Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1073  —  327. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um mat á bifreiðahlunnindum.


     1.      Hvers vegna gilda reiknireglur um hlunnindamat rafbíla aðeins ef bíllinn er hlaðinn á kostnað notanda en annars er það jafngilt hlunnindamati bíla sem nota jarðefnaeldsneyti, sbr. reiknivél á heimasíðu Skattsins?
    Almenna reglan er að bifreiðahlunnindi miðast við 28% af kaupverði bifreiðar eins og það er skilgreint í árlegu skattmati. Hlutfall þetta er lækkað um 6% af verði bifreiðarinnar ef starfsmaður greiðir sjálfur rekstrarkostnað bifreiðarinnar. Eins skal hlutfallið lækkað í 27% af kaupverði bifreiðarinnar ef um er að ræða bifreið sem notar rafmagn sem orkugjafa og umráðamaður hleður bifreiðina á eigin kostnað. Í reiknivél á vef Skattsins er einungis gerður greinarmunur á þessu tvennu, þ.e. annars vegar 28% sem er hin almenna regla hvaða orkugjafi sem nýttur er og hins vegar 27% ef um er að ræða rafmagnsbifreið sem umráðamaður hleður á eigin kostnað. Ástæðu þess að hlutfallið er einu prósentustigi lægra ef starfsmaður hleður bifreiðina á eigin kostnað má rekja til þess að þegar reglan tók fyrst gildi fyrir tekjuárið 2019 var hún byggð á athugun á rekstrarkostnaði. Af því leiðir að ef starfsmaður hleður bifreiðina á kostnað vinnuveitanda skal beita hinu almenna hlutfalli, 28%.

     2.      Hvers vegna er hlunnindamatið það sama á jafn verðmætum ökutækjum samkvæmt reiknivélinni hvort sem vinnuveitandi greiðir fyrir jarðefnaeldsneyti á bíl eða kaupir á hann rafmagn?
Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er almenna reglan tiltekið hlutfall af kaupverði bifreiðar. Reglan er einföld og gagnsæ. Reglan um að heimilt sé að lækka hlutfall bifreiðahlunninda ef um er að ræða rafmagnsbifreið sem umráðamaður hleður á eigin kostnað tók sem fyrr segir gildi fyrir tekjuárið 2019 og var þá byggð á athugun á rekstrar kostnaði. Ekki þótti á þeim tíma ástæða til að hagga við almennu útreikningsreglunni.

     3.      Kosta orkugjafarnir jarðefnaeldsneyti og rafmagn jafn mikið að meðaltali miðað við sambærilegan ársakstur?
    Á árinu 2018 var gerð athugun á kostnaði við rekstur rafmagnsbifreiða í samanburði við aðrar bifreiðar. Var niðurstaðan sú að heimila lækkun sem nemur 1%, þ.e. að miða við 27% af kaupverði bifreiðar í stað 28% ef um rafmagnsbifreið er að ræða og ef umráðamaður hleður bifreið á eigin kostnað. Heimild til lækkunar á hlutfalli vegna annarra bifreiða er 6% ef umráðamaður greiðir sjálfur rekstrarkostnað, þ.e. eldsneyti, smurningu, þrif og annan kostnað. Vera má að tímabært sé að fara yfir hlutföllin aftur en ljóst er að kostnaðarliðir eru ekki að öllu leyti þeir sömu eftir því hvaða orkugjafa bifreið nýtir því að ætla má að mun dýrara sé að reka bifreið sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti. Helgast það m.a. af því að jarðefnaeldsneyti kostar mun meira en rafmagn að meðaltali miðað við sambærilegan ársakstur, auk þess sem verð á jarðefnaeldsneyti sætir mun meiri sveiflum en verð á rafmagni. Samkvæmt einfaldri reiknivél sem má finna á netinu er til að mynda rafmagnskostnaður vinsæls bensínbíls 11 kr./km en rekstrarkostnaður sambærilegs rafmagnsbíls 3 kr./km á ári.

     4.      Er viðhaldskostnaður, afföll og annar rekstrarkostnaður rafbíla í hlunnindamatinu sá sami og þeirra sem nota jarðefnaeldsneyti?
    Þau hlutföll sem um ræðir eru byggð á athugun á rekstrarkostnaði á árunum 2016 og 2018 vegna skattmatsreglna á tekjuárunum 2017 og 2019. Eins og fram kemur í svari við 3. tölul. fyrirspurnarinnar kann að vera tímabært að endurskoða reglur um mat á bifreiðahlunnindum.

     5.      Hvernig breytist hlunnindamatið ef launþegi tekur aukinn þátt í öðrum rekstrarkostnaði bifreiðarinnar?
    Líkt og fram kemur í svari við 3. tölul. fyrirspurnarinnar lækkar hlunnindamatið um 6% ef launþegi greiðir sjálfur rekstrarkostnað bifreiðar sem hann hefur til umráða. Með rekstrarkostnaði í þessu sambandi er átt við eldsneytiskostnað, smurningu, þrif og þess háttar.
    Ef um er að ræða bifreið sem eingöngu notar rafmagn sem orkugjafa og starfsmaður hleður bifreiðina á eigin kostnað, en annar rekstrarkostnaður er greiddur af launagreiðanda, er heimilt að lækka hlutfall hlunninda þannig að miðað sé við 27% af verði bifreiðarinnar, eins og það er skilgreint að framan, í stað 28%. Ekki er kveðið á um frekari afslátt í reglum Skattsins um hlunnindamat ef um rafmagnsbíl er að ræða og starfsmaður stendur jafnframt straum af öðrum rekstrarkostnaði.

     6.      Hvers vegna er ekki sambærilegur möguleiki í reiknivélinni til að reikna hlunnindamat greiði launþeginn fyrir jarðefnaeldsneytið úr eigin vasa?
    Reiknivélin á heimasíðu Skattsins er eingöngu ætluð til viðmiðunar um meginatriðin í hlunnindamatinu. Nákvæmar reglur og leiðbeiningar um útreikning á bifreiðahlunnindum eru birtar í reglum um skattmat vegna tekna manna ár hvert og á heimasíðu Skattsins.

     7.      Stenst reiknivélin þær kröfur sem gerðar eru til þess að reikna hlunnindamat til peningaverðs?
    Eins og fram kemur í svari við 6. tölul. fyrirspurnarinnar er reiknivélin eingöngu ætluð til viðmiðunar. Launagreiðendur sem sjá launamönnum fyrir bifreið eiga að byggja nánari útreikninga á bifreiðahlunnindum í samræmi við þær reglur sem um slík hlunnindi gilda. Í langflestum tilvikum eru þær bifreiðar sem um ræðir nýjar eða nýlegar og í slíkum tilvikum uppfyllir reiknivélin þær kröfur sem gerðar eru til þess að reikna hlunnindamat til peningaverðs. Sé um að ræða bifreið sem komin er til ára sinna þarf að sækja viðmiðunarverð hennar í bifreiðaskrá fyrir það ár sem bifreiðin var tekin í notkun. Bifreiðaskrár eru birtar á heimasíðu Skattsins.