Ferill 215. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1084 — 215. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Kristrúnu Frostadóttur um verkefnið „Allir vinna“.
1. Hvernig skiptust endurgreiðsluupphæðir vegna verkefnisins „Allir vinna“ árin 2020 og 2021? Óskað er eftir upphæðum og sundurliðun eftir sveitarfélögum, lögaðilum og einstaklingum. Óskað er eftir sundurliðun eftir tekjutíundum einstaklinga sem nýttu sér úrræðið.
Hér er litið svo á að með verkefninu „Allir vinna“ sé átt við þær auknu endurgreiðslur virðisaukaskatts (VSK) sem lögfestar voru í aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við efnahagsástandinu af völdum heimsfaraldurs kórónuveirunnar en þær tóku gildi tímabundið frá 1. mars 2020. Í upphafi er rétt að fara yfir í hverju þessar endurgreiðslur fólust. Annars vegar var endurgreiðsluhlutfall VSK af vinnulið framkvæmda við íbúðarhúsnæði sem hafði verið 60% hækkað í 100%. Hins vegar voru heimildir til 100% endurgreiðslu á VSK af vinnulið útvíkkaðar til fleiri tegunda framkvæmda og til fleiri aðila. Nánar tiltekið fellur eftirfarandi vinna undir úrræðið „Allir vinna“ árin 2020 og 2021:
1. Nýbygging, endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis.
2. Nýbygging, endurbætur og viðhald frístundahúsnæðis.
3. Hönnun og eftirlit með framkvæmdum við íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði og mannvirki í eigu tiltekinna aðila sem starfa til almannaheilla.
4. Heimilishjálp og regluleg umhirða íbúðarhúsnæðis.
5. Viðgerðir, málning og réttingar fólksbifreiða.
6. Nýbygging, endurbætur og viðhald á húsnæði, öðru en íbúðarhúsnæði, í eigu sveitarfélaga eða stofnana og félaga alfarið í eigu þeirra.
7. Nýbygging, endurbætur og viðhald á mannvirkjum í eigu tiltekinna aðila sem starfa til almannaheilla.
Í 1. lið felur úrræðið í sér hækkun á endurgreiðslum úr 60% í 100%, þ.e. um 40%, en í öðrum liðum er um að ræða útvíkkun á úrræðinu með 100% endurgreiðslum.
Tafla 1 sýnir skiptingu endurgreiðslufjárhæða til einstaklinga, sveitarfélaga og annarra lögaðila. Lögaðilar, aðrir en sveitarfélög, eru jafnframt flokkaðir nánar í þrjá flokka til nánari glöggvunar. Í tilviki íbúðarhúsnæðis er bæði sýnd endurgreiðslan í heild í dálki (a) og 40% hennar í dálki (b), til áréttingar á því að einungis 40% viðbótin fellur undir „Allir vinna“. Dálkur (b) samsvarar 1. lið listans hér að framan. Dálkur (c) samsvarar 2.–7. lið listans. Nánari skýringar á forsendum má sjá í neðanmálsgrein töflunnar.
Sundurliðun eftir tekjutíundum á endurgreiðslum til einstaklinga sem nýttu sér úrræðið er sýnd í töflu 2. Rétt er að taka skýrt fram að endurgreiðslur vegna íbúðarhúsnæðis eru í mörgum tilfellum ekki greiddar beint til einstaklinga heldur til húsfélaga. Gögn um þá einstaklinga sem eiga aðild að húsfélögum sem fá slíka endurgreiðslu eru ekki í gagnagrunni Skattsins um endurgreiðslurnar. Af þeim sökum gefur tekjutíundadreifingin aðeins mynd af dreifingu þeirra endurgreiðslna sem einstaklingar sóttu sjálfir um. Hún nær ekki til endurgreiðslna sem nýttust einstaklingum vegna íbúðarhúsnæðis í eigu þeirra í þeim tilvikum þegar húsfélög standa fyrir viðkomandi framkvæmdum í fjölbýlishúsum. Samkvæmt gögnum Skattsins námu endurgreiðslur til húsfélaga vegna endurbóta og viðhalds íbúðarhúsnæðis 1.639 millj. kr. árið 2020. Þar sem það samsvarar um tveimur þriðju hlutum af greiðslunum sem heimfærðar eru á einstaklinga er ljóst að dreifing þeirra eftir tekjutíundum sem hér er sett fram gefur að öllum líkindum ekki rétta mynd.
Í tekjutíundagreiningunni í töflu 2 er sýnd heildarfjárhæð endurgreiðslna sem greiddar voru beint til einstaklinga sem nýttu sér úrræðið. Það eru allar sömu endurgreiðslur og í töflu 1 en í tilviki íbúðarhúsnæðis er sýnd öll endurgreiðslan en ekki aðeins 40% viðbótin. Þess vegna eru fjárhæðir mun hærri í töflu 2 en endurgreiðslur undir merkjum „Allir vinna“ í töflu 1.
Tekjutíundaskiptingin er byggð á tekjum ársins 2020. Sýndar eru endurgreiðslur VSK vegna framkvæmda á tímabilinu 1. mars 2020 til 31. desember 2021, fyrir hvort ár um sig og samtals, fyrir hverja tekjutíund.
Gögnin ná til 312.521 framtalsskylds einstaklings. Þar af eru 168.017 einhleypir og 144.504 samskattaðir með öðrum einstaklingi, alls 240.269 fjölskyldur.
Þar sem endurgreiðslur VSK sem um ræðir taka til íbúðarhúsnæðis og bíla er tíundagreiningin miðuð við tekjur fjölskyldu fremur en einstaklings og er hún sýnd í töflu 2 (a). Viðbótarupplýsingar um hóp einhleypra og hóp samskattaðra hvorn um sig eru gefnar í töflu 2 (b).
Í töflu 2 (a) er grunneiningin fjölskylda, hvort sem fjölskyldan telur einn fullorðinn einstakling eða tvo fullorðna, samskattaða einstaklinga. Hver gagnaeining er því ýmist einn eða tveir einstaklingar.
Í töflu 2 (b) er fjölskyldum skipt í tvo hópa eftir því hvort fjölskyldan telur einn fullorðinn eða tvo fullorðna, samskattaða einstaklinga. Í neðri hluta töflu 2 (b) er hver gagnaeining tveir einstaklingar.
Hluti þeirra einstaklinga sem fékk endurgreiðslu VSK er ekki framtalsskyldur hér á landi og það skýrir að heildarfjárhæð endurgreiðslna til einstaklinga er lítillega lægri í töflu 2 en í töflu 1. Mismunurinn er sýndur sérstaklega fyrir neðan samtölu tekjutíundanna.
Nánari skýringar á forsendum má sjá í neðanmálsgrein töflu 2.
2. Hefur farið fram mat á áhrifum verkefnisins á innheimtu tekjuskatts? Ef svo er, hverju hefur það skilað?
Mat á áhrifum hins tímabundna verkefnis „Allir vinna“ sem tók gildi 1. mars 2020 á innheimtu tekjuskatts hefur ekki farið fram með kerfisbundnum hætti. Hliðstætt verkefni, þó með þrengra gildissviði, gilti á árunum 2009–2014 og er líklegt að bæði þá og nú hafi verkefnið haft þau áhrif að auka tekjur ríkisins af tekjuskatti. Það leiðir af því að fyrirkomulagið felur í sér fjárhagslegan hvata sem ætti að auka líkur á því að vinna við slík verk sé talin fram til skatts, auk þess að upplýsingar um einstök verkefni og verksala sem fylgja umsóknum um endurgreiðslu virðisaukaskatts geta almennt komið skattyfirvöldum að gagni við skatteftirlit. Tekjuábatinn er þó óreglulegur og getur komið fram á löngum tíma eftir að sótt er um endurgreiðslu. Nokkuð langan tíma myndi því taka að meta áhrifin með samræmdri aðferðafræði á grundvelli upplýsinga um einstök mál.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.