Ferill 646. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1105  —  646. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022.


     1.      Með hvaða rökum hafnaði ráðherra sjónarmiðum og viðvörunarorðum menningar- og viðskiptaráðherra, sem sú síðarnefnda kom á framfæri í aðdraganda útboðs á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars sl., um að hún væri mótfallin aðferðafræðinni við söluna og hún hefði ekki viljað að bréf yrðu seld til valins hóps fjárfesta? Með hvaða rökum féllst ráðherra á þá aðferð sem fjármála- og efnahagsráðherra lagði til um fyrirkomulag sölunnar?
    Ráðherrar fara með og bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum hver á sínu málefnasviði, sbr. 14. gr. stjórnarskrárinnar. Ríkisstjórnin fer þannig ekki með beinar valdheimildir heldur þjónar hún fyrst og fremst hlutverki sem stjórnmálalegur samráðsvettvangur þeirra ráðherra sem mynda ríkisstjórn auk þess sem hún er vettvangur þverfaglegrar umfjöllunar um margvísleg mál. Ríkisstjórnin er með öðrum orðum ekki stjórnsýslunefnd eða fjölskipað stjórnvald í þeim skilningi að hún tekur ekki stjórnvaldsákvarðanir. Um sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022 fór eftir lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, nr. 155/2012, sbr. og lög um Bankasýslu ríkisins, nr. 88/2009. Stjórnarmálefnin heyra undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. a- og h-lið 3. tölul. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, sbr. og 4. gr. forsetaúrskurðar nr. 7/2006.
    Í samræmi við framangreint gerði fjármála- og efnahagsráðherra grein fyrir því í minnisblaði á fundi ráðherranefndar um efnahagsmál 4. febrúar 2022 og í minnisblaði á fundi ríkisstjórnar 7. febrúar 2022 að Bankasýslan hefði sent honum tillögu 20. janúar 2022 um að hefja framhald á sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka. Í minnisblaðinu var m.a. farið yfir þrjár þekktar söluaðferðir sem Bankasýslan hafði reifað við ráðherrann og til greina komu. Þar á meðal var aðferð um sölu með tilboðsfyrirkomulagi sem Bankasýslan mælti með og voru færð fyrir því ákveðin rök. Þá kom fram að fjármála- og efnahagsráðherra hygðist fallast á tillögu Bankasýslunnar og hefja söluferlið sem leiða myndi til ákvörðunar hans um framhald sölumeðferðar á öllum eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka, en fyrsti hlutur ríkisins var seldur með frumútboði til almennings í júní 2021. Fjármála- og efnahagsráðherra gerði í framhaldinu grein fyrir því í minnisblaði á fundi ríkisstjórnar 18. mars 2022 að hann hefði ákveðið að heimila Bankasýslu ríkisins að hefja framhald sölumeðferðar á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka í samræmi við fyrirliggjandi greinargerð sem send hefði verið til fjárlaganefndar, efnahags- og viðskiptanefndar og Seðlabanka Íslands til umsagnar. Áfram yrði horft til þess að þessi áfangi sölumeðferðar færi fram með tilboðsfyrirkomulaginu og voru næstu skref rakin í minnisblaðinu. Eftir lokun markaðar sama dag sendi fjármála- og efnahagsráðherra bréf til Bankasýslu ríkisins þar sem tilkynnt var að ráðherrann hefði tekið ákvörðun um að hefja skyldi framhald sölumeðferðar eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka í samræmi við áðurnefnda greinargerð og meginmarkmið eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki, svo sem framast væri kostur, sem og nánar tilgreind sjónarmið sem rakin voru í bréfinu.
    Í umræðu um söluna á fundum ráðherranefndar og ríkisstjórnar var m.a. farið yfir kosti og galla þeirra söluaðferða sem Bankasýslan hafði reifað og til greina komu. Þar komu m.a. fram sjónarmið um mismikið gagnsæi aðferðanna og nauðsyn þess að tryggja eins mikið gagnsæi um ferlið og endanlegt fyrirkomulag eins og unnt væri, og hvort aðrar leiðir, m.a. frumútboðsleið, kynnu að vera heppilegri í þessum hluta sölunnar. Ekki var óskað eftir því að færa til bókar slíka fyrirvara, meinta andstöðu eða aðra afstöðu ráðherra í ríkisstjórn, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, og 2. mgr. 8. gr. reglna um starfshætti ríkisstjórnar, nr. 791/2018. Var það því niðurstaða pólitísks samráðs um málið í ríkisstjórn að fjármála- og efnahagsráðherra nyti stuðnings í því að fara þá leið sem farin var við framhald sölumeðferðar á hlutum í Íslandsbanka en á þeirri ákvörðun ber hann stjórnskipulega ábyrgð. Fyrir þeirri ákvörðun voru færð mjög eindregin rök af hálfu Bankasýslu ríkisins og sölufyrirkomulaginu gerð ítarleg skil í greinargerð fjármála- og efnahagsráðherra sem komið var á framfæri við fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í febrúar 2022.

     2.      Telur ráðherra að menningar- og viðskiptaráðherra kunni að hafa gerst brotleg við siðareglur ráðherra með því að upplýsa ekki um þessi sjónarmið fyrr en eftir að útboð hafði farið fram, en siðareglurnar mæla fyrir um að ráðherra leyni ekki upplýsingum sem varða almannahag nema lög bjóði eða almannahagsmunir krefjist þess?
    Samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, samþykkir ríkisstjórn siðareglur fyrir ráðherra. Forsætisráðherra undirritar siðareglurnar fyrir hönd ríkisstjórnar og birtir þær en við undirbúning þeirra skal leita eftir tillögum frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Þá er kveðið á um það í 1. mgr. 25. gr. sömu laga að forsætisráðuneyti gefi stjórnvöldum ráð um túlkun siðareglnanna þegar eftir því er leitað, standi fyrir fræðslu um þær innan Stjórnarráðsins og fylgist með að þær nái tilgangi sínum. Með breytingu sem gerð var árið 2010 á lögum um umboðsmann Alþingis, nr. 85/1997, var umboðsmanni falið að gæta þess að stjórnsýslan fari m.a. fram í samræmi við siðareglur sem settar eru á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands, sbr. 2. málsl. 2. gr. laganna. Eftirlit í þessu sambandi heyrir því lögum samkvæmt undir umboðsmann Alþingis og er það ekki á valdi forsætisráðherra að úrskurða um það hvort tilteknir ráðherrar kunni að hafa gerst brotlegir við siðareglur ráðherra.
    Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar var rætt um kosti og galla mismunandi aðferða við framhald sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka á fundum ráðherranefndar og ríkisstjórnar, þ.m.t. mismunandi gagnsæi söluaðferða og hvort aðrar leiðir en tilboðsleiðin kynnu að vera heppilegri við söluna að þessu sinni. Verður að telja alla slíka umræðu eðlilegan og nauðsynlegan hluta af faglegri umfjöllun um málið á vettvangi ríkisstjórnar.

     3.      Hefur ráðherra skoðun á því hvort efni voru til að fjármála- og efnahagsráðherra hefði átt að víkja sæti við meðferð þessa máls á einhverju stigi þess vegna sjónarmiða um vanhæfi?
    Það leiðir af 2. mgr. 5. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, að ráðherrar meta hæfi sitt sjálfir til meðferðar máls. Ber þeim ávallt að gæta að því að eigin frumkvæði hvort þeir séu vanhæfir til meðferðar máls samkvæmt skráðum og óskráðum reglum stjórnsýsluréttar um sérstakt hæfi.

     4.      Hvers vegna var við söluna látið hjá líða að fara að skilyrðum 3. gr. laga um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, nr. 155/2012, þar sem kemur fram að þess skuli gætt að skilyrði þau sem tilboðsgjöfum eru sett séu sanngjörn og að þeir njóti jafnræðis og að við sölu skuli kappkosta að efla virka og eðlilega samkeppni á fjármálamarkaði?
    Lög um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, nr. 155/2012, heyra eins og áður greinir undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðherra samkvæmt forsetaúrskurði. Það er því á ábyrgð þess ráðherra að tryggja að þar tilgreindum meginreglum laganna sé fylgt við sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Óski fyrirspyrjandi eftir nánari upplýsingum um málefnið ber að beina fyrirspurn þar að lútandi til fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.
    Þá felst í fyrirspurn fyrirspyrjanda staðhæfing um að tilteknum skilyrðum laganna hafi ekki verið fylgt í tengslum við framhald á sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022. Eins og fram kom í yfirlýsingu formanna stjórnarflokkanna 19. apríl 2022 stóð framkvæmd sölunnar ekki að öllu leyti undir væntingum stjórnvalda, m.a. um gagnsæi og skýra upplýsingagjöf. Þá hafa komið fram spurningar, álitamál og gagnrýni um framkvæmd sölunnar sem nauðsynlegt er að rannsaka og upplýsa almenning um. Hefur Ríkisendurskoðun þegar hafið úttekt á því hvort salan hafi samrýmst lögum og góðum stjórnsýsluháttum. Þá hefur Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafið rannsókn á tilteknum þáttum tengdum sölunni er varða eftirlitsskylda aðila samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 97/1998. Verður að játa framangreindum eftirlitsaðilum svigrúm til þess að ljúka þeim athugunum áður en frekari dómar verða felldir um framkvæmd sölunnar.