Ferill 548. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1082 — 548. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um skipan í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig skiptist búseta þeirra sem skipuð hafa verið í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h. á vegum ráðuneytisins og stofnana þess eftir sveitarfélögum?
Í eftirfarandi töflu má sjá hvernig búseta þeirra sem skipuð hafa verið í stjórnir, starfshópa, nefndir og ráð á vegum ráðuneytisins skiptist. Heildarfjöldi skipaðra aðila er 297 og búseta þeirra skiptist á milli 35 sveitarfélaga. Svarið miðast við þær stjórnir, starfshópa, nefndir og ráð sem eru starfandi á þeim tíma sem fyrirspurnin er sett fram. Ekki eru sérstakar lagaheimildir fyrir því að undirstofnanir innviðaráðuneytis hafi skipunarvald í nefndir, starfshópa eða ráð. Svarið byggist því einungis á gögnum um skipanir á vegum ráðuneytisins.
| Sveitarfélag | Fjöldi |
| Reykjavíkurborg | 137 |
| Kópavogsbær | 36 |
| Garðabær | 22 |
| Hafnarfjarðarkaupstaður | 18 |
| Seltjarnarnesbær | 9 |
| Reykjanesbær | 9 |
| Mosfellsbær | 6 |
| Sveitarfélagið Árborg | 6 |
| Akureyrarbær | 5 |
| Borgarbyggð | 5 |
| Grindavíkurbær | 3 |
| Sveitarfélagið Skagafjörður | 3 |
| Hveragerðisbær | 3 |
| Suðurnesjabær | 3 |
| Vesturbyggð | 3 |
| Múlaþing | 3 |
| Fjarðabyggð | 3 |
| Akraneskaupstaður | 2 |
| Ísafjarðarbær | 2 |
| Sveitarfélagið Ölfus | 2 |
| Rangárþing eystra | 2 |
| Húnaþing vestra | 2 |
| Sveitarfélagið Vogar | 1 |
| Snæfellsbær | 1 |
| Blönduósbær | 1 |
| Sveitarfélagið Skagaströnd | 1 |
| Fjallabyggð | 1 |
| Grýtubakkahreppur | 1 |
| Dalvíkurbyggð | 1 |
| Norðurþing | 1 |
| Skútustaðahreppur | 1 |
| Vopnafjarðarhreppur | 1 |
| Rangárþing ytra | 1 |
| Mýrdalshreppur | 1 |
| Vestmannaeyjabær | 1 |