Ferill 543. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1074 — 543. mál.
Svar
menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um rekstur skáldahúsa.
1. Hvernig er aðkomu eða stuðningi ríkisins við rekstur skáldahúsa háttað? Er aðkoman/ stuðningurinn samræmdur?
Aðkoma ríkisins að starfsemi skáldahúsa er misjöfn eftir eignarhaldi og eðlis reksturs þeirra. Stuðningur við söfn, setur eða stofnanir tengdar einstökum skáldum er ekki samræmdur.
Gljúfrasteinn.
Gljúfrasteinn – hús skáldsins er safn í eigu íslenska ríkisins og fer ráðherra menningarmála með yfirstjórn þess.
Gljúfrasteinn starfar á grundvelli gjafabréfs sem undirritað var 21. apríl 2002 af Auði Sveinsdóttur, fyrir hönd fjölskyldu Halldórs Laxness, og Davíð Oddssyni þáverandi forsætisráðherra. Hlutverk safnsins er að sýna heimili Halldórs Laxness sem lifandi safn og standa vörð um ævistarf hans. Áhersla er lögð á að safna, varðveita, rannsaka og miðla þekkingu um verk Halldórs Laxness og ævi hans og miðla þeim fróðleik m.a. með sýningum og útgáfum. Safnið starfar samkvæmt safnalögum og öðrum þeim lögum sem starfsemi þess fellur undir.
Kostnaður af rekstri Gljúfrasteins greiðist úr ríkissjóði eftir því sem ákveðið er í fjárlögum. Sértekjur safnsins eru skilgreindar í fjárlögum og verða til vegna aðgangseyris, sölu minjagripa, sérstakra viðburða eða fjárframlaga.
Skriðuklaustur – Gunnar Gunnarsson.
Gunnarsstofnun varð til árið 1997 með reglum sem menntamálaráðherra setti um stofnunina. Samkvæmt þeim reglum, með áorðnum breytingum, starfaði Gunnarsstofnun allt til ársloka 2007 og tók mið af gjafabréfi Gunnars Gunnarssonar skálds og Franziscu Gunnarsson, konu hans, frá 11. desember 1948. Frá 1. janúar 2008 hefur stofnunin verið rekin sem sjálfseignarstofnun með skipulagsskrá.
Ráðuneyti menningarmála og Gunnarsstofnun hafa gert með sér samning um uppbyggingu og rekstur menningar- og fræðaseturs að Skriðuklaustri í Fljótsdal með það að markmiði að efla fræðastarfsemi á sviði hugvísinda og leggja rækt við bókmenntir með áherslu á ritverk og ævi Gunnars Gunnarssonar.
Snorrastofa í Reykholti.
Snorrastofa í Reykholti er safn um Snorra Sturluson og sögu Reykholts. Snorrastofa var stofnuð árið 1995 af menntamálaráðuneyti, héraðsnefnd Borgarfjarðarsýslu, héraðsnefnd Mýrasýslu, Reykholtsdalshreppi og Reykholtskirkju og starfar á grundvelli laga nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Ríkissjóður lagði fram 40% af stofnfé.
Árið 1996 var fyrsti samningurinn gerður milli menntamálaráðuneytis og Snorrastofu og hefur hann verið endurnýjaður reglubundið síðan.
Markmið samningsins er að gangast fyrir og styðja rannsóknir í Reykholti og kynningu á sögu Snorra Sturlusonar og Reykholts með skírskotun til arfsins frá Snorra.
Þórbergssetur.
Þórbergssetur er sjálfseignarstofnun með sérstakri skipulagsskrá. Stofnaðilar voru heimamenn á Hala í Suðursveit, Menningarmiðstöð Hornafjarðar og Sveitarfélagið Hornafjörður. Allmargir einstaklingar hafa gerst stofnaðilar og stutt við uppbyggingu Þórbergsseturs. Setrið hóf formlega starfsemi sína 1. júlí 2005 og starfar samkvæmt skipulagskrá frá 15. september 2003.
Árið 2006 undirrituðu forsætisráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, og Þórbergssetur samning um uppbyggingu Þórbergsseturs að Hala í Suðursveit. Með samningnum var ráðuneytið skuldbundið til að greiða 30 millj. kr. til uppbyggingar setursins með fjórum jöfnum greiðslum á árunum 2007–2010.
Ráðuneytið hefur veitt Þórbergssetri árlegan rekstrarstyrk með það að markmiði að efla rannsóknir og umfjöllun um ævi, störf og ritverk Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar frá Hala í Suðursveit.
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að ríkið komi að rekstri skáldahúsanna Nonnahúss, Sigurhæða og Davíðshúss á Akureyri? Ef svo er, hvernig? Ef svo er ekki, hvers vegna?
Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál á Akureyri hefur verið í gildi óslitið í rúm 20 ár og snýr að starfsemi Leikfélags Akureyrar, Listasafns Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands auk reksturs menningarhússins Hofs. Ekki hefur verið ágreiningur við Akureyrarbæ um þessa forgangsröðun. Heildarfjárhæð samningsins er 230 millj. kr. á ári.
Skáldahúsin á Akureyri, Davíðshús og Nonnahús, eru hluti af Minjasafninu á Akureyri sem er viðurkennt safn samkvæmt safnalögum, nr. 141/2011, og hefur á þeim grundvelli sótt um og hlotið styrki úr safnasjóði á síðastliðnum árum. Einnig hefur Minjasafnið getað sótt styrki í Uppbyggingarsjóð sóknaráætlunar landshluta.
Á fjárlögum yfirstandandi árs ákvað fjárlaganefnd að styrkja starfsemi menningarhússins í Sigurhæðum um 8,5 millj. kr.
Í ljósi þessa umfangsmikla stuðnings ríkissjóðs eru ekki uppi áform um að veita styrki til menningarlífs Akureyringa umfram þær stuðningsleiðir sem að ofan greinir.