Ferill 731. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1232  —  731. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um strandsvæðisskipulag og burðarþolsmat á Vestfjörðum og Austfjörðum.

Frá Teiti Birni Einarssyni.


    Mun ráðherra beita sér fyrir því að strandsvæðisskipulag fyrir Vestfirði og Austfirði verði ekki staðfest fyrr en viðkomandi svæðisráð hefur fjallað um skipulag haf- og strandsvæðanna út frá forsendum burðarþolsmats og mótað tillögur um skipulag svæðanna sem byggðar eru á veigamiklum vísindalegum og lögbundnum rannsóknum um vistkerfið? Ef svo er, þá hvernig?


Skriflegt svar óskast.