Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1167  —  680. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um aðför í umgengnismálum.


     1.      Hversu oft á sl. fimm árum hefur umgengni, lögheimili og forsjá verið komið á með aðför skv. VII. og VIII. kafla barnalaga, nr. 76/2003? Óskað er eftir sundurliðun eftir því hvort aðför var beitt til að framfylgja úrskurði um lögheimili, forsjá eða umgengni.
    Ráðuneytið aflaði upplýsinga hjá sýslumannsembættum vegna fyrirspurnarinnar. Á síðastliðnum fimm árum hefur lögheimili verið komið á með aðför skv. VII. og VIII. kafla barnalaga, nr. 76/2003, í tveimur málum hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu en umgengni eða forsjá hefur ekki verið komið á með aðför á sama tímabili. Hjá öðrum embættum hefur umgengni, lögheimili eða forsjá ekki verið komið á með aðför skv. VII. og VIII. kafla barnalaga, nr. 76/2003, síðastliðin fimm ár.

     2.      Í hve mörgum tilvikum, þar sem umgengni, lögheimili eða forsjá var komið á með aðför á sl. fimm árum, hafði því verið borið við að framkvæmdin væri í andstöðu við vilja barnsins sjálfs?

    Samkvæmt upplýsingum frá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu hefur því í tveimur málum verið borið við af hálfu gerðarþola að framkvæmdin hafi verið í andstöðu við vilja barnsins en gerðarbeiðandi hafi borið hinu gagnstæða við. Samkvæmt sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmdin í báðum málum hins vegar verið í samræmi við ákvæði barnalaga. Í ljósi þess að umgengni, lögheimili og forsjá hefur ekki verið komið á með aðför síðastliðin fimm ár hjá öðrum embættum á fyrirspurnin ekki við um önnur embætti.