Ferill 679. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1266  —  679. mál.
2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (fjöldatakmörkun rafmagnsbifreiða o.fl.).

Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Annar minni hluti styður efni frumvarpsins og lítur á skattaívilnanir vegna rafmagnsbíla sem eitt af mörgum mikilvægum verkfærum til að hraða útfösun jarðefnaeldsneytis þótt slíkur stuðningur renni að mestu til efri tekjuhópa.
    Til að hraða rafbílavæðingunni skiptir miklu að liðka fyrir rafvæðingu bílaleiguflotans en bílaleigufyrirtæki hafa að jafnaði keypt hátt í helming allra nýskráðra bíla á Íslandi undanfarin ár, bílarnir enda á eftirmarkaði og gefur augaleið að kauphegðun fyrirtækjanna hefur gríðarleg áhrif á samsetningu bílaflotans í heild. Þá hefur Samfylkingin kallað eftir því að tekin verði stefnumarkandi ákvörðun um að hætta nýskráningu fólksbíla sem ganga fyrir bensíni og dísilolíu eigi síðar en árið 2025 og ýtt verði undir uppbyggingu hleðslustöðva til samræmis við það.
    Til að draga úr losun frá vegasamgöngum skiptir þó einna mestu að liðka fyrir fjölbreyttum ferðavenjum, draga úr bílaumferð almennt, þétta byggð og efla almenningssamgöngur. Í þessu samhengi vill 2. minni hluti brýna fyrir stjórnarmeirihlutanum að virða samning um eflingu almenningssamgangna sem ríkið og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu gerðu með sér árið 2012 en uppsafnaðar vanefndir ríkisins á þeim samningi nema um 1,5 milljörðum kr. Í stað þessarar vanfjármögnunar gagnvart almenningssamgöngum gætu Íslendingar tekið sér ríkisstjórn jafnaðarmanna, frjálslyndra og græningja í Þýskalandi til fyrirmyndar sem brást við hækkandi eldsneytiskostnaði vegna Úkraínustríðsins með því að niðurgreiða almenningssamgöngur og veita stórfelldan afslátt af fargjöldum í lestir og strætisvagna.

Alþingi 14. júní 2022.

Jóhann Páll Jóhannsson.