Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1114 — 268. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um aðlögun barna að skólastarfi.
1. Hvernig er almennt staðið að aðlögun barna kvótaflóttafólks eða hælisleitenda og fylgdarlausra flóttabarna að skólastarfi hér á landi, hver er aðkoma ríkisins að því og hvernig er fjárveitingum til slíkra verkefna háttað?
Í 33. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, er kveðið á um réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í 2. mgr. þeirrar greinar er kveðið á um að barn sem sækir um alþjóðlega vernd skuli eiga þess kost að stunda skyldunám í grunnskóla eða sambærilegt nám innan hins almenna skólakerfis eða á dvalarstað þess eins fljótt og unnt er. Í reglugerð frá dómsmálaráðuneytinu nr. 540/2017 um útlendinga er sérstakur kafli um réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í 27. gr. þess kafla segir að börnum fram að 18 ára aldri skuli tryggð menntun. Þar er jafnframt kveðið á um að Útlendingastofnun skuli tryggja að barn sé að jafnaði ekki lengur en fjórar vikur í umsjá stofnunarinnar án þess að vera komið í almennan skóla eða annað úrræði til menntunar og að leitast skuli við að barn sé komið í almennan skóla innan 12 vikna frá umsókn um alþjóðlega vernd. Einnig segir í ákvæðinu að leitast skuli við að koma til móts við þarfir fjölskyldna í þjónustu sveitarfélaga með daggæslu, leikskóla, framhaldsskóla eða öðrum menntaúrræðum, eftir því sem við á.
Dómsmálaráðuneytið gaf í desember 2020 út skýrsluna Samantekt um stöðu barna í leit að alþjóðlegri vernd á Íslandi – Tillögur til úrbóta. Samantektin var gerð að frumkvæði dómsmálaráðuneytisins og lýtur að lagaumhverfi og málsmeðferð stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd. Við gerð samantektarinnar var höfð til hliðsjónar framkvæmd laga um útlendinga og hvaða verklag er viðhaft hjá þeim stofnunum sem að þessum málum koma, einkum í málum þar sem umsóknum barna hefur verið synjað og umsækjandi byggt umsókn sína á því að aðstæður í heima- eða viðtökuríki uppfylltu ekki kröfur í lögum og alþjóðlegum skuldbindingum sem íslenska ríkið hefur gengist undir. Markmið samantektarinnar var að rýna lagaumhverfi og meðferð þessara mála, taka saman helstu athugasemdir og gagnrýni sem fram hafa komið og leggja fram tillögur að mögulegum úrbótum til að tryggja enn frekar réttaröryggi og velferð barna sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi. Í niðurstöðum samantektarinnar segir að meginreglur barnasáttmálans og mannréttindasáttmála Evrópu endurspeglist að miklu leyti í íslenskum lögum og reglugerðum er varða börn en þó séu tækifæri til breytinga og úrbóta. Í samantektinni er m.a. lögð til umtalsverð breyting á móttöku og málsmeðferð stjórnvalda á umsóknum fylgdarlausra barna um alþjóðlega vernd. Aðrar tillögur lúta m.a. að leiðbeiningarskyldu stjórnvalda, rétti barns til að tjá sig og verklagi.
Fjölmenningarsetur hefur sett saman skólateymi um menntun flóttamanna sem fjallar um leik- og grunnskóla og frístund. Markmið teymisins eru að:
1. vera til ráðgjafar og sem bakland fyrir starfsfólk sveitarfélaga og menntastofnana;
2. mynda tengiliðanet sem stefnir á að setja sig í samband við fulltrúa frá háskólasamfélaginu og þeim framhaldsskólum sem eru með námsleiðir fyrir erlenda nemendur;
3. standa fyrir ráðstefnum, fyrirlestrum og fræðslu. Teymið verði til staðar þegar skólar og sveitarfélög taka við flóttafólki í fyrsta sinn, möguleiki verði að fá fræðslu inn í skóla og á kynningarfundi;
4. Skipuleggja árlegan viðburð, svo sem ráðstefnu, fyrirlestra eða fræðslu um vinnu með flóttabörnum í skólum og frístund;
5. búa til leiðarvísi fyrir leik- og grunnskóla um móttöku flóttabarna.
Í samræmdri móttöku fólks af erlendum uppruna ná sömu meginreglur yfir þá einstaklinga af erlendum uppruna sem flytjast búferlum til Íslands og þá sem hafa stöðu kvótaflóttafólks. Þar sem sveitarfélög bera ábyrgð á rekstri leik- og grunnskóla sjá sveitarfélög um fjárveitingar til nemenda á leik- og grunnskólastigi. Mennta- og barnamálaráðuneytið veitir ekki sérstakt fjármagn til slíkrar þjónustu sem um er spurt, nema mögulega í gegnum styrki til þróunarverkefna eða starfsþróunar í gegnum sjóði á vegum ráðuneytisins og vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiðir sveitarfélögum framlög vegna barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og gilda þar sambærilegar reglur um börn almennt af erlendum uppruna og einnig börn sem eru í hópi kvótaflóttafólks. Ríkið ber ábyrgð á rekstri framhaldsskóla og fjármagn til framhaldsskóla kemur frá mennta- og barnamálaráðuneytinu og miðast það við nemendafjölda og ýmsar aðrar breytur sem fram koma í reiknilíkani. Það nær bæði almennt til nemenda á framhaldsskólastigi af erlendum uppruna og einnig til barna sem falla undir fyrirspurnina og sækja um nám á framhaldsskólastigi.
Sérstakar reglur gilda um börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Útlendingastofnun hefur gert samning við sveitarfélög um þjónustu almennt við umsækjendur um alþjóðlega vernd, þ.m.t. börn. Samningurinn kveður á um skiptingu ábyrgðar og hvernig þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd skuli hagað. Markmið samningsins er að tryggja fullnægjandi lágmarksþjónustu og húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd á meðan mál þeirra eru til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum. Fjárhæðir í samningnum eru bæði með fyrirvara um ákvörðun Alþingis um fjárveitingu í fjárlögum og um að stjórnvöld kunni að ákveða að gera breytingar á þeim vegna aðstæðna í ríkisfjármálum á hverjum tíma. Daggjald fyrir umsækjanda tekur mið af ákvæðum 25. og 29. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 og áætluðum kostnaði vegna umsækjenda í þjónustu. Í daggjaldi er innifalið: a. Kostnaður við húsnæði og rekstur þess miðað við sólarhringsdvöl. b. Fæði umsækjanda, þar sem við á. c. Framfærslufé og fæðispeningar umsækjanda miðað við sólarhringsdvöl. d. Skólavist fyrir börn skv. 27. gr. reglugerðarinnar. e. Nauðsynleg túlkaþjónusta. f. Önnur umsamin þjónusta samkvæmt samningi þessum og viðaukum við hann auk þjónustu sem þjónustuaðili telur eftir atvikum nauðsynlegt, mikilvægt eða æskilegt að veita.
Rétt er að geta þess að í tengslum mikinn flóttamannastraum frá Úkraínu til Evrópu vegna stríðsátaka hefur mennta- og barnamálaráðuneytið stofnað þverfaglegt viðbragðsteymi í tengslum við móttöku barna á flótta frá Úkraínu. Markmiðið er að taka vel á móti börnum og ungmennum frá Úkraínu og tryggja þeim aðgang að skóla- og frístundaþjónustu auk sálræns og félagslegs stuðnings í íslensku skólakerfi með hagsmuni og velferð barnanna að leiðarljósi. Viðbragðsteymið er í nánu samráði við helstu hagsmunaaðila og tekur virkan þátt í samhæfingarvinnu Stjórnarráðsins.
Á vegum mennta- og barnamálaráðherra og félags- og vinnumálaráðherra hefur verið stofnað til starfshóps sem hefur m.a. það verkefni að greina og endurmeta þjónustuþarfir barna með alþjóðlega vernd. Starfshópnum er m.a. ætlað að gera tillögu að kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga varðandi aukinn stuðning við börn sem eru með alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli ríkra mannúðarsjónarmiða.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ákveðið að stofna hóp um málefni barna á flótta. Hópurinn hafi m.a. það hlutverk að vakta stöðuna með hliðsjón af réttindum og velferð þeirra barna sem um ræðir, veita ráðleggingar varðandi viðbrögð stjórnvalda og aðstoð á alþjóðlegum vettvangi jafnt sem að samræma aðgerðir og veita ráðleggingar um móttöku barna á flótta hér á landi. Einnig að vinna hagsmunamat út frá réttindum barna á aðgerðum stjórnvalda fyrir börn á flótta hér á landi. Hópurinn verður skipaður fagfólki, fulltrúum opinberra aðila sem koma að málaflokknum ásamt fulltrúum félagasamtaka með fagþekkingu á þessu sviði. Verkefnin snúa m.a. að innleiðingu löggjafar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og menntastefnu til ársins 2030. Ráðinn hefur verið verkefnisstjóri í ráðuneytið til að leiða stýrihópinn og einnig til að undirbúa og leiða stýrihóp um málefni barna af erlendum uppruna.
2. Hvernig er almennt staðið að aðlögun barna með annað móðurmál en íslensku sem ekki hafa stöðu flóttafólks að skólastarfi hér á landi, hver er aðkoma ríkisins að því og hvernig er fjárveitingum til slíkra verkefna háttað?
Í þingsályktun nr. 36/149 um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi er lögð áhersla á að þeir sem búsettir eru á Íslandi og hafa annað móðurmál en íslensku fái viðeigandi og jafngild tækifæri til íslenskunáms og stuðning í samræmi við þarfir sínar. Áhersla er lögð á að auka hæfni kennara í íslensku og að þeir hafi tök á fjölbreyttum kennsluháttum til að kenna íslensku bæði sem móðurmál og sem annað mál. Í þingsályktuninni er bent á að styrkja þurfi menntakerfið svo að það verði fært um að takast á við fjöltyngdan og fjölmenningarlegan nemendahóp. Jafnframt að vinna þurfi heildstæða aðgerðaáætlun um kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku þar sem leiðarljósið er virkt tvítyngi og að nemendur af erlendum uppruna standi jafnfætis jafnöldrum sínum sem hafa íslensku að móðurmáli. Í greinargerð kemur fram að góð færni í tungumáli sé undirstaða annars tungumálanáms. Hægt er að læra tungumál samhliða eða hvert á eftir öðru og að börn þurfi tækifæri til að ná færni í tungumálum í málumhverfi sínu. Þá er einnig bent á mikilvægi þess að hvetja foreldra til að rækta og þróa eigið móðurmál og styðja við íslenskunám barna sinna.
Með innleiðingu á stöðumati fyrir erlenda nemendur er markmiðið að styðja við vinnu skólanna varðandi mat á þekkingu nemenda af erlendum uppruna þannig að skólinn geti undirbúið og lagað kennsluna að þörfum nemandans og þekkingargrunni hans. Mat skóla snýst um að safna upplýsingum um þekkingu nemandans og túlka þær út frá markmiðum matsins. Algengasta form námsmats er að skólinn meti þekkingu nemandans í ólíkum aðstæðum í gegnum skólagöngu hans. Stöðumatið lýsir grunnþekkingu nemandans og liggur til grundvallar skipulagi kennslunnar og einstaklingsíhlutunar. Í efninu eru hugtökin námsmat (mat) og stöðumat notuð jöfnum höndum. Stöðumat á þekkingu nemandans, aldri og persónulegum aðstæðum veitir skólanum grunn fyrir ákvarðanatöku skólastjóra um hvaða námshópi nemandinn á að tilheyra. Efnið er ætlað grunnskólum en það er einnig hægt að nota á framhaldsskólastigi og unnið er að stöðumati fyrir leikskólastigið. 1
Eins og kemur m.a. fram í markmiðsgrein laga um leikskóla, nr. 90/2008, mótast starf í leikskólum af fjölbreyttum gildum sem byggja meðal annars á umburðarlyndi og kærleika, jafnrétti og lýðræðislegu samstarfi. Jafnframt að leikskólastarf skuli leggja grundvöll að því að börn verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi sem er í örri og sífelldri þróun. Í aðalnámskrá leikskóla endurspeglast sú lýðræðissýn sem sett er fram í sameiginlegum hluta námskránna. Þar kemur fram að leikskóli eigi að vera vettvangur þar sem leggja beri áherslu á gildi og starfshætti sem renna stoðum undir lýðræðislegt samfélag, samfélag þar sem hver einstaklingur nýtur virðingar og leggur sitt af mörkum. Virða skal rétt allra sem þar dvelja og byggja á jafnrétti, fjölbreytileika, samábyrgð, samstöðu, viðurkenningu fyrir ólíkum sjónarmiðum og virðingu fyrir margbreytileika mannlífsins og öðrum menningarheimum. Lögð er áhersla á að starfsfólk leikskóla sýni fjölbreyttum fjölskyldugerðum og menningu virðingu og skilning og virði sérstöðu og sjónarmið hvers einstaklings. Til að stuðla að því að börn þrói með sér jákvæða sjálfsmynd þarf að byggja á styrkleikum þeirra og hæfni og virða sérstöðu og sjónarmið hvers einstaklings. Í námskránni er jafnframt kveðið á um að í leikskóla beri að skapa aðstæður svo að börn fái tækifæri til að eiga jákvæð og uppbyggileg samskipti, tjá sig með fjölbreyttum hætti og kynnast tungumálinu og möguleikum þess og nýta tækifærin sem gefast í daglegum samskiptum til að efla íslenska málvitund þar sem börn læra ný orð og hugtök og þróa tungumálið (Aðalnámskrá leikskóla, 2011).
Í 16. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, kemur fram að gera eigi móttökuáætlun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. Kennsla skal fara fram á íslensku en heimilt er að nám fari fram á öðrum tungumálum en íslensku þegar það leiðir af eðli máls eða aðalnámskrá. Grunnskólar taka á móti nemendum sem eru að hefja skólagöngu, eru að skipta um skóla eða hefja nám sitt hér á landi samkvæmt móttökuáætlun skóla eða sveitarfélags. Foreldrum skulu á þeim tímamótum veittar upplýsingar um skólagöngu barnsins og skólastarfið almennt. Móttökuáætlun vegna nemenda með annað móðurmál en íslensku skal taka mið af bakgrunni þeirra, tungumálafærni og færni á öðrum námssviðum. Tryggja skal að nemendur og foreldrar þeirra fái ráðgjöf og aðgang að upplýsingum um grunnskólastarf. Nemendur með annað móðurmál en íslensku eiga rétt á kennslu í íslensku sem öðru tungumáli. Með kennslunni er stefnt að virku tvítyngi þessara nemenda og að þeir geti stundað nám í grunnskólum og tekið virkan þátt í íslensku samfélagi. Grunnskólum er heimilt að viðurkenna kunnáttu í móðurmáli nemenda með annað móðurmál en íslensku sem hluta af skyldunámi er komi í stað skyldunáms í erlendu tungumáli. Í 18. gr. laganna kemur fram að grunnskólar eigi að tryggja að foreldrum sem ekki tala íslensku standi til boða túlkun á upplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna samskipta foreldra og skóla.
Í aðalnámskrá grunnskóla er lögð áhersla á að bæta íslenskukunnáttu þeirra nemenda sem hafa annað mál en íslensku að móðurmáli. Hæfni í íslensku er talin meginforsenda þess að þeir verði að virkum þátttakendum í lýðræðis- og jafnréttissamfélagi og að móðurmál nemenda geti orðið góður stuðningur í kennslu og námi. Hvetja skal foreldra til að styðja við íslenskunám barna sinna og jafnframt að þeir rækti og þrói eigið móðurmál til að stuðla að virku tvítyngi. Mikilvægt er talið fyrir sjálfsmynd nemenda með annað móðurmál en íslensku að tekið sé tillit til þekkingar þeirra og færni í eigin móðurmáli og nauðsynlegt að þeir fái stuðning við að viðhalda því. Skipulag kennslu íslensku sem annars tungumáls á einstökum stigum grunnskóla tekur mið af aldri, þroska og þörfum nemenda. Einnig ber að hafa í huga reynslu nemenda, menningarlegan bakgrunn og stöðu í námi. Hæfnirammarnir í aðalnámskrá eru þrepaskiptir og lýsa stigvaxandi hæfni nemenda í íslensku sem öðru tungumáli. Römmunum er ætlað að lýsa hæfni sem krafist er í notkun íslensku á öllum sviðum tungumálanáms. Hæfnirammarnir miða ekki við aldur nemandans heldur stöðu hans í íslensku (Aðalnámskrá grunnskóla, 2013 með síðari breytingum).
Í grunnskólum landsins er stutt með fjárveitingum við nemendur með annað móðurmál en íslensku með tvennum hætti: annars vegar er veitt úr Jöfnunarsjóði íslenskra sveitarfélaga og hins vegar með fjárúthlutun, einnig úr sérstökum sjóði, fyrir nemendur í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Aðferðafræði úthlutananna er ólík og lítið samráð eða samræmi er þarna á milli. Ráðuneyti mennta- og barnamála kemur ekkert að fjármögnun kennslu þessara nemenda á grunnskólastigi, enda er ábyrgð á rekstri grunnskóla hjá sveitarfélögum.
Í lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, segir að hlutverk framhaldsskóla sé að stuðla að almennum þroska nemenda og að búa þá undir þátttöku í atvinnulífinu og frekara nám. Allir nemendur framhaldsskóla eiga rétt á kennslu við sitt hæfi í hvetjandi námsumhverfi sem tekur mið af þörfum þeirra og almennri vellíðan. Kennsla skal fara fram á íslensku en heimilt er að nám fari fram á öðrum tungumálum. Þar segir einnig að framhaldsskólar skuli setja sér móttökuáætlanir. Nemendur, sem hafa annað móðurmál eða litla kunnáttu í íslensku, eiga rétt á kennslu í íslensku sem öðru tungumáli. Miða skal við að nemendur með annað móðurmál en íslensku fái tækifæri til að viðhalda móðurmáli sínu sem valgrein, óski þeir þess. Í aðalnámskrá framhaldsskóla segir einnig að framhaldsskólar skuli koma til móts við þarfir nemenda af erlendum uppruna með kennslu í íslensku, fræðslu um íslenskt samfélag og menningu, liðsinni við heimanám og með jafningjastuðningi. Auk þess að gera móttökuáætlun skulu framhaldsskólar gera einstaklingsnámskrár. Framhaldsskólum er heimilt að meta móðurmál nemenda til eininga í stað annars erlends tungumáls. Nemendur sem hafa dvalið utan Norðurlandanna geta sótt um að taka annað tungumál í staðinn fyrir Norðurlandamál. Nemendur, sem fengið hafa undanþágu frá námi í Norðurlandamáli í grunnskóla geta einnig fengið undanþágu frá Norðurlandamáli í framhaldsskóla. Þeir skulu þó taka aðra grein í staðinn (Aðalnámskrá framhaldsskóla, 2011).
3. Er gætt jafnræðis við móttöku og aðlögun barna kvótaflóttafólks, barna hælisleitenda, fylgdarlausra flóttabarna og annarra barna sem ekki hafa íslensku sem móðurmál í skólakerfinu og hvernig er það tryggt?
Í menntakerfinu er lögð áhersla á jöfn tækifæri til náms á öllum skólastigum. Í grunnskóla eiga allir nemendur t.d. rétt á að stunda nám við sitt hæfi. Tækifærin eiga að vera jöfn óháð atgervi og aðstæðum hvers og eins. Þess er því gætt að tækifærin ráðist ekki af því hvort nemandi er af íslensku bergi brotinn eða af erlendum uppruna. Þau eru óháð því hvort um drengi eða stúlkur er að ræða, hvar nemandi býr, hverrar stéttar hann er, hvaða trúarbrögð hann aðhyllist, hver kynhneigð hans er, hvernig heilsufari hans er háttað eða hvort hann býr við fötlun eða hverjar aðstæður hans eru. Í 16. gr. grunnskólalaga frá 2008 er kveðið á um að skólar skuli taka á móti nemendum sem eru að hefja nám sitt hér á landi samkvæmt móttökuáætlun skóla eða sveitarfélags. Móttökuáætlun vegna nemenda með annað móðurmál en íslensku skal taka mið af bakgrunni þeirra, tungumálafærni og færni á öðrum námssviðum. Tryggja skal að þessir nemendur og foreldrar þeirra fái ráðgjöf og aðgang að upplýsingum um grunnskólastarf. Í sömu grein segir að grunnskólum sé heimilt að viðurkenna kunnáttu í móðurmáli nemenda með annað móðurmál en íslensku sem hluta af skyldunámi er komi í stað skyldunáms í erlendu tungumáli. Mikilvægt er að bjóða nemendum kennslu í eigin máli þar sem þeir eiga þess kost að læra um mál, bókmenntir og menningu og fá þjálfun í málnotkun. Móttaka nemenda verður að taka mið af stöðu hvers barns fyrir sig og því ekki hægt að tala um sömu móttöku nemenda sem koma frá t.d. Norðurlöndum eða öðru Evrópulandi annars vegar og hins vegar nemenda sem koma frá stríðshrjáðum svæðum heims og hafa jafnvel búið í flóttamannabúðum í einhver ár og ekki hlotið þar tilhlýðilega menntun og eru frá mjög ólíkum málsvæðum. Við slíkar aðstæður þarf að sérsníða móttöku og þjónustu við nemendur að þörfum hvers og eins.
4. Hefur Menntamálastofnun gefið út sérstakt námsefni fyrir flóttabörn eða börn með annað móðurmál en íslensku? Ef ekki, hvers vegna ekki og hvenær má búast við að slíkt námsefni verði á boðstólum?
Á vef Menntamálastofnunar er vísað á margs konar námsefni sem getur nýst í kennslu íslensku sem annars tungumáls. Hins vegar hefur ekki verið gefið út sérstakt námsefni sem eingöngu er ætlað nemendum með annað mál en íslensku. Í greiningu Menntamálastofnunar frá 2018 um stöðu grunnskólanemenda með íslensku sem annað tungumál kemur m.a. fram að kennarar hafa bent á mikla þörf fyrir sértækt námsefni sem hentar þessum nemendum betur en námsefni sem ætlað er öllum nemendum. Ástæðan fyrir því er helst sú að nemendur með annað móðurmál en íslensku eiga oft í erfiðleikum með að tileinka sér inntak námsefnis vegna bágrar kunnáttu í íslensku. Í greinargerðinni kemur fram að við gerð slíks efnis þurfi að taka mið af aldri, getu og bakgrunnsmenningu nemenda. Helst hafa kennarar nefnt þörf á byrjendaefni fyrir mið- og unglingastig, hliðarefni á vef við útgefið efni námsgreina, flokkun námsefnis Menntamálastofnunar eftir þyngdarstigi og aldri nemenda og orðalistum yfir námsorðaforða með almennu námsefni. Einnig hafa kennarar beðið um að hagnýt handbók um kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku verði gerð aðgengileg á vef Menntamálastofnunar. Á vef Menntamálastofnunar kemur fram að grunnskólakennarar hafi flokkað útgefið efni Menntamálastofnunar eftir því hve vel það hentar til náms og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Námsefnið er flokkað fyrir byrjendur, lengra komna eða lengst komna í námi á öllum stigum grunnskólans og ratar sumt af því í alla flokkana. Einnig er á vef stofnunarinnar bent á annað aðgengilegt efni sem snýr að námi og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Einn af verkþáttum í fyrstu aðgerðaáætlun menntastefnu fyrir 2021–2024 er stóraukin útgáfa námsefnis í íslensku sem annað mál fyrir öll færni- og aldursstig. Menntamálastofnun er með í vinnslu gerð námsefnis fyrir þennan nemendahóp og jafnframt er í undirbúningi námskeið fyrir kennara og skóla í tengslum við innleiðingu á nýlegum breytingum á aðalnámskrám í íslensku sem öðru máli.
5. Með hvaða hætti hyggst ráðherra leggja áherslu á stuðning til aðlögunar barna af erlendum uppruna sem vísað er til í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf?
Með stofnun sérstaks mennta- og barnamálaráðuneytis skapast nýir möguleikar á að tengja betur mismunandi kerfi sem veita börnum þjónustu, þ.m.t. börnum af erlendum uppruna, bæði almenna grunnþjónustu menntakerfisins, á sviði íþrótta- og æskulýðsmála og í öðru frístundastarf og innan barnaverndar og félagsþjónustu. Í því felast mörg tækifæri að öll þessi kerfi stilli saman strengina með samþættingu og farsæld barna að leiðarljósi. Einnig er nauðsynlegt að styrkja tengslin við heilsuseflandi samfélag, forvarnir í lýðheilsumálum og geðrækt og almennri og stigskiptri þjónustu heilbrigðiskerfisins fyrir börn og ungmenni.
Með innleiðingu laga nr. 86/2021, um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, er stuðlað að farsæld barna. Meginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Í lögunum er skýrt að þau eiga við öll börn sem dvelja á yfirráðasvæði íslenska ríkisins, óháð hví hvort þau eiga hér lögheimili eða ekki. Að því leyti er ekki gerður greinarmunur á þjónustu eftir því hvort um er að ræða flóttamenn eða umsækjendur um alþjóðlega vernd. Við innleiðingu laganna verður lögð sérstök áhersla á viðkvæma hópa barna, þar á meðal börn af erlendum uppruna. Í því sambandi er bent á að samkvæmt reglugerð nr. 1455/2021, sem fjallar um framlög ríkissjóðs til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2022, taka framlög til sveitarfélaga meðal annars mið af fjölda innflytjenda af fyrstu og annarri kynslóð í sveitarfélaginu. Er því gert ráð fyrir að börn af erlendum uppruna hafi sérstaka þörf fyrir þjónustu sem mælt er í lögum nr. 86/2021 þegar kemur að fjármögnun hennar.
Að baki nýrri menntastefnu til ársins 2030 sem samþykkt var af Alþingi vorið 2021 var umfangsmikið samráð og greiningarvinna sem staðið hefur yfir frá árinu 2018. Í fyrstu aðgerðaáætlun menntastefnunnar fyrir árin 2021–2024 eru níu meginaðgerðir tilgreindar en þær snerta á þeim fimm stoðum sem ný menntastefna hvílir á; jöfnum tækifærum fyrir alla, kennslu í fremstu röð, hæfni fyrir framtíðina, vellíðan í öndvegi og gæði í forgrunni. Í fyrstu aðgerðaáætlun fjallar ein af níu meginaðgerðum um markvissan stuðning við nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Markmið þeirrar aðgerðar er að íslenskt menntakerfi mæti náms- og félagslegum þörfum nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, á öllum skólastigum og í öllum skólagerðum, svo að þeir standi jafnfætis jafnöldrum sínum, nái góðri færni í íslensku og taki virkan þátt í námi, leik og íslensku samfélagi.
Verkefni mennta- og barnamálaráðuneytisins sem tengjast málefnum útlendinga innan skólakerfisins lúta einkum að því að börn og fullorðnir með annað móðurmál en íslensku fái markvissa kennslu í íslensku og njóti viðeigandi þjónustu og stuðnings til að þeir geti stundað áframhaldandi nám og verið virkir þátttakendur í samfélaginu. Til að svo verði er nauðsynlegt að bæta læsi, bjóða tækifæri til að rækta og viðhalda eigin móðurmáli og bæta þjónustu við nemendur og fjölskyldur þeirra. Á vegum mennta- og barnamálaráðuneytis er m.a. unnið að eftirfarandi verkefnum til að bæta stöðu þessara hópa:
* Þingsályktunartillaga um að efla íslensku sem opinbert mál hér á landi var samþykkt á Alþingi árið 2019. Í tillögunni er fjallað um alls 22 aðgerðir sem því tengjast en meginmarkmið þeirra eru að íslenska verði notuð á öllum sviðum samfélagsins, að íslenskukennsla verði efld á öllum skólastigum ásamt menntun og starfsþróun kennara og að framtíð íslenskrar tungu í stafrænum heimi verði tryggð. Í þingsályktuninni er m.a. fjallað um íslensku sem annað mál og að þeir sem eru búsettir á Íslandi og hafa annað móðurmál en íslensku, börn jafnt sem fullorðnir, fái viðeigandi og jafngild tækifæri til íslenskunáms og stuðning í samræmi við þarfir sínar.
* Starfshópur á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis skilaði árið 2020 skýrslu með drögum að stefnu um menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
* Leiðarvísir um stuðning við móðurmál og virkt fjöltyngi í skóla- og frístundastarfi var gefinn út árið 2020. Ráðuneytið styrkti Samtökin Móðurmál við gerð og innleiðingu á leiðarvísinum.
* Ráðuneytið fól Menntamálastofnun að fylgjast með þróun sveitarfélaga á stöðumati sem lagt er fyrir innflytjendur á fyrstu tveimur mánuðum eftir komu til landsins. Matinu er ætlað að skýra bakgrunn og kortleggja námslega stöðu í sterkasta skólamáli nemandans. Stöðumatið var þýtt úr sænsku og er aðgengilegt fyrir skólasamfélagið.
* Kafli um íslensku sem annað tungumál í aðalnámskrá grunnskóla hefur verið endurskoðaður og gefinn út og aðalnámskrá leikskóla endurskoðuð hvað sama nemendahóp varðar. Unnið er að innleiðingu í samstarfi ráðuneytisins og Menntamálastofnunar.
* Framhaldsskólar hafa unnið að því að minnka brotthvarf allra nemenda, þ.m.t. innflytjenda, og notað til þess m.a. styrki sem úthlutað var í gegnum sérstakt verkefni sem mennta- og menningarmálaráðuneytið fól Menntamálastofnun.
* Þá hafa framhaldsskólar unnið að því að bæta móttökuáætlanir sínar fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku til að mæta þessum hópi enn betur en hingað til.
* Skipulögð hafa verið námskeið í tengslum við Menntafléttu um móðurmál, íslensku sem annað mál og virkt fjöltyngi í skóla- og frístundastarfi. Menntavísindasvið Háskóla Íslands annast framkvæmdina með stuðningi ráðuneytisins.
* Unnið hefur verið að því að bæta tölfræðigreiningar á brotthvarfi nemenda með annað móðurmál en íslensku.
* Ráðuneytið úthlutar styrkjum (140 millj. kr. á ári með fyrirvara um samþykki Alþingis á fjárlögum) til íslenskukennslu útlendinga sem eiga að nýtast þeim sem eru á vinnumarkaði og njóta ekki þjónustu skólakerfisins. Þess er gætt að hælisleitendur geti tekið þátt í námskeiðum meðan málefni þeirra eru til skoðunar hjá stjórnvöldum. Meiri eftirspurn er hins vegar eftir fjármagni til kennslunnar en unnt hefur verið að mæta um langt skeið og hefur þessi upphæð ekki hækkað til samræmis við fjölgun innflytjenda.
* „Icelandic online“ er vefur fyrir íslenskukennslu, styrktur af ráðuneytinu.
1 mms.is/stodumat-fyrir-erlenda-nemendur