Ferill 693. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1189  —  693. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Evu Sjöfn Helgadóttur um betrun fanga.


     1.      Hvernig er betrunarstefnu fanga framfylgt á Íslandi?
    Samkvæmt 1. gr. laga nr. 15/2016, um fullnustu refsinga, er markmið þeirra m.a. að draga úr líkum á ítrekun brota og stuðla að farsælli betrun og aðlögun dómþola að samfélaginu. Ýmis ákvæði laganna eru til þess fallin að ná þessu markmiði. Lögin kveða jafnframt á um ýmis úrræði fyrir þá sem þurfa að afplána refsingu í fangelsi sem eru til þess fallin að viðhalda tengslum þeirra við samfélagið meðan á afplánun stendur og þannig er reynt að draga úr neikvæðum afleiðingum sem fangelsisvist getur haft og hefur yfirleitt á dómþola. Hér er t.d. átt við vistun í opnum fangelsum þar sem fangar hafa mun meira frelsi en í lokuðum fangelsum, dags- og fjölskylduleyfi, heimild til að stunda nám og/eða vinnu í fangelsi, heimild til að stunda nám eða vinnu utan fangelsis, heimild til að afplána hluta refsingar á áfangaheimili, heimild til að afplána síðasta hluta refsingar heima með ökklaband og veiting reynslulausnar. Þá eru starfandi sálfræðingar, félagsráðgjafar og áfengisráðgjafar hjá Fangelsismálastofnun sem sinna meðferðarvinnu til að draga úr líkum á endurteknum brotum, svo sem sérhæfðri vinnu vegna ofbeldisbrota og kynferðisbrota. Auk þess starfar sérstakt geðheilbrigðisteymi í fangelsunum sem sinnir almennri geðheilbrigðisþjónustu.
    Áhersla er lögð á að stigskipta afplánun svo að fangar aðlagist samfélaginu á ný í skrefum. Einstaklingar fari þannig í lokað fangelsi í byrjun og þaðan yfir í opið fangelsi, svo á áfangaheimili eins og Vernd og síðan heim til sín með ökklaband áður en til reynslulausnar kemur. Með þessu móti er stefnt að því að aðlaga menn smám saman aftur að samfélaginu eftir fangelsisvist og um leið að stytta þann tíma sem menn eru í lokuðu fangelsi þar sem frelsisskerðingin er hvað mest og getur haft óæskilegar afleiðingar í för með sér. Á undanförnum árum hefur sá tími sem menn geta afplánað í opnum fangelsum og utan fangelsa lengst töluvert. Þá hefur fullnusta með samfélagsþjónustu aukist en með því er dómþolum gefið tækifæri til afplánunar refsingar sinnar alfarið utan fangelsanna.

     2.      Hvernig er betrun mæld í réttarkerfinu? Er aðeins miðað við endurkomutíðni?
    Það er eini mælikvarðinn sem Fangelsismálastofnun hefur notað til að mæla slíkt.

     3.      Hver hefur endurkomutíðni fanga verið sl. tíu ár?
    Frá árinu 2010 hefur Fangelsismálastofnun mælt endurkomutíðni fanga sem losna úr fangelsi og hafa hlotið nýjan fangelsisdóm sem borist hefur stofnuninni til fullnustu innan tveggja ára með brotum frömdum eftir að þeir losnuðu úr fangelsi.

Endurkomur 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Hlutfall endurkoma 26% 23% 18% 20% 20% 23% 20% 14% 21%
    
    Ekki er búið að vinna úr tölum varðandi fanga eftir árið 2018.

     4.      Hversu mörg stöðugildi sálfræðinga eða annarra meðferðaraðila eru í fangelsum landsins? Óskað er eftir sundurliðun eftir fangelsum.

    Á meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar starfa níu starfsmenn sem sinna fjölbreyttu meðferðarstarfi. Meðferðarsvið vinnur sem teymi að þeim verkefnum sem sinnt er og snýr vinna þeirra auk lokuðu fangelsanna að þeim sem eru í opnum úrræðum, undir rafrænu eftirliti og þeim sem sæta reynslulausnareftirliti. Markmið vinnunnar á meðferðarsviði er að draga úr líkum á frekari brotum og að afplánun sem og aðlögun að samfélaginu sé eins örugg og hægt er.
    Á sviðinu eru níu starfsmenn í alls sjö stöðugildum og sinna þrír sálfræðingar 2,3 stöðugildum. Þeir sinna öllum fangelsunum en skilgreint vinnuframlag á Litla-Hrauni er 100% og 50–70% á Hólmsheiði. Sálfræðingarnir hafa fasta viðveru í opnu fangelsunum og einnig er gert ráð fyrir aðkomu þeirra þar eftir þörfum og skilgreindum verkefnum. Þrír félagsráðgjafar í alls 2,7 stöðugildum sinna starfi í öllum fangelsum en vinnuframlag á Litla-Hrauni er 100%, 20–40% á Hólmsheiði og 60–80% í opnum fangelsum. Tveir meðferðarráðgjafar í alls 1,5 stöðugildum starfa og hafa fasta viðveru nánast eingöngu á Litla-Hrauni. Einn sviðsstjóri er í hálfu stöðugildi.
    Auk meðferðarteymisins starfar geðheilsuteymi fanga í fangelsunum. Teymið sinnir geðheilbrigðisþjónustu eftir þörfum fyrir alla þá sem eru í fangelsum. Innan þess teymis eru starfandi geðhjúkrunarfræðingar, sálfræðingar og geðlæknar en vinna þeirra fer fram undir umsjón og á ábyrgð heilbrigðisráðuneytisins.