Ferill 582. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1202 — 582. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, lögum um virðisaukaskatt og lögum um tekjuskatt (umhverfisvæn orkuöflun).
(Eftir 2. umræðu, 9. júní.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002.
1. gr.
a. Í stað orðsins „vistvænni“ í 5. mgr. kemur: umhverfisvænni.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Með búnaði til umhverfisvænnar orkuöflunar er í lögum þessum átt við allan þann tækjabúnað sem leiðir til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun, þ.m.t. nauðsynlegan fylgibúnað fyrir virkni hans, að undanskildum breytingum á hitakerfum húsnæðis innan dyra.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
a. Við 1. málsl. bætist: sem og til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun.
b. 5. tölul. orðast svo: Til íbúðareigenda sem fjárfesta í og tengja tækjabúnað sem leiðir til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun.
6. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
7. gr.
Heimilt er að endurgreiða eigendum íbúðarhúsnæðis virðisaukaskatt vegna kaupa á varmadælu og öðrum búnaði sem leiðir til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun á íbúðarhúsnæði. Heimildin gildir ekki um tækjabúnað vegna breytinga á hitakerfum íbúðarhúsnæðis innan dyra. Hafi umsækjandi um endurgreiðslu samkvæmt ákvæði þessu fengið styrkveitingu á grundvelli laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002, skal fylgja með umsókn um endurgreiðslu til Skattsins staðfesting þeirrar styrkveitingar frá Orkustofnun.
III. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
8. gr.
9. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Notendur sem fyrir gildistöku þessara laga hafa sett upp og tengt búnað til umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða bættrar orkunýtingar við húshitun og ekki hlotið til þess styrk skulu eiga rétt á styrk í samræmi við ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002, eins og ákvæðið hljóðaði áður en lög þessi tóku gildi enda óski þeir sérstaklega eftir því og leggi fram raunhæf markmið um orkusparnað að mati Orkustofnunar.