Ferill 733. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1234  —  733. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um skýrslu OECD um samkeppnismat íslenskrar ferðaþjónustu og byggingariðnaðar.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hefur verið brugðist við tillögum sem gerðar voru í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um samkeppnismat og ef svo er, hvernig?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að frekar verði brugðist við tillögunum og ef svo er, hvernig?


Skriflegt svar óskast.