Ferill 627. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1153  —  627. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190, um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hyggst ríkisstjórnin fullgilda fyrir Íslands hönd samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190, um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni, sem gerð var í Genf 21. júní 2019? Ef svo er, hvenær má þess vænta? Ef ekki, hvaða ástæður eru fyrir því?

    Ríkisstjórn Íslands hefur hafið vinnu við fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190, um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni, hér á landi og var tillaga þess efnis birt í samráðsgátt stjórnvalda 17. október 2019. Auk þess hefur ráðuneytið átt í samráði við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, nú innviðaráðuneyti, sbr. forsetaúrskurð um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti nr. 5/2022, um fullgildingu umræddrar samþykktar en efni samþykktarinnar fellur einnig undir málefnasvið þess ráðuneytis.
    Ákveðið hefur verið að skipa vinnuhóp á komandi vikum sem fái það hlutverk að greina efni samþykktarinnar og leggja mat á hvort og þá hvaða breytingar á löggjöf fullgilding umræddrar samþykktar hefur í för með sér hér á landi. Leiði sú vinna í ljós að gera þurfi breytingar á löggjöf hér á landi er gert ráð fyrir að frumvarp verði lagt fram á Alþingi þar sem lagðar verði til nauðsynlegar lagabreytingar þannig að unnt verði að fullgilda umrædda samþykkt hér á landi. Ríkisstjórnin hyggst því fullgilda ofannefnda samþykkt