Ferill 738. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1284 — 738. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um lögheimilisskilyrði laga um gjaldþrotaskipti.
Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.
1. Hver eru rökin fyrir því að einstaklingar þurfi að hafa lögheimili á Íslandi til að geta leitað gjaldþrotaskipta á eigin búi, sbr. 4. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl.?
2. Telur ráðherra umrætt skilyrði samræmast meginreglum EES-samningsins um frjálsa för vinnuafls og samræmingu á sameiginlega markaðnum?
3. Telur ráðherra koma til greina að leggja til breytingar á lögunum svo að Íslendingar búsettir erlendis geti leitað gjaldþrotaskipta á Íslandi?
Skriflegt svar óskast.