Ferill 706. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1063  —  706. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um biðtíma eftir afplánun.

Frá Gísla Rafni Ólafssyni.


     1.      Hver hefur biðtími eftir afplánun þeirra verið sem dæmdir hafa verið til fangelsisvistar undanfarin fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir brotaflokkum.
     2.      Hversu margir sem dæmdir voru til fangelsisvistar undanfarin tíu ár hófu aldrei afplánun vegna fyrningar refsidóms? Svar óskast sundurliðað eftir brotaflokkum.
     3.      Hvernig er þeim sem dæmdir hafa verið til fangelsisvistar forgangsraðað á biðlista eftir afplánun?
     4.      Hvernig miðar vinnu við að stytta biðtíma þeirra sem dæmdir hafa verið til fangelsisvistar?


Skriflegt svar óskast.