Ferill 709. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1071 — 709. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um snjómokstur samkvæmt reglu um vor- og haustmokstur.
Frá Helga Héðinssyni.
1. Hver er lengd vega sem þar sem vetrarþjónustu er sinnt samkvæmt reglu um vor- og haustmokstur?
2. Hvaða vegir eru mokaðir samkvæmt þessari reglu?
3. Telur ráðherra ástæðu til þess að endurskoða þessa reglu vegna aukinnar umferðar um suma þessara vega eða vegna breytinga á veðráttu og snjóalögum?
Skriflegt svar óskast.