Ferill 621. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1122 — 621. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um skiptingu þjónustuþega VIRK eftir starfsstéttum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hafa þjónustuþegar VIRK skipst eftir starfsstéttum undanfarna 15 mánuði?
Samkvæmt upplýsingum frá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði svara einstaklingar sem fá þjónustu hjá sjóðnum tilteknum spurningum við upphaf þjónustunnar, þar á meðal er spurt um innan hvaða starfsgreinar síðasta starf viðkomandi hafi verið eða núverandi starf sé. Í því sambandi miðar VIRK Starfsendurhæfingarsjóður við aðra starfsgreinaflokkun en atvinnugreinaflokkun Hagstofu Íslands.
Í töflu 1 má sjá þá starfsgreinaflokkun sem VIRK Starfsendurhæfingarsjóður miðar við í tengslum við skráningu þeirra atvinnugreina sem einstaklingar sem nýta sér þjónustu sjóðsins segjast við upphaf þjónustunnar hafa starfað innan.
Tafla 1. Starfsgreinar í spurningalista VIRK.
| Starfsgrein | Dæmi um störf |
| Heilbrigðis- og félagsþjónusta, svo sem hjúkrun, umönnun og meðferð. | Meðal annars störf sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga, heilbrigðisgagnafræðinga, geislafræðinga, lækna, sálfræðinga, sjúkraþjálfara sem og störf við liðveislu og umönnun. |
| Kennsla, uppeldis- og tómstundastarf. | Meðal annars störf kennara, leiðbeinenda, námsráðgjafa, skólastjórnenda, störf við frístundir, íþróttakennslu, fullorðinsfræðslu o.fl. |
| Afgreiðsla, þjónusta og útkeyrsla á vörum. | Öll afgreiðslustörf, þjónustustörf, snyrting, bílaviðgerðir og akstur á vörum (ekki fólki). |
| Ræstingar. | Störf við ræstingar, þrif í heimahúsum o.fl. |
| Byggingastarfsemi, mannvirkjagerð sem og viðhald húsa og fasteigna. | Meðal annars störf við byggingu húsa, vegagerð, brúarsmíði, frágang o.fl. |
| Fiskvinnsla, landbúnaður og matvælaframleiðsla. | Störf í landbúnaði, skógrækt, grænmetisrækt, fiskeldi, fiskvinnsla, matvælaframleiðsla o.fl. |
| Ferðaþjónusta og farþegaflutningar. | Störf í ferðaþjónustu, við hótel- og gistirekstur, ferðaleiðsögn, skrifstofustörf tengd ferðaþjónustu, akstur leigu- og hópferðabifreiða. |
| Sérfræði- og stjórnsýslustörf, starf hjá stofnun, við fjármálaþjónustu og upplýsingatækni sem og almenn skrifstofustörf. | Meðal annars störf í fjármálafyrirtækjum, hjá verkfræði- og arkitektastofum, hjá tryggingafélögum, hjá stofnunum ríkis og bæja, sérfræðistörf, hjá félagasamtökum o.fl. |
| Almannaöryggi og dómsmál. | Störf við löggæslu, við slökkviliðs- og björgunarstörf, í fangelsum eða við dómstóla. |
| Menning- og skapandi greinar (ekki kennsla). | Meðal annars störf við hönnun, sviðslistir, kvikmyndagerð, menningarmiðlun, frétta- og blaðamennsku o.fl. |
| Aðrar atvinnugreinar. |
Í töflu 2 má sjá starfsgreinaskiptingu einstaklinga sem nýttu sér þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs á tímabilinu frá janúar 2021 til mars 2022 miðað við svör sem þeir gáfu við upphaf þjónustunnar. Um er að ræða upplýsingar um störf 2.739 einstaklinga en samkvæmt upplýsingum frá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði birtir sjóðurinn ekki upplýsingar um störf innan einstakra starfsgreina þar sem fjöldi einstaklinga er færri en fimm, en í slíkum tilvikum eru störfin skráð undir aðrar atvinnugreinar.
Tafla 2. Fjöldi nýrra einstaklinga í þjónustu eftir atvinnugrein og mánuði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: VIRK Starfsendurhæfingarsjóður.