Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1388, 152. löggjafarþing 583. mál: verndar- og orkunýtingaráætlun (stækkanir virkjana í rekstri).
Lög nr. 68 27. júní 2022.

Lög um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (stækkanir virkjana í rekstri).


1. gr.

     Í stað 2. málsl. 3. mgr. 3. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Hún tekur þó ekki til stækkunar á virkjun sem sökum stærðar fellur undir verndar- og orkunýtingaráætlun nema stækkunin feli í sér að svæði sem ekki hefur verið raskað af viðkomandi virkjun verði raskað að mati Orkustofnunar. Stofnunin skal leita umsagna Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands áður en hún tekur ákvörðun samkvæmt ákvæði þessu.

2. gr.

     Lög þessi taka þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 15. júní 2022.