Ferill 569. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1251 — 569. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 (framlenging bráðabirgðaákvæða).
Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um lagafrumvarp fjármálaráðherra um framlengingu bráðabirgðaákvæða laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009. Annar minni hluti telur mikilvægt að málið nái fram að ganga en gerir alvarlegar athugasemdir við tiltekin atriði í frumvarpinu.
Frádráttarhlutfall til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, sem undirritaður var 28. nóvember 2021, er fyrsta áhersla í málaflokknum Iðnaður og nýsköpun svohljóðandi: „Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar verða framlengdar og farið yfir framkvæmd þeirra og eftirlit. Tímabundin hækkun endurgreiðsluhlutfalls vegna kostnaðar sem fellur til við rannsóknir og þróun verður gerð varanleg.“
Með frumvarpi þessu hefur ríkisstjórnin hins vegar lagt til að hætt verði við að gera ákvæðið varanlegt. Þess í stað verði ákvæðið framlengt tímabundið til ársins 2023 og frádráttur vegna rannsóknar og þróunar lækkaður úr 35% í 30% fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Með frumvarpinu má því segja að ríkisstjórnin svíki hálfs árs gamalt loforð sitt gagnvart nýsköpunargeiranum og geri þar með atlögu að rekstrargrundvelli fjölmargra nýsköpunarfyrirtækja, sem höfðu þegar gert áætlanir sínar á grundvelli loforðanna frá því í nóvember. Rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja getur verið afar ófyrirsjáanlegt og er háð mörgum óvissuþáttum sem fyrirtæki þurfa að huga vel að í áætlanagerð sinni. Það er ólíðandi að einn stærsti óvissuþátturinn í rekstri slíkra fyrirtækja séu dyntir í ríkisstjórninni. Óstöðugleiki og handahófskenndar breytingar á löggjöf er varða starfsemi nýsköpunarfyrirtækja geta verið verulega skaðlegar fyrir fyrirsjáanleika og áreiðanleika í áætlanagerð. Fyrirtæki sem verða fyrir lækkun á endurgreiðsluhlutfalli yrðu líklega að segja upp starfsfólki, jafnvel draga saman seglin og hætta við verkefni sem þegar væru komin af stað ef frumvarpið næði fram að ganga óbreytt. Það er því fagnaðarefni að meiri hlutinn hafi fallist á að gera breytingartillögu Gísla Rafns Ólafssonar, þingmanns Pírata, að sinni og færa hlutfallið aftur upp í 35% eins og ríkisstjórnin lofaði. Að því sögðu var það óforsvaranlegt af fjármálaráðherra að reyna að ganga jafn kröftuglega á bak orða sinna og til stóð með framlagningu frumvarpsins.
Rökstuðningur fyrir lækkun á endurgreiðsluhlutfallinu er takmarkaður í greinargerð með frumvarpinu. Þar segir einfaldlega að ívilnanir nái ekki eins langt og áður en það sé gert til að áætlaður kostnaður sé í samræmi við fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 og til að mæta kostnaði vegna hugsanlegrar fjölgunar umsókna nýsköpunarfyrirtækja til Rannís. Þannig var ráðherra í raun búinn að ákveða að ganga á bak orða sinna við gerð fjármálaáætlunar, án samráðs við fyrirtækin sem þó höfðu réttmætar væntingar um annað.
Stefnumótun.
Í áliti meiri hluta nefndarinnar er fjallað um heildstæða stefnumótun í greininni til framtíðar, m.a. á grundvelli greiningar sem OECD vinnur nú að hér á landi. Þar að auki er stefnt að heildarúttekt á árangri verkefnisins um endurgreiðslur rannsóknar og þróunar. Annar minni hluti tekur undir mikilvægi þess að ráðast í heildstæða stefnumótun í greininni en telur rétt að viðhalda óbreyttum hlutföllum, sem meiri hlutinn hefur fallist á, en einnig að viðhalda óbreyttu endurgreiðsluþaki þar til sú endurskoðun hefur átt sér stað og nýtt fyrirkomulag endurgreiðslna fest í lög. Við slíka endurskoðun er einnig mikilvægt að líta til alvarlegra athugasemda sem Skatturinn hefur gert varðandi mögulega misnotkun á kerfinu þar sem borið hefur á því að fyrirtæki hafi rukkað fyrir verkefni sem ekki geta talist rannsóknir og þróun, mögulega vegna vanþekkingar eða af ásettu ráði. Skatturinn hefur einnig bent á aðrar glufur sem loka þurfi fyrir til þess að úrræðið nýtist með réttum hætti. Mat 2. minni hluta er að betur hefði farið á því að bæta úr þeim annmörkum sem framkvæmdaraðilar hafa bent á að séu á lögunum til þess að ná hagræðingarmarkmiðum sem ráðherra vísar í að liggi að baki þessu frumvarpi. Þannig mætti spara án þess að grafa undan fyrirsjáanleika og rekstrarumhverfi stærri nýsköpunarfyrirtækja. Við endurskoðun regluverks er því mikilvægt að sporna við misnotkun kerfisins og ná þannig fram hagræðingu og koma í veg fyrir óhóflegar endurgreiðslur frekar en að innleiða lækkanir gagnvart fyrirtækjum sem höfðu réttmætar væntingar um að yrði ekki af.
Hámark greiðslna.
Með frumvarpinu er lagt til að hámarkskostnaður vegna frádráttar frá álögðum tekjuskatti færist úr 1.100 millj. kr. í 1.000 millj. kr. Er nauðsyn lækkunarinnar ekki rökstudd að neinu öðru leyti en með áðurgreindri tilvísun í fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027. Meiri hluti nefndarinnar leggur til að hámark greiðslnanna verði áfram 1.000 millj. kr. eins og lagt er til í frumvarpinu með vísan til sjónarmiða um „aukna kröfu um ábyrga stjórn ríkisfjármála í ljósi óvissu um efnahagsþætti, svo sem verðbólgu og vaxtahækkanir“. Það er engu að síður áréttað að ívilnanir sem felast í bráðabirgðaákvæðum laganna hafi skipt sköpum fyrir nýsköpunarfyrirtæki og að það sé mikilvægt að samkeppnishæfni íslenskra nýsköpunarfyrirtækja sé áfram tryggð eftir því sem dregur úr efnahagslegum áhrifum faraldursins hér á landi og á heimsvísu. Ekki verður annað séð en meiri hluti nefndarinnar viðurkenni mikilvægi styrkjanna fyrir samkeppnishæfni íslenskra nýsköpunarfyrirtækja, og efnahagslegt mikilvægi þeirra, en kjósi þó að lækka hámark þeirra með vísan til almennrar óvissu.
Annar minni hluti telur hvergi hafa komið fram sannfærandi rök fyrir því af hverju nauðsynlegt sé að lækka hámark greiðslnanna og leggur því til að hámark greiðslna verði áfram 1.100 millj. kr. eins og verið hefur í gildandi lögum.
Annar minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Í stað upphæðarinnar „1.000.000.000 kr.“ í b-lið 2. gr. frumvarpsins komi: 1.100.000.000 kr.
Alþingi, 13. júní 2022.
| Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, frsm. | Ásthildur Lóa Þórsdóttir. |