Ferill 462. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Nr. 15/152.

Þingskjal 1095  —  462. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 215/2021 frá 9. júlí 2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2115 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun 2014/65/ESB og reglugerðum (ESB) nr. 596/2014 og (ESB) 2017/1129 að því er varðar að stuðla að notkun vaxtarmarkaða lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Samþykkt á Alþingi 30. maí 2022.