Ferill 739. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1286  —  739. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um lögheimilisskilyrði laga um greiðsluaðlögun.

Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.


     1.      Hver eru rökin fyrir því að einstaklingar þurfi að hafa lögheimili á Íslandi til að geta leitað greiðsluaðlögunar samkvæmt lögum um greiðsluaðlögun, nr. 101/2010?
     2.      Telur ráðherra umrætt skilyrði samræmast meginreglum EES-samningsins um frjálsa för vinnuafls og samræmingu á sameiginlega markaðnum?
     3.      Telur ráðherra koma til greina að leggja til breytingar á lögunum svo að Íslendingar sem búsettir eru erlendis geti leitað greiðsluaðlögunar á Íslandi?


Skriflegt svar óskast.