Ferill 545. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1087 — 545. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um vetrarþjónustu á Dettifossvegi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Stendur til að koma á vetrarþjónustu á Dettifossvegi? Ef svo er, hvenær?
Í nóvember 2021 var nýr vegur að Dettifossi (vegur 862) fullgerður. Syðri hluti Dettifossvegar var fullbúinn árið 2012. Á þeim hluta hefur verið veitt vetrarþjónusta í samræmi við svokallaða G-reglu frá og með haustinu 2013. Sú þjónusta er veitt samkvæmt snjómokstursreglum Vegagerðarinnar sem taka m.a. mið af umferðarþunga og aðstæðum á hverjum stað.
Samkvæmt G-reglu er heimilt að moka tvo daga í viku haust og vor á meðan snjólétt er. Hausttímabil er skilgreint til 1. nóvember og vortímabil frá 20. mars. Ástandið er skilgreint „snjólétt“ þegar um er að ræða lítið snjómagn og færðarástand telst hvergi ófært, þungfært eða þæfingur á viðkomandi leið og þegar þjónustuaðgerðin felst eingöngu í hreinsun akbrautar með snjómokstursbíl.
Heimilt er að moka vegi sem falla undir G-reglu einu sinni í viku fram til 5. janúar á kostnað Vegagerðarinnar og eftir það einu sinni í viku að beiðni og gegn helmingagreiðslu frá sveitarfélagi þannig að fært sé fyrir fjórhjóladrifin ökutæki og/eða þegar kostnaður við þann mokstur er að jafnaði ekki meiri en þrefaldur sá kostnaður sem til fellur þegar leiðin telst snjólétt. Vegagerðin metur hvort viðkomandi mokstur sé raunhæfur með tilliti til notagildis og kostnaðar.
Er Dettifossvegur var fullgerður var G-reglan, sem áður gilti á þeim hluta vegarins sem lokið var við árið 2012, látin gilda á honum öllum (frá Hringvegi að Norðausturvegi 85). Í vetur hefur verið mokað frá Hringvegi að Norðausturvegi og er áætlaður kostnaður 5,5 millj.kr.