Ferill 690. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Prentað upp.

Þingskjal 1291  —  690. mál.
Viðbót. Undirskrift.

2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs (lágmarkstryggingavernd, tilgreind séreign o.fl.).

Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Annar minni hluti styður þá hækkun lágmarksiðgjalds og lágmarkstryggingaverndar sem mælt er fyrir um í þessu frumvarpi en geldur varhug við hvers kyns lagabreytingum sem veikja samtryggingarmátt lífeyrissjóðakerfisins. Þá telur 2. minni hluti að sú stefna ríkisstjórnarinnar að veikja hefðbundin húsnæðisstuðningskerfi en heimila þess í stað skattfrjálsa ráðstöfun lífeyrissparnaðar inn á húsnæðislán hafi ekki reynst vel enda þjóni hún fyrst og fremst tekjuhæstu hópunum hér á landi.
    Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hvetja Alþingi eindregið til að samþykkja frumvarpið en BSRB og Kennarasamband Íslands mótmæla ýmsum meginatriðum þess harðlega. BSRB telur að frumvarpið skapi ójafnræði meðal lífeyrisþega og dragi úr vægi samtryggingarinnar. Kennarasambandið gengur svo langt að segja frumvarpið „hugsanlega eina alvarlegustu aðför að jöfnuði í íslensku samfélagi sem gerð hefur verið“. Hliðstæð gagnrýni kemur fram í umsögnum Brúar – lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar en þar er varað við því að með frumvarpinu sé aukið á aðstöðumun tekjuhárra og tekjulágra.
    Annar minni hluti styður þá breytingu sem lögð er til í frumvarpinu á samspili lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum og greiðslna úr almannatryggingakerfinu. Hins vegar þarfnast skilin milli gamla skerðingarfyrirkomulagsins og þess nýja frekari skoðunar. Í 13. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að hjá fólki sem þegar hefur safnað séreign af iðgjaldi í lífeyrissjóð sem býður upp á slíkt skuli séreignin ekki koma til lækkunar á ellilífeyri, tekjutryggingu og ráðstöfunarfé ef einstaklingurinn hefur lífeyristöku fyrir 1. janúar 2023. Hefji einstaklingur lífeyristöku degi síðar skellur hið breytta fyrirkomulag í samspili lífeyrisgreiðslna og greiðslna úr almannatryggingakerfinu á af fullum þunga gagnvart allri þeirri séreign sem viðkomandi hafði safnað. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni telur að í þessu kunni að felast ólögmæt afturvirk skerðing á lífeyrisréttindum sem kalli á málarekstur gegn ríkinu. Ekki var fjallað um þessi álitaefni við meðferð frumvarpsins í efnahags- og viðskiptanefnd.
    Vandséð er að frumvarpið samrýmist yfirlýstri stefnu stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um að jafna lífeyriskjör á vinnumarkaði, einfalda kerfið og draga úr innbyggðri mismunun í því. Ekki hefur farið fram ítarleg greining á áhrifum þeirra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu eftir kyni, lífslíkum og ævitekjum. Þá liggur ekki fyrir kostnaðarmat vegna þeirrar útvíkkunar á úrræðum um skattfrjálsa úttekt lífeyrissparnaðar til kaupa á húsnæði sem frumvarpið felur í sér, en vísast í því samhengi til skyldna sem hvíla á löggjafanum og stjórnvöldum samkvæmt 129. gr. laga um sveitarfélög, nr. 138/2011. Loks er ljóst að ekki hefur verið brugðist við fjölmörgum tæknilegum athugasemdum sem komið hafa fram á ýmis ákvæði frumvarpsins.
    Að öllu þessu virtu telur 2. minni hluti að frumvarpið þarfnist frekari yfirlegu og umræðu og mun ekki styðja það.

Alþingi, 14. júní 2022.

Jóhann Páll Jóhannsson,
frsm.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.