða efnisreglur hennar í landsrétt þann 27. desember 2016. Lagastoð tilskipunarinnar eru samkeppnisreglur sáttmála ESB og málefni innri markaðarins. Sem slík fellur tilskipunin því undir gildissvið EES-samningsins. Af 7. gr. EES-samningsins leiðir að tilskipunina ber að taka upp í EES-samninginn og hana ber að innleiða að efni sínu í landsrétt aðildarríkja EES-samningsins. ESB-gerðir eru teknar upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar sem starfar skv. 92 –94 . gr. EES-samningsins. Af EES-samningnum leiðir að þjóðréttarleg skuldbinding til að innleiða ESB-gerð í landsrétt verður til við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um að taka tiltekna gerð upp í EES-samninginn.
    Skaðabótatilskipunin hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og því hvílir ekki á Íslandi þjóðréttarleg skuldbinding til að innleiða tilskipunina í landsrétt enn sem komið er. Í tilskipuninni felast flókin lagaleg álitamál tengd tveggja stoða kerfi EES-samningsins sem samningsaðilar þurfa að leysa í sameiningu. Unnið hefur verið að upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn af hálfu EES-EFTA ríkjanna á undanförnum árum og áfram verður unnið að því verkefni í samstarfi við framkvæmdastjórn ESB.
    Ekki stendur til að innleiða tilskipunina í landsrétt áður en hún verður tekin upp í EES-samninginn. Skaðabótatilskipunin er samræmd löggjöf ESB sem ber að innleiða með sambærilegum hætti í öllum ríkjum EES-svæðisins svo einsleitni verði tryggð og samræmd beiting löggjafarinnar undir eftirliti Eftirlitsstofnunar EFTA í EES-EFTA ríkjunum og framkvæmdastjórnar ESB í aðildarríkjum ESB. Til að tryggja að tjónþolar samkeppnislagabrota á Íslandi, sem geta bæði verið neytendur og fyrirtæki, eigi sama rétt og aðrir tjónþolar á Evrópska efnahagssvæðinu, og jafnframt að fyrirtæki starfi þá við sömu starfsskilyrði og samkeppnisaðilar þeirra annars staðar á EES-svæðinu, er mikilvægt að innleiðing tilskipunarinnar verði aðeins að undangengnu formlegu ferli í samræmi við ákvæði EES-samningsins. Þegar tilskipunin hefur verið tekin upp í EES-samninginn verður hún innleidd í landsrétt í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum.

     2.      Telur ráðherra unnt að ná markmiðum núgildandi samkeppnislöggjafar án þess að neytendur hafi virk lagaúrræði til að sækja skaðabætur?
    
Almennt hefur verið talið að framkvæmd samkeppnislaga standi á tveimur stoðum, annars vegar opinberu eftirliti sem felst í allsherjarréttarlegu eftirliti samkeppniseftirlita og hins vegar einkaréttarlegu eftirliti og framkvæmd sem felst m.a. í úrræðum einkaaðila til að sækja skaðabætur vegna tjóns sem þeir verða fyrir vegna samkeppnislagabrota. Sjá í þessu sambandi m.a. mgr. 29 og 30 í dómi EFTA-dómstólsins í máli E-6/17 . Nú þegar geta neytendur og fyrirtæki sem verða fyrir tjóni vegna samkeppnislagabrota sótt skaðabætur í samræmi við almennar reglur skaðabótaréttar. Í framkvæmd hafa þær reglur hins vegar ekki reynst nægilega skilvirkar í tilviki samkeppnislagabrota og er það ekki vandamál sem er bundið við Ísland enda beinlínis markmið skaðabótatilskipunarinnar að auðvelda tjónþolum að sækja skaðabætur vegna samkeppnislagabrota. Skilvirkari úrræði í þá veru en gildandi almennar reglur skaðabótaréttar munu styrkja framkvæmd samkeppnislaga og vinna að því að markmiðum þeirra megi ná.

     3.      Telur ráðherra rétt að koma til móts við hagsmuni neytenda þegar verðsamráð hefur verið staðfest þannig að gengið verði út frá því að slík háttsemi hafi í för með sér tjón fyrir neytendur í stað þess að þeir þurfi sjálfir að sanna samráð, orsakasamhengi og tjón sitt?
    Í skaðabótatilskipuninni felast reglur sem hafa þau áhrif að staða tjónþola samkeppnislagabrota verður sterkari en leiðir af almennum reglum. Skv. 1. mgr. 9. gr. tilskipunarinnar skal endanleg ákvörðun samkeppnisyfirvalda eða dómstóla hér á landi teljast sönnun fyrir því að brot hafi verið framið þegar höfðað er skaðabótamál vegna þeirrar tilteknu ákvörðunar. Skv. 2. mgr. 9. gr. felur endanleg ákvörðun samkeppnisyfirvalda eða dómstóla í öðru ríki í sér löglíkur á því að brot hafi verið framið þannig að sönnunarbyrði fyrir því að brot hafi ekki verið framið hvílir á þeim sem ákvörðun beindist að. Skv. 18. gr. tilskipunarinnar skal tryggt í landsrétti að reglur um sönnun á tjóni skuli ekki vera með þeim hætti að þær leiði til þess að réttur tjónþola til fullra skaðabóta sé í raun skertur vegna óhóflega íþyngjandi sönnunarkrafna. Í þessu samhengi felur tilskipunin í sér reglur um útreikning tjóns og skaðabóta til hagsbóta fyrir tjónþola.
    Þegar tilskipunin hefur verið tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar mun hún verða innleidd í landsrétt og af því leiðir að framangreindar reglur verða þá teknar upp í landsrétt að efni til.