Ferill 383. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1326 — 383. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um aðgerðir á ábyrgð ráðuneytisins gegn ofbeldi og afleiðingum þess.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvað hefur verið gert til að hrinda í framkvæmd þeim aðgerðum sem eru á ábyrgð ráðuneytisins í þingsályktun nr. 35/149, um áætlun fyrir árin 2019–2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess? Svar óskast sundurliðað eftir aðgerðum og árum.
2. Hvaða fjármunum hefur verið varið til þeirra aðgerða? Svar óskast sundurliðað eftir aðgerðum og árum.
Hér er svarað um framkvæmd sjö aðgerða sem eru samkvæmt þingsályktun nr. 35/149 á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytisins (nú mennta- og barnamálaráðuneytisins). Fjallað er um hverja aðgerð fyrir sig og síðan gerð grein fyrir áföllnum kostnaði.
A.1. Fræðsla um ofbeldi til þeirra sem vinna með börnum í skóla-, íþrótta- og æskulýðsstarfi.
a. Fræðsla um ofbeldi til þeirra sem vinna með börnum í skólum.
Gert hefur verið samkomulag um nýtingar- og þýðingarheimild á stafrænu fræðslu- og námsefni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla sem þróað hefur verið af norsku menntamálastofnuninni í samráði við barna-, æskulýðs- og fjölskyldustofnun Noregs og þarlent embætti landlæknis, www.jegvet.no/. Unnið er að þýðingu og talsetningu á vefnum sem verður aðgengilegur á vef Menntamálastofnunar. Efnið kemur til móts við þörf á fræðslu um ofbeldi í víðum skilningi og miðlun hennar.
Í október sl. var opnaður safnvefur stoppofbeldi.namsefni.is/ með yfirliti yfir allt náms- og fræðsluefni. Um er að ræða vefsvæði með hugmyndum að fræðsluefni fyrir börn, foreldra og starfsfólk leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Þar verða verklagsreglur um tilkynningarskyldu starfsfólks skóla gerðar aðgengilegar með betri hætti en verið hefur. Einnig verða þar slóðir inn á verklag sem þróað hefur verið í nokkrum sveitarfélögum vegna gruns um ofbeldi, vanrækslu eða áhættuhegðun barna, fyrir önnur sveitarfélög og skóla að nýta sér.
Handbók um ofbeldi gegn börnum hefur verið uppfærð og endurskoðuð í Menntamálastofnun. Skrifaðir voru nýir kaflar m.a. um stafrænt ofbeldi og áreiti, unnin ný forsíða o.fl.
mms.is/frettir/ny-utgafa-af-handbokinni-ofbeldi-gegn-bornum-hlutverk-skola
Sérfræðingar vinna að því að uppfæra og semja nýtt fræðsluefni fyrir framhaldsskólastigið og er því ritstýrt í Menntamálastofnun.
Verið er að þýða skoskan bækling fyrir starfsfólk skóla í samvinnu Menntamálastofnunar og Reykjavíkurborgar um viðbrögð og forvarnir sem tengjast skaðlegu kynferðislegu atferli. Í bæklingnum verða viðmiðunarreglur og greinandi tæki.
Í samvinnu við Eitt líf og landlæknisembættið er Menntamálastofnun að gefa út tvær bækur. Annars vegar frumsamið efni fyrir nemendur sem tekur á ýmsum þáttum, svo sem sjálfsmynd, neyslu, áhættuhegðun o.s.frv. Í samvinnu við sömu aðila er unnið að þýðingu á bandarísku gagnreyndu kennsluefni í geðrækt fyrir elsta stig grunnskóla www.guilford.com/books/DBT-Skills-in-Schools/Mazza-Dexter-Mazza-Miller-Rathus/9781462525591
Ég og sjálfsmyndin er bók fyrir efra miðstig grunnskóla sem kemur út hjá Menntamálastofnun innan tíðar. Þar er kafli sem tekur á kynfræðslu og heilbrigði.
Þá er Menntamálastofnun að endurgera og endurskoða efnið Kynlíf – stelpur og Kynlíf – strákar sem var gefið út í tímaritsformi.
Bréf dags. 28. september 2021 var sent til skóla frá mennta- og menningarmálaráðuneyti þar sem áréttuð er tilkynningarskylda starfsfólks skóla á grundvelli barnaverndarlaga og vakin athygli á gildandi verklagsreglum um tilkynningarskyldu starfsmanna leik- og grunnskóla. Einnig var vakin athygli á skyldu skóla til að hafa áætlun um framkvæmd tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum, um það hvernig þeir bregðast við tilvikum um einelti, annað ofbeldi og félagslega einangrun og minnt á rafræna handbók fyrir starfsfólk skóla um ofbeldi gegn börnum og hlutverk skóla en bókin, sem gefin var út 2014, verður uppfærð.
Kostnaður: árið 2021 4 millj. kr., árið 2022 4 millj. kr.
b. Fræðsla um ofbeldi til þeirra sem vinna með börnum í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs var stofnað með lögum nr. 45/2019. Markmið laganna er að íþrótta- og æskulýðsstarf fari fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir eða æskulýðsstarf. Hlutverk samskiptaráðgjafa er m.a. að bæta umgjörð samtaka og félaga, aðstoða við gerð viðbragðsáætlana, samræma verkferla og veita ráðgjöf. Nú þegar er ýmis fræðsla fyrir íþrótta- og æskulýðsfélög um ofbeldi og verkefni samskiptaráðgjafans er m.a. að samræma fræðslu á vettvangi til þess að efla gæði starfsins og að tryggja enn frekar öryggi iðkenda og er sú vinna hafin í samstarfi við ráðuneytið.
Fræðsla um þessi málefni hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) er margþætt. ÍSÍ stendur fyrir hádegisfundum, málstofum og ráðstefnum þar sem sérfræðingar á þessum sviðum hafa verið með erindi. Viðburðirnir eru teknir upp og þeir gerðir aðgengilegir á Vimeo-síðu ÍSÍ. ÍSÍ hefur gefið út bæklinga um eineltismál, forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi og áreiti og þá hefur ÍSÍ yfirfarið og einfaldað siðareglur sínar og hegðunarviðmið. Allri íþróttahreyfingunni stendur til boða að nýta sér þessa vinnu og gera siðareglurnar og hegðunarviðmiðin að sínum. Þá sér ÍSÍ um almenna hluta þjálfaramenntunar fyrir íþróttahreyfinguna þar sem strax á fyrsta stigi (sem flestir fara í gegnum) er farið yfir þessa málaflokka. Í fyrirmyndarfélags- og fyrirmyndarhéraðsverkefnunum þurfa siðareglur að vera til staðar ásamt forvarnarstefnum í eineltismálum og kynferðisofbeldismálum.
Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands. Öll verkefni Æskulýðsvettvangsins snúa að einhverjum hætti að því að auka fræðslu, forvarnir og vitundarvakningu í samfélaginu um mismunandi birtingarmyndir ofbeldis gegn börnum og ungmennum í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Æskulýðsvettvangurinn fær árlega fé af safnliðum ráðuneytisins til reksturs, alls 6,8 millj. kr. fyrir árið 2021.
Helstu fræðsluverkefni:
Námskeiðið Verndum þau.
Æskulýðsvettvangurinn gerir kröfu um að allir starfsmenn og sjálfboðaliðar innan félagasamtaka Æskulýðsvettvangsins og aðildarfélaga þeirra sæki námskeiðið og geta félögin fengið námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Á hverju ári taka nokkur hundruð einstaklingar námskeiðið.
Nánari upplýsingar: aev.is/namskeid/verndum-thau
Netnámskeið í barnavernd.
Í september 2019 tók Æskulýðsvettvangurinn í notkun netnámskeið í barnavernd fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða sem starfa með börnum og ungmennum í íþrótta- og æskulýðsstarfi á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir; að sporna gegn því að slíkt komi upp í íþrótta- og æskulýðsstarfi og auðvelda börnum og ungmennum að fá úrlausn slíkra mála þegar þau koma upp.
Námskeiðið er ókeypis. Á rúmu ári hafa nokkur hundruð einstaklingar um land allt tekið námskeiðið. Mikil aukning hefur verið á þátttöku á síðustu mánuðum sem má meðal annars rekja til stöðunnar í samfélaginu. Unnið er að því að setja námskeiðið upp á ensku.
Nánari upplýsingar: namskeid.aev.is/
Námskeið um einelti í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Æskulýðsvettvangurinn stendur fyrir námskeiði um einelti í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Nánari upplýsingar: aev.is/namskeid/einelti-i-ithrotta-og-aeskulydsstarfi
Námskeið um hatursorðræðu.
Æskulýðsvettvangurinn stendur fyrir námskeiði um hatursorðræðu í íslensku samfélagi. Nánari upplýsingar: aev.is/namskeid/hatursordraeda
Vitundarvakning um neteinelti.
Í nóvember 2020 fór af stað vitundarvakning um neteinelti á meðal barna og ungmenna hjá Æskulýðsvettvanginum. Hluti af vitundarvakningunni er ný fræðslu- og forvarnarsíða samtakanna með mikilvægum upplýsingum um neteinelti.
Nánari upplýsingar: aev.is/neteinelti
Kostnaður: Samskiptaráðgjafi, 12 millj. kr. á ári. Ráðuneytið er með rekstrarsamninga við ÍSÍ og Æskulýðsvettvanginn. Samkvæmt samningi ber félögunum að standa fyrir fræðslu og gert er ráð fyrir kostnaði vegna þess í rekstrarframlagi.
A.2. Þekking á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins verði efld og hann verði grundvöllur í starfi með börnum.
Vakin er athygli á því að árið 2021 var stefna um barnvænt Ísland samþykkt í ríkisstjórn sem fullfjármögnuð stefna með samþykki þáverandi ráðherra. Alþingi samþykkti vorið 2021 þingsályktun um barnvænt Ísland – framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, nr. 28/2021 með sérstakri aðgerð um réttindaskóla á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Efling réttindaskóla er hluti af samþykktri stefnu um barnvænt Ísland sem staðfest var af Alþingi vorið 2021 og er einnig hluti aðgerða í tengslum við menntastefnu 2030. Viðræður eru í gangi um þriggja ára samning við UNICEF um eflingu starfsins á öllum skólastigum og í frístundastarfi. Gert er ráð fyrir að samningurinn verði undirritaður samhliða undirritun samnings um Barnvæn sveitarfélög vorið 2022 og gert er ráð fyrir 20 millj. kr. á ári (alls 60 millj. kr. á samningstímabilinu 2022–2024) vegna þessa. Þetta er hluti af stefnu um barnvænt Ísland og aðgerð 8 í fyrstu aðgerðaáætlun menntastefnu 2021–2024: Raddir unga fólksins – virkt nemendalýðræði á öllum skólastigum.
UNICEF á Íslandi hóf árið 2015 undirbúning að tilraunaverkefni til að innleiða réttindaskóla UNICEF hér á landi. Ráðuneytið veitti UNICEF styrk strax árið 2016 til að styðja við innleiðingu á tilraunaverkefni um réttindaskóla UNICEF. Í kjölfar tilraunaverkefnis hefur UNICEF á Íslandi haldið áfram að þróa verkefnið og sníða að íslenskum aðstæðum, m.a. með því að hafa frístundaheimili og félagsmiðstöðvar með í verkefninu. Ráðuneytið hefur flest árin síðan styrkt UNICEF til frekari þróunar og innleiðingar á réttindaskólaverkefninu inn í menntakerfið eða til skilgreindra verkefna við innleiðinguna. Réttindaskólaverkefnið gengur út á að skapa lýðræðislegt umhverfi sem styður við þá ferla sem þegar eru til staðar innan skóla- og frístundastarfs, sem byggjast m.a. á lögum um grunnskóla, aðalnámskrá, skólanámskrá, stefnumótun í æskulýðsmálum, skóla- og jafnréttisstefnum. Réttindaskólaverkefnið er lykilverkefni skólakerfisins til að efla og dýpka lýðræði- og mannréttindafræðslu í samræmi við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og búa börn undir að verða virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi. Réttindaskólinn er hugmyndafræði fyrir skóla- og frístundastarf sem tekur mið af sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og miðar að því að auka virðingu, vernd og innleiðingu mannréttinda. Skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar sem vinna eftir líkaninu leggja Barnasáttmálann til grundvallar í öllu starfi sínu, skipulagningu, stefnumótun og starfsháttum. Áhersla er lögð á að skapa umhverfi sem byggist á þátttöku, jafnrétti og virðingu, þar sem réttindaskóla-verkefnið styður við áherslur í aðalnámskrá; opinber gæðaviðmið fyrir frístundaheimili; aðgerð 8 í menntastefnu stjórnvalda, Raddir unga fólksins – virkt nemendalýðræði á öllum skólastigum og stefnu um barnvænt Ísland. UNICEF hefur annast umsýslu Réttindaskóla UNICEF hér á landi allt frá því að sett var af stað tilraunaverkefni árið 2015 sem ráðuneytið styrkti árið 2016.
Kostnaður: árið 2019 5 millj. kr., árið 2020 7,5 millj. kr., árið 2021 5 millj. kr., árið 2022 20 millj. kr. áætlað með samningi mennta- og barnamálaráðuneytisins við UNICEF.
A.3. Gæðakröfur og vottun um fyrirmyndarstarf í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Hlutverk samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs (sbr. lög nr. 45/2019) er m.a. að bæta umgjörð samtaka og félaga, aðstoða við gerð viðbragðsáætlana, samræma verkferla og veita ráðgjöf. Nú þegar eru til staðar gæðakröfur og vottun um fyrirmyndarstarf í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Samskiptaráðgjafi stendur fyrir kynningarstarfi víðs vegar um land þar sem kynnt verður:
– starf samskiptaráðgjafa,
– öflun viðeigandi upplýsinga úr sakaskrá,
– vinna við samræmingu viðbragðsáætlana vegna atvika og misgerða.
Samkvæmt íþróttalögum, nr. 64/1998, og æskulýðslögum, nr. 70/2007, er óheimilt að ráða einstaklinga, sem hlotið hafa refsidóm vegna ofbeldisbrota og ávana- og fíkniefnabrota á síðastliðnum fimm árum, til starfa með börnum og ungmennum. Þá er einnig óheimilt að ráða til starfa einstaklinga sem hlotið hafa refsidóm vegna kynferðisbrota (ótímabundið) til starfa með börnum og ungmennum.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur staðið fyrir gæðaverkefni fyrir íþróttafélög frá árinu 2003 og síðar íþróttahéruð frá 2015. Verkefnið gengur út á að félögin/héruðin uppfylli ákveðin skilyrði um starfsemina og eru þau skilyrði 20 talsins. Meðal annars er gerð krafa um að hjá félaginu sé:
– stefna í fræðslu- og forvarnarmálum en þar eru m.a. gerðar kröfur um stefnu er varðar einelti og kynferðislegt ofbeldi,
– stefna í jafnréttismálum og í því samhengi er gerð sú krafa frá árinu 2019 að fyrirmyndarfélög samþykki jafnréttisáætlun ÍSÍ og Jafnréttisstofu sem var unnin árið 2018 sem samstarfsverkefni í kjölfar #ég líka/#me too,
– gerð krafa um menntun íþróttaþjálfara og þar ber að nefna að í þjálfaramenntun ÍSÍ er m.a. efni um einelti og kynferðislegt ofbeldi,
– gerð krafa um samþykktar siðareglur.
Kröfur til fyrirmyndarhéraða eru að stórum hluta þær sömu eða þar sem þær eiga við.
Æskulýðsvettvangurinn, sem er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands, hefur staðið fyrir margvíslegum forvarnaverkefnum. Meðal efnis eru siðareglur og viðbragðsáætlun sem aðildarfélög starfa eftir. Nánari upplýsingar: aev.is/verkfaerakistan/sidareglur og aev.is/verkfaerakistan
Kostnaður: Þessi aðgerð er hluti af þeim verkefnum sem Æskulýðsvettvangurinn og íþróttahreyfingin sinna samkvæmt samningi við ráðuneytið. Kostnaður við þau er ekki aðgreindur.
A.4. Fagráð eineltismála fyrir öll skólastig og íþrótta- og æskulýðsstarf.
Fagráð eineltismála fyrir grunn- og framhaldsskólastig er nú þegar starfandi. Hlutverk ráðsins er að veita skólasamfélagi grunn- og framhaldsskóla almenna ráðgjöf, leiðbeiningar og upplýsingar auk þess sem hægt er að vísa eineltismálum til fagráðsins ef ekki tekst að finna fullnægjandi lausn á eineltismálum innan skóla eða sveitarfélags eða vegna meints aðgerðaleysis sömu aðila. Menntamálastofnun ber ábyrgð á starfsemi og kostnaði fagráðsins en í því sitja sérfræðingar í eineltismálum, þar á meðal samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs. Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs var stofnaður með lögum nr. 45/2019 og er markmið laganna að íþrótta- og æskulýðsstarf fari fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir eða æskulýðsstarf. Hlutverk samskiptaráðgjafa er m.a. að bæta umgjörð samtaka og félaga, aðstoða við gerð viðbragðsáætlana, samræma verkferla og veita ráðgjöf. Nú þegar er ýmis fræðsla fyrir íþrótta- og æskulýðsfélög um ofbeldi. Verkefni samskiptaráðgjafans er m.a. að samræma fræðslu á vettvangi til þess að efla gæði starfsins og að tryggja enn frekar öryggi iðkenda. Sú vinna er hafin í samstarfi við ráðuneytið. Með breytingu á lögum um grunnskóla árið 2021 var fagráð eineltismála lögfest, þar á meðal hlutverk og skipan þess og hæfnikröfur þeirra sem eiga þar sæti. Þar er kveðið á um heimild fagráðsins til að vinna með persónuupplýsingar og um aðgang að gögnum til samræmis við barnaverndarlög, nr. 80/2002, með síðari breytingum. Að meginstefnu gilda ákvæði stjórnsýslulaga og upplýsingalaga um starfsemi fagráðsins en með lagabreytingunni er fagráðinu þó heimilt að takmarka aðgang aðila að tilteknum gögnum ef það telur þau geta skaðað hagsmuni barns eða samband þess við aðra. Fagráðið getur einnig ákveðið að aðilar og lögmenn þeirra geti kynnt sér skjöl og önnur gögn án þess að gögnin eða ljósrit séu afhent. Ákvæðið er til samræmis við ákvæði barnaverndarlaga. Þá er áfram mælt fyrir um starfsemi fagráðsins með reglum en fyrirmynd eru núgildandi verklagsreglur. Þá hefur verið rætt meðal hagsmunaaðila um að bæta frekar starfsumhverfi fagráðsins og hefur þá m.a. verið horft til þess að vinna að þeim umbótum í tengslum við innleiðingu farsældarlaganna svokölluðu og menntastefnu 2030.
Kostnaður: Fagráð eineltismála fær 5 millj. kr. fjárveitingu á ári.
A.5. Fræðsluefni um ofbeldi fyrir leikskólabörn.
Aðgerðin var unnin í samhengi við aðgerð A.1 og er vísað í svar við þeirri aðgerð hér að framan.
Kostnaður: Sjá upplýsingar um kostnað vegna aðgerðar A.1.
A.6. Kennsla um kynheilbrigði og kynhegðun verði efld í grunn- og framhaldsskólum.
Starfshópur sem ráðherra skipaði til að vinna að framgangi þessarar aðgerðar hefur skilað skýrslu með ellefu aðgerðum. Kostnaður við gerð skýrslunnar var um 4 millj. kr. sem komu til greiðslu árið 2021. Ráðherra hefur sent bréf til skóla og hagsmunaaðila skólasamfélagsins þar sem vakin er athygli á skýrslunni og stjórnendur hvattir til þess að ræða hana á sínum vettvangi og nýta til að efla umræðu og aðgerðir í skólasamfélaginu. Jafnframt voru aðilar hvattir til að semja viðbragðsáætlun til að taka á því þegar upp kemur kynferðislegt eða kynbundið ofbeldi innan skólanna. Búið er að ganga frá samningi við sérfræðinga til þess að vinna námsefni í jafnréttis- og kynjafræðum fyrir leik, grunn- og framhaldsskóla sem styður við forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Í undirbúningi er að útbúa starfsþróunareiningu um kynfræðslu í tengslum við menntafléttuna sem Menntavísindasvið annast með fjárframlagi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Skýrslan hefur farið til efnislegrar umfjöllunar innan ráðuneytisins, tillögur verið skoðaðar í samhengi við vinnu um aðgerðaáætlun menntastefnu 2030 og vinnu við þingsályktun um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi 2021–2025.
Kostnaður: 2021, um 4 millj. kr. vegna starfshóps um kynfræðslu í skólum.
A.7. Vitundarvakning í samfélaginu gegn haturstali.
Ríkið hefur í samningi við Heimili og skóla gert árlega ráð fyrir einni milljón króna til vitundarvakningar í tengslum við SAFT- og Ekkert hatur-verkefnið. Átakið „Ekkert hatur – orðum fylgir ábyrgð“ er unnið út frá verkefni Evrópuráðsins, No Hate Speech Movement. Því er beint gegn einelti, hatursáróðri, kynþáttafordómum og mismunun á netinu. Fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins annast eftirtaldir aðilar útfærslu verkefnisins á Íslandi: SAFT, Heimili og skóli – landssamtök foreldra, SAMFÉS, Landssamband æskulýðsfélaga, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Æskulýðsvettvangurinn. Frá upphafi hefur fræðsla til ungmenna um net- og miðlamál verið helsta forgangsatriði SAFT-verkefnisins. Mörg þúsund nemendur um allt land fá fræðslu á hverju ári.
Kostnaður: árið 2019 1 millj. kr., árið 2020 1 millj. kr., árið 2021 1 millj. kr., árið 2022 1 millj. kr.