Ferill 604. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1104  —  604. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Hildu Jönu Gísladóttur um námsefnisgerð fyrir framhaldsskóla.


     1.      Hversu mikið fjármagn hefur verið veitt í námsefnisgerð fyrir framhaldsskóla á árunum 2016–2021, annars vegar fyrir stúdentsbrautir og hins vegar fyrir iðn- og starfsnám?
    Þróunarsjóður námsgagna veitir styrki til námsefnisgerðar fyrir framhaldsskóla. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um námsgögn, nr. 71/2007, og reglugerð um þróunarsjóð námsgagna, nr. 1268/2007. Samkvæmt upplýsingum frá Rannís, sem fer með umsýslu sjóðsins, var fjármagn sem veitt var í námsefnisgerð fyrir framhaldsskóla á árunum 2016–2021, annars vegar fyrir stúdentsbrautir og hins vegar fyrir iðn- og starfsnám, eftirfarandi:

Ár Stúdentsbrautir Iðn- og starfsnám
2021 18.679.000 kr. 6.000.000 kr.
2020 9.500.000 kr. 8.000.000 kr.
2019 5.450.000 kr. 8.000.000 kr.
2018 22.762.000 kr. 4.000.000 kr.
2017 5.099.000 kr. 1.400.000 kr.
2016 17.162.000 kr. 6.850.000 kr.

    Árið 2019 veitti mennta- og menningarmálaráðuneyti styrk að upphæð 5.000.000 kr. til tilraunaútgáfu á námsefni á vefbókarformi fyrir iðn- og verknám.

     2.      Hversu mikið fjármagn hefur verið veitt í námsefnisgerð fyrir framhaldsskóla á árunum 2016–2021 fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku?
    Fjármagn sem veitt var í námsefnisgerð fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku í framhaldsskólum á árunum 2016–2021 var eftirfarandi samkvæmt upplýsingum frá Rannís:

Ár Nemendur með annað móðurmál en íslensku
2021 8.000.000 kr.
2020 900.000 kr.
2019 0 kr.
2018 1.960.000 kr.
2017 1.750.000 kr.
2016 0 kr.