Ferill 752. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1339  —  752. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

Frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.


     1.      Hvaða viðurlögum verður beitt ef lögbundin skylda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda verður ekki uppfyllt?
     2.      Hverjir, ef einhverjir, yrðu beittir viðurlögum í því tilviki?


Skriflegt svar óskast.