Ferill 724. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1155 — 724. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um viðspyrnu við vímuefnavanda og fíkn.
Flm.: Sigurður Páll Jónsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að leggja fram áætlun um að öllum sem glíma við fíkn hvers konar eða vímuefnavanda standi til boða viðeigandi meðferð. Ráðherra leggi slíka áætlun fram fyrir 1. janúar 2023.
Greinargerð.
Þingsályktunartillaga þessi er mikilvægt skref í því að efla heilbrigðisþjónustu og stuðla að bættu samfélagi og auknu aðgengi að þjónustu fyrir þá sem glíma við fíkn og vímuefnavanda.
Með þingsályktunartillögunni er lagt fyrir heilbrigðisráðherra að leita raunhæfra og skilvirkra leiða til að veita viðspyrnu við þeim vanda sem þeir sem glíma við fíkn eða vímuefnavanda og tryggja þeim og fjölskyldum þeirra úrræði. Markmið tillögunnar er að stytta biðlista og auka aðgengi og þjónustu við einstaklinga í fíknivanda. Ýmsar sérhæfðar stofnanir og deildir innan heilbrigðiskerfisins sérhæfa sig í meðferð við slíkum vandamálum. Þeirra stærst er sjúkrahúsið Vogur sem er sérhæfð stofnun sem hefur séð um afeitrun fíkla og meðferðir undanfarna áratugi með góðum árangri og er reynsla þeirra sem þar starfa yfirgripsmikil og hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Á Vogi er veitt sérhæfð meðferð við fíknisjúkdómi sem byggist á læknisfræðilegum greiningum, afeitrun með fagfólki, lyfjameðferð og einstaklingshæfðri sálfélagslegri meðferð svo að fátt eitt sé nefnt. Á Landspítala er rekin meðferðardeild sem hluti af geðdeild spítalans, Hvítasunnusöfnuðurinn rekur meðferðarheimilið Hlaðgerðiskot auk fleiri samtaka.
Þessar stofnanir og samtök eiga það öll sameiginlegt að biðlistar eru eftir að komast að enda þörfin mikil.
Árið 1997 var brugðist við vaxandi biðlistum með áætlanagerð um hvernig mætti eyða biðlistum m.a. með því að byggja við sjúkrahúsið Vog. Áætlunin náði til ársins 2000 og það ár tókst að stytta biðlistana og þurrkuðust þeir út á tímabili út árið. Skortur var á rekstrarfé og starfsfólki fækkaði sem varð til þess að biðlistar lengdust aftur. Í svari ráðherra við fyrirspurn fyrsta flutningsmanns um biðlista á Vogi (588. mál) kemur fram að í mars árið 2020 voru 530 einstaklingar á biðlista eftir innlögn á Vogi og hefur biðlistinn haldist nokkuð stöðugur í þeim fjölda frá árinu 2014. Biðtími er stuttur fyrir þá sem eru að leita sér meðferðar í fyrsta sinn og enginn fyrir unglinga. Iðulega eru þeir á biðlista sem eru ekki að fara í meðferð í fyrsta sinn. Að meðaltali dvelur sjúklingur í um 10 daga en rúm er fyrir 50 sjúklinga auk 11 rúma á ungmennadeild og tekið er á móti sjúklingum alla daga vikunnar.
Í greinargerð um þjónustu SÁÁ sem gefin var út árið 2019 kom fram að 2.317 innlagnir voru á Vog hjá 1.624 einstaklingum sem gerir u.þ.b. 1,4 innlögn á hvern einstakling og álykta má út frá því að það komi til ítrekaðra innlagna hjá sumum einstaklingum. SÁÁ fær ár hvert ríkisframlag til rekstursins og samkvæmt fyrrnefndri greinargerð var heildarkostnaður við rekstur Vogs árið 2019 983 millj. kr. og ríkisframlag rúmar 796 millj. kr. Kostnaður á legudag var 45.575 kr. miðað við 21.582 legudaga á ári.
Áhrif COVID-19 á andlega líðan eru þeim sem glíma við fíkn oft á tíðum erfið. Má því gera ráð fyrir að áhrif faraldursins séu talsverð og að þörf fyrir úrræði hafi aldrei verið meiri en nú.
Meistararitgerð Ara Matthíassonar í heilsuhagfræði „Þjóðfélagsleg byrði af áfengis- og vímuefnaneyslu“ frá 2010 fjallar um þjóðhagslegan kostnað vímuefnavandans og þann ávinning sem felst í því að hjálpa einstaklingi í fíkni- og vímuefnavanda og eiga niðurstöður ritgerðarinnar enn að fullu við.
Afskipti lögregluyfirvalda vegna afbrota, nytjastuldar og eignaspjalla má að einhverju leyti rekja til fólks sem hefur á þeim tíma verið undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Það má því segja að þjóðfélagið, löggæslan, heilbrigðiskerfið og félagsleg úrræði beri umtalsverðan kostnað af þeirri skaðsemi sem áfengi og vímuefni hafa á samfélagið. Kostnaður ríkisins er mun meiri við að hafa sjúkt fólk annaðhvort á stofnunum eða á vergangi en að hjálpa þeim sem eftir hjálpinni sækjast án tafar og stuðla þar með að fullri þátttöku þeirra í samfélaginu sem heilbrigðra einstaklinga. Fíkn í vímuefni er ekki eina vandamálið, spilafíkn, klám- og kynlífsfíkn er talsvert vandamál sem er mismikið rannsakað og vísbendingar eru um að tölvufíkn sé að verða aukið vandamál, einkum hjá ungmennum.
Það er mat flutningsmanna að árangur af greiðu aðgengi að meðferðarúrræðum verði til þess að auðveldara verði að leysa vandamál sem blasa við í þessum efnum.