Ferill 468. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1124 — 468. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um viðmiðunartímabil fæðingarorlofs.
1. Hefur komið til skoðunar hjá ráðherra að breyta viðmiðunartímabili sem liggur til grundvallar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði í ljósi tekjufalls hjá fjölda einstaklinga, m.a. sjálfstætt starfandi foreldra í menningartengdum störfum, ferðaþjónustu og líkamsrækt vegna heimsfaraldurs COVID-19?
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hefur stofnunin ekki orðið þess áskynja að viðmiðunartímabil í tengslum við greiðslur til foreldra úr Fæðingarorlofssjóði, sem nýta rétt sinn til fæðingarorlofs, komi sér illa fyrir foreldra vegna tekjufalls á því tímabili sem heimsfaraldurs kórónuveirunnar hefur gætt hér á landi. Í ljósi þess hefur ekki komið til skoðunar að leggja til breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, hvað varðar viðmiðunartímabil sem liggur til grundvallar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
2. Hefur verið gerð greining á því hve stór hluti umsækjenda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hefur orðið fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs COVID-19? Ef svo er, hver er niðurstaða slíkrar greiningar? Ef ekki, hyggst ráðherra láta framkvæma slíka greiningu?
Í meðfylgjandi töflum og á meðfylgjandi myndum, sem Vinnumálastofnun hefur tekið saman, má sjá þróun meðaltals heildarlauna foreldra á viðmiðunartímabili samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, sundurliðað eftir árum, kyni, tekjubilum og því hvort foreldri telst hafa verið starfsmaður (launþegi) eða sjálfstætt starfandi samkvæmt lögunum. Um er að ræða foreldra sem sótt hafa um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna barna sem hafa fæðst, verið ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á árunum 2019 til 2021. Þar sem foreldrum er heimilt að nýta rétt sinn til fæðingarorlofs í 24 mánuði eftir fæðingu, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur liggja enn ekki fyrir endanlegar tölur fyrir árin 2020 og 2021.
Í fyrrnefndum töflum og á fyrrnefndum myndum má sjá að ekki er teljandi munur á meðaltali heildarlauna foreldra sem teljast starfsmenn samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof séu árin 2019, 2020 og 2021 borin saman. Hins vegar má sjá meiri breytileika hvað varðar meðaltal heildarlauna foreldra á viðmiðunartímabili í þeim töflum og á þeim myndum sem eiga við um foreldra sem teljast sjálfstætt starfandi samkvæmt lögunum, ekki síst hjá mæðrum. Ekki liggja þó fyrir upplýsingar um hvort breytileikinn stafar af heimsfaraldri kórónuveirunnar eða öðrum þáttum, svo sem launaþróun. Þannig hefur verið um að ræða færri sjálfstætt starfandi mæður á árinu 2020 en á árinu 2019 þar sem meðaltal heildarlauna á viðmiðunartímabili hefur verið á tekjubilinu 300.000–399.999 kr. Þá hefur verið um að ræða hærra hlutfall sjálfstætt starfandi mæðra á árinu 2020 en á árinu 2019 þar sem meðaltal heildarlauna á viðmiðunartímabili hefur verið 400.000 kr. eða hærra.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Vinnumálastofnun. Endanlegar tölur fyrir árið 2020 liggja ekki fyrir fyrr en í lok árs 2022. Endanlegar tölur fyrir árið 2021 liggja ekki fyrir fyrr en í lok árs 2023.