Ferill 675. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1158 — 675. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur um endurgerð skipsins Maríu Júlíu BA-36.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Telur ráðherra fýsilegt að veita verkefni Hollvinasamtaka um Maríu Júlíu BA-36, sem lýtur að endurgerð og nýju hlutverki skipsins, brautargengi í samstarfi við þau ráðuneyti og/eða undirstofnanir þeirra sem verkefninu tengjast á einn eða annan hátt, m.a. í ljósi þess að María Júlía var fyrsta sérsmíðaða björgunarskip Íslands?
Samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta, nr. 6/2022, sem tók gildi 1. febrúar sl. fer dómsmálaráðuneytið m.a. með málefni tengd leit og björgun. Samkvæmt sama úrskurði eru menningarminjar á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Það verkefni sem hér er spurt um lýtur frekar að menningargildi og varðveislu en björgunarhlutverki skipsins að mati dómsmálaráðuneytisins. Samkvæmt framangreindu þykir dómsmálaráðherra ekki rétt að leiða slíkt verkefni þó að ráðuneytið muni eftir föngum taka þátt verði ákvörðun þess efnis tekin og leidd af þar til bærum aðilum.