Ferill 558. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1072  —  558. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um styrkingu leikskólastigsins.


     1.      Ætlar ráðherra að bregðast við áskorun Sambands íslenskra sveitarfélaga um samvinnu vegna styrkingar leikskólastigsins? Ef svo er, hvernig?
    Mennta- og barnamálaráðherra bendir á að nú þegar er samvinna við Samband íslenskra sveitarfélaga um styrkingu leikskólastigsins sem staðið hefur yfir um nokkurt skeið og voru málefni leikskóla sérstaklega rædd á samráðsfundi ráðherra með Sambandi íslenskra sveitarfélaga 14. mars sl.
    Mennta- og barnamálaráðuneytið er í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga um framkvæmd þeirra tillagna sem fram koma í skýrslu starfshóps um styrkingu leikskólastigsins sem skilað var til mennta- og menningarmálaráðherra í maí 2021. Má þar m.a. nefna breytingar á reglugerð um starfsumhverfi leikskóla, breytingar á aðalnámskrá leikskóla og aðgerðir til að auka menntunarstig starfsfólks leikskóla.
    Auk þess hefur mennta- og barnamálaráðuneytið hrint af stað aðgerðum í samstarfi við Háskóla Íslands um starfsþróunarverkefni fyrir starfsfólk leikskóla, þ.m.t. sértæk námskeið í íslensku fyrir starfsfólk leikskóla af erlendum uppruna og fagháskólanám í leikskólafræðum fyrir starfsfólk leikskóla sem ekki hefur tilskilda menntun til inngöngu í háskóla. Fagháskólanámið er brú yfir í leikskólafræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands.

     2.      Tekur ráðherra undir þá sýn sambandsins að þörf sé á nýju uppleggi í umræðu um leikskólamál eigi leikskóli að vera raunhæfur möguleiki að loknu fæðingarorlofi með tilliti til ýmissa þátta er lúta t.d. að mönnun, lagaumhverfi, menntun, starfsþróun o.s.frv.?
    Ekki er alveg ljóst hvað átt er við hér þegar vísað er í sýn sambandsins um þörf á nýju uppleggi í umræðunni um leikskólamál. Mennta- og barnamálaráðherra er sammála því að þörf sé á áframhaldandi umræðu um leikskólamálin en bendir jafnframt á að umræðan sé nú þegar í gangi milli ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila leikskólastigsins sem unnu saman að gerð áðurnefndrar skýrslu um styrkingu leikskólastigsins.
    Í skýrslu starfshóps um styrkingu leikskólastigsins eru tillögur er lúta að mönnun, lagaumhverfi, menntun og starfsþróun. Í samvinnu ráðuneytisins við Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra hagsmunaaðila leikskólastigsins er unnið áfram með þær tillögur sem settar eru fram þar.

     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að leikskólinn verði viðurkenndur að fullu sem menntastofnun þannig að sveitarfélögin fái tekjustofn til að standa straum af kostnaði við rekstur leikskóla frá lokum fæðingarorlofs?
    Leikskólinn er samkvæmt 1. gr. laga um leikskóla, nr. 90/2008, fyrsta skólastigið í skólakerfinu. Því hefur lengi legið fyrir að leikskólinn er viðurkenndur sem menntastofnun. Mennta- og barnamálaráðherra hefur ekki aðkomu að samningum um tekjustofna sveitarfélaga.