Ferill 654. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1077  —  654. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ernu Bjarnadóttur um aðgerðir til að auka þátttöku kvenna í skimun fyrir leghálskrabbameini.



     1.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við því að dregið hefur úr þátttöku kvenna í skimun fyrir leghálskrabbameini eins og fram kemur í skýrslu embættis landlæknis frá mars 2022 um krabbameinsskimanir 2021?
    Mæting í skimun fyrir leghálskrabbameini og einnig fyrir brjóstakrabbameini hefur verið undir viðmiðum til fjölda ára og brýnt að bæta þar úr. Samkvæmt tölum frá embætti landlæknis dró enn úr þátttöku í báðum skimunum árið 2021 samanborið við árin á undan. Nærtækasta skýringin eru breytingar á fyrirkomulagi skimunar, sem hófst í ársbyrjun 2021, og einnig er líklegt að heimsfaraldur COVID-19 hafi haft áhrif.
    Unnið hefur verið að því að efla upplýsingamiðlun um breytt skipulag og mikilvægi leghálsskimunar með hvatningu til kvenna um að mæta í skimun. Í byrjun árs 2022 fól ráðuneytið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að efla kynningarmálin sérstaklega og í framhaldi stóðu Samhæfingarstöð krabbameinsskimana og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins fyrir vitundarvakningu og hvatningarátakinu Er komið að skimun hjá þér? um mikilvægi skimunar fyrir leghálskrabbameini.
    Hvatningarátakið hófst í febrúar með ljósmyndasýningu í Kringlunni í Reykjavík sem bar yfirskrift átaksins. Tólf konur úr íslensku samfélagi lögðu átakinu lið og deildu persónulegum sögum af leghálsskimun. Sögur allra kvennanna má lesa á vefsíðu Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana ásamt hvatningu til kvenna um að panta tíma þegar boð um skimun berst.
    Hvatningarátakið fólst einnig í auglýsingum á strætisvagnabiðskýlum á höfuðborgarsvæðinu, auglýsingum og myndböndum á samfélagsmiðlum, greinaskrifum, útvarpsviðtölum og hvatningarmyndböndum á skjám í biðrými heilsugæslustöðva. Ljósmyndirnar voru einnig sendar í dreifingu og veggspjöld hengd upp á heilsugæslustöðvum á landsbyggðinni.
    Væntingar um árangur hvatningarátaksins eru að þátttakan verði a.m.k. jafn góð og hún var áður en COVID-19 faraldurinn skall á en framkvæmdaraðilar munu vinna áfram að því að auka þátttökuna þangað til hún verður orðin ásættanleg samkvæmt viðmiðum.
    Áfram verður haldið með auglýsingar og hvatningar á samfélagsmiðlum jafnt og þétt og í undirbúningi er einnig hvatningarátak í tengslum við skimanir fyrir brjóstakrabbameini. Reynslan sýnir að stöðug hvatning er nauðsynleg til að auka þátttökuna en stutt hvatningarátök skila takmörkuðum árangri nema þeim sé fylgt eftir.
    Þá er einnig fyrirhugað að gera tæknilegar breytingar á skimunarkerfinu til að stuðla að aukinni þátttöku en þar er átt við að konur fái sendan fyrir fram bókaðan tíma í stað hvatningar um að bóka sér tíma. Rannsóknir sýna að slíkt auki þátttökuhlutfallið í skimun.
    Hlutfall kvenna af erlendum uppruna hefur aukist verulega á Íslandi á síðustu árum og vitað er að þátttaka er minni meðal erlendra kvenna en íslenskra. Unnið er að því að finna leiðir til að hvetja þessar konur sérstaklega. Þó má geta þess að hluti af hvatningarátakinu í ársbyrjun 2022 fólst í því að birta einnig sögur erlendra kvenna.
    Greinargóðar upplýsingar um skimun fyrir leghálskrabbameini, tímapantanir, hvar skimanir eru framkvæmdar o.fl. eru aðgengilegar hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana ásamt hvatningu til kvenna um að bóka tíma. Einnig er upplýsingar um leghálsskimun að finna á Heilsuveru, á vef embættis landlæknis og á vef Krabbameinsfélags Íslands.

     2.      Hefur ráðherra tekið til skoðunar skýrslu vinnuhóps á vegum Læknafélags Íslands frá mars 2022, um breytingar á skipulagi og framkvæmd leghálsskimunar, og er viðbragða að vænta við niðurstöðum hennar? Ef svo er, hvaða viðbragða?
    Ráðuneytinu hefur borist skýrsla vinnuhóps á vegum Læknafélags Íslands frá mars 2022 um breytingar á skipulagi og framkvæmd leghálsskimunar 2020–2021. Ráðuneytið hefur kynnt sér efni skýrslunnar sem er ekki þess eðlis að það kalli á viðbrögð ráðuneytisins.