Ferill 661. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1131 — 661. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um skaðaminnkandi aðgerðir.
Ráðuneytið hefur ekki ákvarðað formlegar aðgerðir í skaðaminnkun fyrir heilbrigðiskerfið en þrátt fyrir það hafa heilbrigðisstofnanir unnið að tilteknum verkefnum sem hafa það markmið að draga úr skaða vegna vímuefnanotkunar.
Í skýrslu um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum og hliðarverkunum vímuefnaneyslu, til aðstoðar og verndar neytendum efnanna og félagslegum réttindum þeirra, aðstandendum þeirra og samfélaginu í heild, sem starfshópur á vegum heilbrigðisráðherra skilaði og lögð var fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi, voru gerðar tillögur í tólf liðum og laut fjórðungur tillagnanna að hugmyndafræði skaðaminnkunar innan heilbrigðiskerfisins.
Í fyrsta lagi ber að nefna verkefni sem lýtur að aðgengi að hreinum sprautubúnaði og nálaskiptiþjónustu en markmiðið með því var að tryggja aðgengi að hreinum sprautubúnaði og efla nálaskiptiþjónustu í landinu. Bæði skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins á Íslandi eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands svo að unnt sé að dreifa hreinum búnaði og taka við notuðum búnaði sem Landspítalinn fargar, þ.e. Frú Ragnheiður á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri og Ylja, færanlegt neyslurými í Reykjavíkurborg. Í tengslum við þriggja ára meðferðarátak heilbrigðisyfirvalda gegn lifrarbólgu C tók Landspítalinn að sér að útbúa lítinn skaðaminnkunarkassa sem inniheldur hreinan sprautubúnað og þá kassa hafa heilsugæslustöðvar getað pantað til dreifingar án endurgjalds.
Í öðru lagi ber að nefna neyslurými sem hefur það markmið að skapa öruggan og heilsusamlegan vettvang fyrir fólk sem notar vímuefni í æð. Með lögum nr. 48/2020, um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, hefur sveitarfélögum verið gert kleift að sækja um að stofna og reka neyslurými í lagalega vernduðu umhverfi. Á grundvelli laganna var sett reglugerð nr. 170/2021 um neyslurými sem lýtur að rekstri og starfsemi þeirra. Í bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar var sveitarfélögum gert kleift að reka neyslurými tímabundið í bíl sem uppfyllir kröfur reglugerðarinnar þar til húsnæði hefur verið opnað fyrir starfsemina. Reykjavíkurborg fól Rauða krossi Íslands að reka Ylju, færanlegt neyslurými í sveitarfélaginu en það hóf störf í mars á þessu ári.
Í þriðja og síðasta lagi ber að nefna verkefnið gjaldfrjálsa heilsugæslu fyrir jaðarsetta hópa. Ekki er hafin vinna við að innleiða það verkefni að öðru leyti en að komugjöld hafa verið lækkuð á undanförnum árum og er heilsugæsla nú gjaldfrjáls fyrir börn og aldraða en aðrir sjúkratryggðir þurfa að greiða 500 kr. komugjald. Mögulegt væri að framkvæma verkefnið í skrefum með því að hefja útfærslu á þjónustu fyrir jaðarsetta hópa í samstarfi við Landspítala og aðrar heilbrigðisstofnanir sem þegar veita fólki með virkan vímuefnavanda mikla heilbrigðisþjónustu.
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir frekari áherslu á skaðaminnkandi aðgerðir í heilbrigðiskerfinu?
Í þingsályktun um lýðheilsustefnu til ársins 2030 sem samþykkt var á Alþingi í júní 2021 var ákveðið að heilsuefling og forvarnir yrðu hluti af allri þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Með lýðheilsu er átt við heilsueflingu og forvarnir sem miða að því að viðhalda og bæta heilbrigði fólks og koma í veg fyrir sjúkdóma eins og kostur er. Eitt af sjö meginviðfangsefnum sem áhersla verður lögð á til að styrkja stoðir lýðheilsustarfs er að rétt þjónusta sé veitt á réttum stað, m.a. með því að stuðlað verði að skaðaminnkun fyrir einstaklinga og hópa.
Á grundvelli þingsályktunarinnar hefur bæði Alþingi og ráðherra skuldbundið sig til að leggja áherslu á skaðaminnkandi aðgerðir í heilbrigðiskerfinu.
Nú þegar hefur tveimur verkefnum verið ýtt úr vör, þ.e. starfshópi sem ráðherra skipaði í febrúar um afglæpavæðingu neysluskammta og ákvörðun um að Landspítala verði falið að sjá um kaup á naloxoni í nefúðaformi fyrir þá aðila sem þjónusta einstaklinga sem nota ópíóða á áhættusaman eða lífshættulegan hátt, m.a. verður skaðaminnkunarverkefnunum Frú Ragnheiði og Ylju falið að annast útdeilingu nefúðans til fólks sem er í mestri hættu á að verða fyrir ofskömmtun vegna ópíóða.
3. Hyggst ráðherra beita sér fyrir aðgengi vímuefnaneytenda að vímuefnagreiningu (e. drug checking), t.d. í neyslurýmum?
Erlendis, þar sem vímuefnagreining hefur helst staðið fólki til boða, hefur slík greining helst nýst fólki sem er ekki daglegir notendur vímuefna, þ.e. er mögulega að prófa í fyrsta skipti eða notar vímuefni í einstaka tilvikum eins og á útihátíðum og á skemmtistöðum. Af þeim sökum hefur, enn sem komið er, ekki verið talin ástæða, til að bjóða upp á slíka þjónustu í t.d. neyslurými.
Að svo stöddu er einungis eitt neyslurými starfandi á Íslandi á grundvelli bráðabirgðaákvæðis í reglugerð um neyslurými, nr. 170/2021, og nefnist Ylja. Rauði krossinn á Íslandi tók að sér að reka verkefnið, líkt og hann gerir með Frú Ragnheiði. Skaðaminnkunarverkefnin eru þróuð í notendasamráði og ef starfsfólk þeirra og sjálfboðaliðar munu telja að þörf verði fyrir vímuefnagreiningu fyrir skjólstæðinga sína mun ráðherra greiða fyrir því að það komist til framkvæmdar.