Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1397, 152. löggjafarþing 172. mál: hjúskaparlög (hjónaskilnaðir).
Lög nr. 71 28. júní 2022.
Maki sem telur sig ekki geta haldið áfram hjúskap getur leitað skilnaðar að borði og sæng og ber að veita honum leyfi til slíks skilnaðar.
Réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng falla niður ef beiðni þess efnis berst sýslumanni frá báðum hjóna.
Höfða skal mál eða setja fram kröfu um leyfi til lögskilnaðar innan tveggja ára frá því að háttsemi átti sér stað eða frá því að maka varð kunnugt um hana.
Hjón skulu staðfesta samkomulag um skipan forsjár barna sinna, um framfærslueyri eða lífeyrisgreiðslur sín á milli og um aðra skilnaðarskilmála fyrir sýslumanni eða dómara.
Nú eru hjón sammála um að leita lögskilnaðar og ber þá að veita þeim leyfi til slíks skilnaðar án undanfarandi skilnaðar að borði og sæng komi fram ósk þess efnis frá þeim báðum, enda eigi þau hvorki sameiginlegar eignir né börn undir 18 ára aldri, eða hjón hafa náð samkomulagi um skipan forsjár fyrir börnum, um framfærslueyri og aðra skilnaðarskilmála, sem staðfest hefur verið, sbr. 1. mgr. 43. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Ákvæði hjúskaparlaga og framkvæmd þeirra skal endurskoða innan tveggja ára frá samþykkt laga þessara. Ráðherra skal kynna niðurstöðu endurskoðunarinnar eigi síðar en á haustþingi 2024.
Þingskjal 1397, 152. löggjafarþing 172. mál: hjúskaparlög (hjónaskilnaðir).
Lög nr. 71 28. júní 2022.
Lög um breytingu á hjúskaparlögum, nr. 31/1993, með síðari breytingum (hjónaskilnaðir).
1. gr.
34. gr. laganna orðast svo:Maki sem telur sig ekki geta haldið áfram hjúskap getur leitað skilnaðar að borði og sæng og ber að veita honum leyfi til slíks skilnaðar.
2. gr.
35. gr. laganna orðast svo:Réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng falla niður ef beiðni þess efnis berst sýslumanni frá báðum hjóna.
3. gr.
Í stað orðanna „eitt ár er liðið“ í 2. mgr. 36. gr. laganna kemur: sex mánuðir eru liðnir.4. gr.
Í stað orðsins „tvö“ í 37. gr. laganna kemur: eitt.5. gr.
3. mgr. 39. gr. laganna orðast svo:Höfða skal mál eða setja fram kröfu um leyfi til lögskilnaðar innan tveggja ára frá því að háttsemi átti sér stað eða frá því að maka varð kunnugt um hana.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 40. gr. laganna:- Greinin orðast svo:
- maki gengst við broti sínu eða hefur hlotið dóm fyrir það,
- fyrir liggja upplýsingar frá lögreglu sem staðfesta útkall lögreglu vegna heimilisofbeldis,
- önnur gögn á borð við áverkavottorð eða mat sálfræðings benda til þess að það hjóna er krefst skilnaðar, eða barn sem býr hjá þeim, hafi mátt þola ofbeldi af hálfu makans, eða
- heildarmat á aðstæðum og upplýsingum gefur af öðrum ástæðum tilefni til þess að ætla að það hjóna er krefst skilnaðar, eða barn sem býr hjá þeim, hafi mátt þola ofbeldi af hálfu hins.
- Fyrirsögn á undan greininni orðast svo: 5. Heimilisofbeldi.
Veita skal leyfi til skilnaðar á grundvelli ákvæðisins ef:
Mál samkvæmt ákvæðum þessarar greinar fyrir dómstólum skulu sæta flýtimeðferð í samræmi við ákvæði XIX. kafla laga um meðferð einkamála.
7. gr.
Á eftir orðunum „1. mgr. 36. gr.“ í 1. mgr. 41. gr. laganna kemur: og a-lið 2. mgr. 40. gr.8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 42. gr. laganna:- Við 2. mgr. bætist: eða þegar skilnaðar er krafist á grundvelli a-liðar 2. mgr. 40. gr.
- 4. mgr. orðast svo:
- Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
9. gr.
1. mgr. 43. gr. laganna orðast svo:Hjón skulu staðfesta samkomulag um skipan forsjár barna sinna, um framfærslueyri eða lífeyrisgreiðslur sín á milli og um aðra skilnaðarskilmála fyrir sýslumanni eða dómara.
10. gr.
Á eftir 43. gr. laganna kemur ný grein, 43. gr. a, sem orðast svo:Nú eru hjón sammála um að leita lögskilnaðar og ber þá að veita þeim leyfi til slíks skilnaðar án undanfarandi skilnaðar að borði og sæng komi fram ósk þess efnis frá þeim báðum, enda eigi þau hvorki sameiginlegar eignir né börn undir 18 ára aldri, eða hjón hafa náð samkomulagi um skipan forsjár fyrir börnum, um framfærslueyri og aðra skilnaðarskilmála, sem staðfest hefur verið, sbr. 1. mgr. 43. gr.
11. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2023.Samþykkt á Alþingi 15. júní 2022.