Ferill 728. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Prentað upp.

Þingskjal 1174  —  728. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um niðurgreiðslu húshitunar.

Frá Sigurði Páli Jónssyni.


     1.      Í hversu mörgum sveitarfélögum er hitaveita?
     2.      Hversu margar íbúðir í þeim hafa ekki aðgang að hitaveitu og fá eigendur þeirra niðurgreiðslu af húshitunarkostnaði? Óskað er eftir upplýsingum um það um hversu mörg heimili er að ræða, tilgreint eftir sveitarfélögum.
     3.      Hversu mörg og hvaða sveitarfélög fá niðurgreiðslur til húshitunar og hversu mörg sveitarfélög og hvaða fá ekki niðurgreiðslur?


Skriflegt svar óskast.