Ferill 446. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1109 — 446. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttir um vörslu ávana- og fíkniefna til eigin nota.
Svör við 1.–6. tölul. fyrirspurnarinnar voru tekin saman af embætti ríkislögreglustjóra. Óskað var eftir upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara vegna 7. tölul. Það athugist að í ákveðnum tilvikum var eingöngu miðað við tímabilið 2019–2021. Ekki var unnt að svara miðað við umbeðið tímabil í þeim tilvikum vegna þess tíma sem slík úttekt hefði tekið.
1. Hver hefur þróunin verið frá árinu 2000 á afskiptum lögreglu af málum sem varða einvörðungu vörslu ávana- og fíkniefna til eigin nota, sbr. 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, svokallaðra neysluskammta?
Á tímabilinu 2019–2021 voru samtals 2.951 mál þar sem skráð var brotið varsla og meðferð fíkniefna.
Í 16% málanna voru eingöngu skráð afskipti vegna brotsins varsla og meðferð fíkniefna, þ.e. ekki hafði borist tilkynning frá almenningi, heldur varð lögregla vör við slíkt brot, t.d. í almennu eftirliti.
Í 84% tilvika var skráð annað brot eða verkefnaflokkur samhliða. Algengast var að brotið akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna væri skráð í sama máli. Þá gat einnig verið skráð tilkynning þar sem t.d. var tilkynnt um eitthvað grunsamlegt eða um hávaða og óskað eftir aðkomu lögreglu á vettvang.
2. Við hvaða magn ávana- og fíkniefna miðar lögregla í störfum sínum þegar kemur að vörslu neysluskammta?
Á árunum 2010–2021 var algengasta magn ávana- og fíkniefnis sem haldlagt var í hvert skipti um eitt gramm.
Í töflu 1 hér að neðan er birt tíðasta gildi fyrir nokkur efni á tímabilinu, en litlar breytingar voru á milli ára.
Tafla 1. Algengasta magn í grömmum sem var haldlagt í hvert skipti.
| Algengasta magn | |
| Maríhúana | 1,0 |
| Hass | 0,9 |
| Kókaín | 1,0 |
| Tóbaksblandað | 0,4 |
| MDMA | 1,0 |
| Metamfetamín | 0,1 |
3. Af hversu mörgum hafði lögregla afskipti á árunum 2010–2021 einvörðungu vegna vörslu neysluskammta, sundurliðað eftir árum?
Í málaskrá lögreglu eru bæði skráð brot og verkefni sem gefa til kynna eðli atviks. Þannig getur í sama máli verið skráð tilkynning - akstur undir áhrifum lyfja/fíkniefna, bann við akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja og varsla og meðferð ávana- og fíkniefna. Slík skráning vísar þá til þess að tilkynnt hafi verið um að mögulega væri ökumaður að aka undir áhrifum, lögregla hefur stöðvað viðkomandi, fundið efni og komist að því að einstaklingurinn var að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Lögreglan hafði afskipti af 7.513 einstaklingum á tímabilinu 2010–2021. Á sama tímabili hafði lögregla afskipti af 40% þeirra oftar en einu sinni.
Ekki var hægt að aðgreina þau mál þar sem eingöngu var um vörslu og meðferð ávana- og fíkniefna að ræða og vísar tölfræðin hér að neðan því til allra tilvika þar sem um slíkt brot var að ræða.
Tafla 2. Afskipti af einstaklingum á ári.
| 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | |
| Fjöldi einstaklinga | 721 | 929 | 1.016 | 1.119 | 1.246 | 1.052 | 933 | 1.077 | 1.129 | 1.163 | 931 | 781 |
Tafla 3. Fjöldi einstaklinga sem lögregla hafði afskipti af á tímabilinu 2010–2021.
| Fjöldi einstaklinga | |
| Oftar en 20 sinnum: | 18 |
| 10–20 sinnum | 147 |
| 3–9 sinnum | 1.453 |
| 2 sinnum | 1.380 |
| 1 sinni | 4.515 |
| Samtals | 7.513 |
4. Hversu oft gerði lögregla neysluskammta upptæka á árunum 2010–2021, sundurliðað eftir árum og eftir því hvort upptaka var í tengslum við önnur afbrot eða einvörðungu fyrir brot á lögum vegna vörslu neysluskammta?
Skoðuð voru öll mál frá árunum 2019–2021 þar sem eingöngu var skráð brotið varsla og meðferð fíkniefna. Eingöngu var litið til mála þar sem aðili var þekktur.
Á árunum 2019–2021 var brotið varsla og meðferð fíkniefna eina brotið sem skráð var hjá 883 aðilum. Brotið varsla og meðferð fíkniefna var skráð ásamt fleiri brotum og eða verkefnum hjá 1.924 einstaklingum.
5. Hver voru viðurlög, sektir eða fangelsi, við vörslu neysluskammta fyrir fyrsta brot á árunum 2010–2021?
Ekki eru fyrirliggjandi upplýsingar um viðurlög eingöngu fyrir fyrsta brot og ekki heldur varðandi brot eingöngu vegna vörslu eða meðferðar fíkniefna.
Ef litið er til allra mála þar sem skráð var varsla/meðferð má sjá að í að meðaltali 37% tilvika á árunum 2010–2020 var afgreiðsla brots skráð sem „ákærumeðferð.“ Ein ástæða þess getur verið sú að einstaklingur hafi einnig verið grunaður um fleiri brot, eða ítrekuð brot.
Að meðaltali lauk 36% brota með sektarmeðferð á árunum 2010–2021. Algengasta sektarupphæðin á tímabilinu 2010–2021 var 54 þús. kr.
Það athugist að hluti mála frá 2021 er enn til afgreiðslu og því má gera ráð fyrir að einhver hluti mála frá því ári eigi eftir að fara í ákæru- eða sektarmeðferð.
Tafla 4. Ferill brotanna „varsla/meðferð“ á tímabilinu 2010–2021.
| 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | |
| Sektarmeðferð | 39% | 36% | 45% | 49% | 42% | 29% | 32% | 32% | 31% | 30% | 32% | 27% |
| Ákærumeðferð | 37% | 37% | 32% | 31% | 33% | 40% | 40% | 44% | 43% | 41% | 33% | 19% |
| Rannsókn hætt | 22% | 23% | 21% | 18% | 21% | 28% | 25% | 23% | 25% | 27% | 22% | 14% |
| Til afgreiðslu/í rannsókn | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 1% | 2% | 12% | 40% |
| Annar ferill | 2% | 3% | 2% | 3% | 4% | 3% | 3% | 1% | 1% | 0% | 0% | 0% |
| Samtals | 100% | 100% | 100% | 100% | 100% | 100% | 100% | 100% | 100% | 100% | 100% | 100% |
6. Hver voru viðurlög, sektir eða fangelsi, við vörslu neysluskammta fyrir ítrekuð brot á árunum 2010–2021?
Sjá má í svari við 5. tölul. upplýsingar um hlutfall þeirra mála sem lauk með sektarmeðferð og ákærumeðferð.
Aðrar upplýsingar en greinir hér að framan voru ekki fyrirliggjandi hjá embætti ríkislögreglustjóra.
7. Hversu margar færslur voru gerðar í sakaskrár einstaklinga vegna vörslu neysluskammta á árunum 2010–2021, sundurliðað eftir árum?
Þessar upplýsingar voru ekki fyrirliggjandi hjá embætti ríkissaksóknara.