Ferill 443. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1159 — 443. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um skerðingar lífeyristekna vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar.
1. Hve margir örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar urðu fyrir skerðingu greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar á tímabilinu 1. apríl til 31. desember 2020 þrátt fyrir að útgreiðsla séreignarsparnaðar á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða VIII í lögum nr. 129/1997 ætti skv. 8. mgr. ákvæðisins ekki að hafa áhrif á bætur?
Séreignarsparnaður hafði áhrif á sérstaka uppbót á lífeyri til framfærslu til lækkunar hjá 207 lífeyrisþegum hjá Tryggingastofnun á umræddu tímabili. Í uppgjöri Tryggingastofnunar á tekjutengdum greiðslum ársins 2020 sem lá fyrir í maí 2021 komu fram tilfelli þar sem lífeyrisþegar urðu fyrir skerðingu í bótaflokknum sérstök uppbót til framfærslu vegna úttektar séreignarsparnaðar. Þetta stafaði af skráningu tekna í skattframtal af hálfu vörsluaðila séreignarsparnaðar á skattframtali en úttektin var skráð sem lífeyrisgreiðslur úr séreignarsjóðum en ekki sem sérstök útgreiðsla séreignarsparnaðar sem hefur ekki áhrif á tekjutengdar bætur. Tryggingastofnun ber að fara eftir skráningu frá Skattinum og hafði því ekki heimild til að breyta skráningu þessara tekjuupplýsinga. Af þessum 207 lífeyrisþegum fengu 154 kröfu frá Tryggingastofnun. Hins vegar voru 53 einstaklingar ekki með neina skuld í uppgjörinu en gætu átt rétt á greiðslum eða auknum greiðslum sérstakrar framfærsluuppbótar ef til kæmu breytingar á skattframtali.
2. Hver er heildarfjárhæð krafna um endurgreiðslu sem Tryggingastofnun sendi örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar á tímabilinu 1. apríl til 31. desember 2020 við uppgjör stofnunarinnar á tekjutengdum greiðslum ársins 2020?
Heildarupphæð krafna þeirra 207 lífeyrisþega sem urðu fyrir lækkun greiðslna vegna úttektar á séreignarsparnaði er 25.449.264 kr. að frádreginni staðgreiðslu skatta. Athygli er vakin á því að um er að ræða samtölu heildarkrafna umræddra lífeyrisþega og oft gætir áhrifa annarra tekna en séreignarsparnaðar við myndun krafna.
3. Hve margir örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar hafa fengið skerðinguna leiðrétta og endurgreiðslukröfu Tryggingastofnunar fellda niður?
Af þeim 207 lífeyrisþegum sem urðu fyrir umræddri lækkun greiðslna hefur Tryggingastofnun fengið upplýsingar um breytt skattframtal frá Skattinum og endurreiknað greiðslur í kjölfarið hjá 51 lífeyrisþega, þar af 41 sem hafði áður fengið kröfu frá Tryggingastofnun. Við endurreikning réttinda ber stofnuninni að miða við þær tekjur lífeyrisþega sem liggja fyrir í kjölfar álagningar skattyfirvalda, sbr. 7. mgr. 16. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar.
4. Hver er heildarfjárhæð leiðréttingar og niðurfellingar á endurgreiðslukröfum sem Tryggingastofnun sendi örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar á tímabilinu 1. apríl til 31. desember 2020?
Kröfur á lífeyrisþega hafa lækkað um 5.485.461 kr. í kjölfar endurreiknings Tryggingastofnunar. Þá hefur stofnunin einnig greitt út inneignir umfram kröfur að upphæð 1.190.621 kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta.
Tryggingastofnun hefur fengið þær upplýsingar að Skatturinn sé að skoða hvort og þá hvernig hægt sé að leiðrétta skattframtöl hjá umræddum hópi og hefur upplýst Skattinn um þá lífeyrisþega sem um er að ræða. Yfirskattanefnd hefur úrskurðað um að Skattinum beri að leiðrétta skattframtal vegna sambærilegs atviks hjá einstaklingi í úrskurði nefndarinnar nr. 60/2022 og þá hefur fjármálaráðuneytið lýst þeirri afstöðu sinni að framtölin beri að leiðrétta, samanber svar við 5. tölul. fyrirspurnar til fjármála- og efnahagsráðherra í máli 444 á 152. löggjafarþingi.
5. Hyggst ráðherra tryggja að sú skerðing greiðslna sem örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar urðu fyrir vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar, þrátt fyrir 8. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VIII í lögum nr. 129/1997, verði leiðrétt að fullu? Ef svo er, hvernig mun ráðherra beita sér fyrir þessu?
Tryggingastofnun hefur með lögum um almannatryggingar verið falin framkvæmd lífeyrisgreiðslna, þ.m.t. endurreikningur lífeyrisgreiðslna. Þegar í lok maí 2021, þegar niðurstöður uppgjörs vegna ársins 2020 lágu fyrir hjá Tryggingastofnun og stofnunin varð vör við að úttekt séreignarsparnaðar hefði hugsanlega ekki verið réttilega færð í skattframtal lífeyrisþega, var þeim 207 lífeyrisþegum sem málið snerti sent bréf þar sem gerð var grein fyrir áhrifum úttektar séreignarsparnaðar á réttindi þeirra og þeim leiðbeint um að óska eftir leiðréttingu á skráningu á skattframtali sínu og samhliða því að hafa samband við vörsluaðila séreignarsparnaðarins. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun sem gerð hefur verið grein fyrir hér að framan leiddi þetta til viðbragða af hálfu fjórðungs þeirra sem urðu fyrir lækkun greiðslna vegna úttektar séreignarsparnaðar. Tryggingastofnun bíður nú eftir niðurstöðu athugunar Skattsins í málinu og hyggst fylgja því eftir.
6. Hvernig hyggst ráðherra koma í veg fyrir sams konar skerðingu greiðslna Tryggingastofnunar vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar á árinu 2021?
Sú lækkun greiðslna frá Tryggingastofnun sem spurt er um stafaði eins og fram hefur komið af því að úttektin var ranglega færð í skattframtal en Tryggingastofnun ber að miða þær tekjur lífeyrisþega sem liggja fyrir í kjölfar álagningar skattyfirvalda, sbr. 7. mgr. 16. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, við endurútreikning. Í því skyni að koma í veg fyrir sams konar villu á árinu 2021 hafði Tryggingastofnun samband við helstu vörsluaðila séreignarsparnaðar vegna þessa máls. Þess er því vænst að vörsluaðilar séreignarsparnaðar hafi tilgreint úttektir viðskiptavina sinna á séreignarsparnaði réttilega og leiðbeint viðskiptavinum sínum þar að lútandi við umsókn um úttekt þannig að minna verði um mistök í skráningu á skattframtöl varðandi úttekt séreignarsparnaðar í ár.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hafði strax samband við fjármálaráðuneytið þegar hinar óréttmætu skerðingar komu í ljós og óskaði eftir liðsinni þess við að þær yrðu leiðréttar. Fjármálaráðuneytið hefur beitt sér fyrir því í samstarfi við Skattinn og Tryggingastofnun með fyrirmælum og leiðbeiningum m.a. til lífeyrissjóða svo að tryggt verði að framkvæmdin á útgreiðslu séreignarsparnaðarins verði hnökralaus.