Ferill 664. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1107  —  664. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að leggja Bankasýslu ríkisins niður.


     1.      Á hvaða forsendum var tilkynnt 19. apríl um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að leggja til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins yrði lögð niður þrátt fyrir að enginn ríkisstjórnarfundur hefði verið haldinn þar sem taka ber slíka ákvörðun, sbr. 6. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, þar sem fram kemur að halda skuli ríkisstjórnarfundi um nýmæli í lögum, þ.e. lagafrumvörp sem ráðherrar hyggjast leggja fram á Alþingi sem stjórnarfrumvörp og jafnframt um mikilvæg stjórnarmálefni sem talin eru fela í sér mikilvæga stefnumörkun eða áherslubreytingar eða ef sýnt þykir að yfirlýsing geti haft áhrif á útgjöld ríkissjóðs umfram fjárheimildir eða á efnahagsmál almennt?
    Eins og fram kemur í yfirlýsingu formanna stjórnarflokkanna frá 19. apríl sl. voru það tilteknir annmarkar sem í ljós komu við undirbúning og framkvæmd sölu á eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum sem leiddu í ljós þörfina fyrir endurskoðun á lagaumgjörð og stofnanafyrirkomulagi við að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
    Sala á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka 22. mars sl. og framkvæmd við sölumeðferðina voru til umræðu á fundi ríkisstjórnar 29. sama mánaðar og 8. og 22. apríl sl. Á þeim fundum var m.a. farið yfir niðurstöðu útboðsins, hlutverk Bankasýslunnar og hver reynslan hefði verið í þessum hluta útboðsins. Í umræðu um málið voru ræddir ýmsir veikleikar á framkvæmdinni og nauðsyn þess að gera breytingar á henni í því skyni að tryggja betur gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf til almennings. Þess utan hafa fyrri sölur á hlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum og fyrirkomulag sölumeðferðar verið ræddar í ríkisstjórn áður, þ.m.t. sala á 13% hlut ríkisins í Arion banka í febrúar 2018 og sala á 35% hlut ríkisins í Íslandsbanka í júní 2021.
    Formenn stjórnmálaflokkanna sem mynda núverandi ríkisstjórn eru talsmenn hennar og greina frá pólitískri stefnumörkun og fyrirætlunum fyrir hönd hennar, í þessu tilfelli í tengslum við umræður í ríkisstjórn um að gera breytingar á framkvæmdinni í samræmi við áherslur sem fram höfðu komið á fundum hennar. Líkt og fram kemur í yfirlýsingunni verður við undirbúning lagafrumvarps um nýtt fyrirkomulag lögð áhersla á ríkari aðkomu Alþingis og að styrkari stoðum verði skotið undir að tryggja gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf til almennings.

     2.      Hvert er hið nýja fyrirkomulag sem ríkisstjórnin ætlar að innleiða til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum og greint var frá í fréttatilkynningu?
    Meðferð og fyrirsvar eigna ríkisins, þ.m.t. eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, og málefni Bankasýslu ríkisins, heyra undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. a- og h-lið 3. tölul. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefni milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022, sbr. og 4. gr. forsetaúrskurðar nr. 7/2022. Fjármála- og efnahagsráðherra fer jafnframt með stefnumótun á málefnasviðinu og er einn af þeim formönnum sem stóðu að fyrrnefndri yfirlýsingu. Mun það koma í hans hlut að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á fyrirkomulaginu. Fyrirspurn um hið nýja fyrirkomulag ber samkvæmt framangreindu að beina til fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.

     3.      Hvert er mat um samanlagt virði allra þeirra eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum sem Bankasýsla ríkisins hefur umsjón með?
    Eins og fram kemur í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar fer fjármála- og efnahagsráðherra með eignarráð á hlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum og málefni Bankasýslu ríkisins samkvæmt forsetaúrskurði. Fyrirspurn um samanlagt virði allra eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, sem Bankasýslan hefur umsjón með, ber því að beina til fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.

     4.      Hvenær var ríkisstjórnarfundur haldinn þar sem ákvörðun um að leggja Bankasýslu ríkisins niður var tekin, sbr. 6. gr. laga nr. 115/2011?
    Eins og áður greinir voru útboð og sala Bankasýslu ríkisins á hlut í Íslandsbanka 22. mars sl. og framkvæmd við sölumeðferð á eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum rædd á vettvangi ríkisstjórnar 29. mars og 8. apríl sl. Í kjölfarið sendu formenn stjórnarflokkanna frá sér yfirlýsingu 19. apríl sl. þar sem tilkynnt var um þau áform að innleiða nýtt fyrirkomulag til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum og skjóta styrkari stoðum undir gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf almennings við sölumeðferð á eignarhlutum ríkis í fjármálafyrirtækjum. Þá var yfirlýsingin jafnframt lögð fram til umræðu á fundi ríkisstjórnar 22. apríl sl. Áformin eru sett fram með þeim fyrirvara að fjármála- og efnahagsráðherra, sem ber ábyrgð á stjórnarmálefninu, vinni frumvarp í samræmi við framangreindar áherslur sem síðan verði lagt fram í ríkisstjórn til frekara pólitísks samráðs og loks lagt fram á Alþingi sem stjórnarfrumvarp og hljóti þar þinglega meðferð.

     5.      Hvenær verður stjórnarfrumvarp um niðurlagningu Bankasýslu ríkisins lagt fram?
    Fyrirspurn um niðurlagningu Bankasýslu ríkisins ber að beina til fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, sem ber ábyrgð á málefnum Bankasýslu ríkisins, sjá nánar svar við 2. og 3. tölul. fyrirspurnarinnar.