Ferill 677. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1078 — 677. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um viðtöl við sérfræðilækna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hve mikið þurfti sjúklingur að greiða úr eigin vasa fyrir eitt einstakt viðtal við sérfræðilækni ár hvert frá 2018–2022, sundurliðað eftir sérgreinum lækna?
Heilbrigðisráðuneytið óskaði m.a. eftir upplýsingum vegna fyrirspurnarinnar frá Sjúkratryggingum Íslands. Rétt er að benda á að greiðsluþátttaka sjúklinga í kostnaði hjá sérgreinalæknum sem og fyrir aðra heilbrigðisþjónustu fer eftir stöðu einstaklinga í greiðsluþátttökukerfinu. Það kerfi sér til þess að einstaklingur greiði aldrei meira en ákveðna hámarksfjárhæð á mánuði fyrir heilbrigðisþjónustu.
Samningar við sérgreinalækna féllu úr gildi árið 2019 og hafa sérgreinalæknar innheimt aukagjöld af sínum skjólstæðingum sem SÍ fá ekki upplýsingar um. Þau gjöld eru því ekki í meðfylgjandi gögnum en bætast við þá fjárhæð sem einstaklingur greiðir samkvæmt greiðsluþátttökukerfi. Meðfylgjandi er tafla þar sem finna má upplýsingar um meðalkostnað einstaklinga við komu til sérgreinalækna árin 2018–2022.
Hámarksgreiðsla:
* Almennt gjald: 28.162 kr.
* Aldraðir, öryrkjar og einstaklingar á endurhæfingarlífeyri: 18.775 kr.
* Börn 2–18 ára: 18.775 kr.
* Börn yngri en 2ja ára: ekkert gjald.
* Börn og ungmenni, 2–19 ára, með umönnunarmat: Ekkert gjald.
Börn innan sömu fjölskyldu teljast sem eitt barn í greiðsluþátttökukerfinu.
Börn yngri en 18 ára fá þjónustuna gjaldfrjálst ef þau eru með tilvísun, annars eru greidd 30% af gjaldskrá sem telur inn í greiðsluþátttökukerfið.
Mánaðarleg greiðsla eftir að hámarksgreiðslu er náð:
* Almennt gjald: 4.694 kr.
* Aldraðir, öryrkjar og einstaklingar á endurhæfingarlífeyri: 3.129 kr.
* Börn yngri en 18 ára: 3.129 kr.
| Meðalkostnaður einstaklings á komu. | |||||
| Samningur | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 |
| Augnlæknar | 5.078 | 5.385 | 5.891 | 5.820 | 6.284 |
| Augnskurðlækningar | 7.179 | 7.430 | 7.767 | 8.453 | 7.124 |
| Barnageðlæknar | 1.144 | 971 | 985 | 935 | 909 |
| Barnahjartalæknar | 2.773 | 2.603 | 2.726 | 2.514 | 3.096 |
| Barnalæknar | 949 | 802 | 681 | 679 | 728 |
| Bæklunarlæknar | 4.234 | 4.514 | 4.674 | 4.465 | 4.773 |
| Endurhæfingarlæknar | 4.378 | 2.843 | 2.597 | 2.362 | 3.309 |
| Geðlæknar | 4.418 | 4.803 | 5.090 | 5.241 | 5.683 |
| Háls-, nef- og eyrnalæknar | 3.488 | 3.685 | 3.947 | 3.914 | 3.726 |
| Húðlæknar | 5.201 | 5.454 | 5.757 | 5.692 | 5.992 |
| Krabbameinslæknar | 3.809 | 4.023 | 3.529 | 2.972 | 2.198 |
| Kvensjúkdómalæknar | 8.241 | 8.468 | 9.024 | 9.063 | 9.268 |
| Lyf-blóðfræðingar | 4.902 | 5.208 | 5.659 | 5.417 | 5.769 |
| Lyf-efnaskiptalæknar | 5.361 | 5.817 | 5.923 | 5.628 | 5.908 |
| Lyf-gigtarlæknar | 4.333 | 4.746 | 5.010 | 4.967 | 5.312 |
| Lyf-hjartalæknar | 5.743 | 6.122 | 6.473 | 6.322 | 6.547 |
| Lyf-lungnalæknar | 4.998 | 5.313 | 5.466 | 5.430 | 6.216 |
| Lyf-meltingarlæknar/speglanir | 7.882 | 8.772 | 9.032 | 9.446 | 10.294 |
| Lyf-nýrnalæknar | 4.572 | 5.509 | 6.246 | 5.617 | 6.882 |
| Lyf-ofnæmis- og ónæmislæknar | 9.060 | 9.404 | 10.113 | 10.603 | 10.795 |
| Lýtalæknar | 6.146 | 6.250 | 6.631 | 6.817 | 7.349 |
| Sérfræðingar í heimilislækningum | 4.256 | 5.814 | 5.696 | 6.916 | 6.998 |
| Skurðlæknar | 5.984 | 6.394 | 6.784 | 6.800 | 7.467 |
| Svæfingarlæknar* | 258 | 146 | 140 | 194 | 115 |
| Taugalæknar | 4.280 | 4.958 | 5.070 | 5.101 | 5.503 |
| Þvagfæralæknar | 5.780 | 6.412 | 6.751 | 6.896 | 7.320 |
| Öldrunarlæknar | 3.452 | 4.333 | 4.936 | 5.237 | 5.362 |
| Meðaltal | 4.737 | 5.044 | 5.281 | 5.315 | 5.590 |
| *Þegar einstaklingur fer í aðgerð þá greiðir hann skurðlækninum fyrst og svo svæfingarlækninum, því lendir nánast allur kostnaður vegna svæfingarlæknisins á SÍ. | |||||