Ferill 657. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1080 — 657. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ernu Bjarnadóttur um biðlista eftir ADHD- greiningu.
1. Hversu margir eru á biðlista hjá nýju ADHD-geðheilsuteymi heilsugæslunnar?
Í svari við fyrirspurninni er gert ráð fyrir að hér sé átt við nýtt ADHD-geðheilsuteymi fullorðinna sem starfar á landsvísu en er staðsett hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á biðlistanum eru nú 1.187 einstaklingar í bið eftir fullu greiningarferli.
2. Hversu langur er biðtíminn eftir greiningu á ADHD?
Stutt er síðan teymið hóf starfsemi sína þannig að komin var uppsöfnuð þörf fyrir þjónustuna. Biðtíminn eftir greiningu hjá teyminu er núna 2,8 ár.
3. Hvað er áætlað að taka langan tíma í að vinna upp þessa biðlista?
Miðað við núverandi mönnun geðheilsuteymisins getur teymið lokið við fullt greiningarferli hjá allt að 30 einstaklingum á mánuði. Miðað við stöðuna eins og hún er núna er ekki hægt að segja til um með fullri vissu hversu langan tíma tekur að vinna upp biðlistann.
4. Hver er ásættanlegur biðtími eftir viðeigandi meðferð við ADHD að mati ráðherra?
Embætti landlæknis hefur sett ákveðin viðmiðunarmörk um hvað getur talist ásættanleg bið eftir heilbrigðisþjónustu. Viðmiðunarmörk um bið eftir skoðun hjá sérfræðingi teljast 30 dagar og frá greiningu vanda er miðað við að ekki þurfi að bíða lengur en 90 daga eftir aðgerð eða meðferð hjá sérfræðingi. Í öllum tilvikum er átt við þann tíma sem líður frá því að sjúklingur hefur samband við veitendur heilbrigðisþjónustu út af einkennum eða frá því að þörf fyrir viðkomandi þjónustu er greind. Þau viðmiðunarmörk eru í samræmi við þau markmið sem sett eru í nágrannalöndum okkar. Þessi tímamörk eiga ekki við þegar um bráðaþjónustu er að ræða.