Ferill 712. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Prentað upp.
Þingskjal 1092 — 712. mál.
Leiðréttur texti.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um aðgengi að Naloxone-nefúða.
Frá Söru Elísu Þórðardóttur.
1. Telur ráðherra núverandi reglur um aðgengi að Naloxone-nefúðanum fullnægjandi svo að lyfið fái þjónað tilgangi sínum?
2. Hversu margir einstaklingar hafi fengið lyfið uppáskrifað á eigin kennitölu? Af þeim, hversu margir sóttu um greiðsluþátttöku hjá Sjúkratryggingum Íslands?
3. Hver er afstaða ráðherra gagnvart því að styrkja fjárhagslega skaðaminnkunarúrræði sem bjóða aðgengi að Naloxone svo að hægt sé að tryggja jaðarsettum einstaklingum sem glíma við ópíóíðavanda og fólki í þeirra nærumhverfi greiðan aðgang að Naloxone-nefúða þeim að kostnaðarlausu, líkt og er annars staðar á Norðurlöndum?
4. Hver er afstaða ráðherra gagnvart því að gera Naloxone-nefúða að lausasölulyfi og veita lyfjafræðingum heimild til að afhenda lyfið með tilheyrandi fræðslu um notkun þess, með það að markmiði að draga úr hættu á ofskömmtun ópíóða, þannig að notendur, aðstandendur, rekstraraðilar í skemmtanalífinu, þjónustuúrræði og aðrir sem þurfa geti nálgast það?
Skriflegt svar óskast.