Ferill 28. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1432 — 28. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um áhrif hækkunar fasteignamats.
1. Hversu mikið má að óbreyttu ætla að álögur á eigendur íbúðarhúsnæðis aukist vegna áhrifa hækkunar fasteignamats 2023 á fasteignagjöld og eftir atvikum önnur gjöld sem taka mið af fasteignamati?
Ráðuneytið aflaði upplýsinga frá Þjóðskrá varðandi þennan lið fyrirspurnarinnar. Fasteignagjöld eru lögð á íbúðareigendur af hendi sveitarfélaga og eru samsett af fasteignaskatti, vatns- og fráveitugjaldi, sorpgjaldi og lóðarleigu. Fasteignamat er notað sem skattstofn fasteignaskatta og vatns- og fráveitugjalda, þó með undantekningum þar sem sum sveitarfélög nota fasta krónutölu á hvern fermetra húsnæðis í útreikningi vatns- og fráveitugjalda. Lóðarleiga er ákvörðuð sem hlutfall af lóðarmati sem er beintengt fasteignamati. Sorpgjöld eru óháð fasteignamati.
Fyrirhugað fasteignamat er gefið út 1. júní ár hvert en tekur gildi í lok árs og því hafa sveitarfélögin góðan tíma til að yfirfara rekstraráætlanir og stilla álagningarprósentur út frá fyrirhuguðu fasteignamati. Við eftirfarandi útreikning var gert ráð fyrir að skattprósentur sveitarfélaga yrðu þær sömu og árið áður þannig að breyting á fasteignagjöldum sé aðeins orsökuð af breyttu fasteignamati. Í ljós kemur að hækkun á fasteignagjöldum er mjög svipuð hækkun fasteignamats enda er fasteignaskattur stærsti liður fasteignagjalda. Heildarhækkun fasteignamats íbúðareigna eftir sveitarfélögum var að meðaltali 21,71% og heildarhækkun fasteignagjalda íbúðareigna sem stýrast af fasteignamati var að meðaltali 21,03%.
| Heildarhækkun fasteignagjalda |
Heildarhækkun fasteignamats |
||
|
0
|
Reykjavíkurborg | 21,83% | 22,12% |
| 1000 | Kópavogsbær | 25,04% | 25,04% |
| 1100 | Seltjarnarnesbær | 15,14% | 15,57% |
| 1300 | Garðabær | 26,28% | 26,34% |
| 1400 | Hafnarfjarðarkaupstaður | 26,59% | 26,82% |
| 1604 | Mosfellsbær | 26,32% | 26,43% |
| 2000 | Reykjanesbær | 22,81% | 23,75% |
| 2300 | Grindavíkurbær | 19,74% | 20,29% |
| 2506 | Sveitarfélagið Vogar | 19,61% | 19,96% |
| 2510 | Suðurnesjabær | 13,34% | 14,15% |
| 3000 | Akraneskaupstaður | 20,84% | 21,38% |
| 3511 | Hvalfjarðarsveit | 22,07% | 23,76% |
| 3609 | Borgarbyggð | 16,41% | 18,29% |
| 3709 | Grundarfjarðarbær | 26,75% | 27,95% |
| 3711 | Stykkishólmsbær | 19,00% | 19,82% |
| 3714 | Snæfellsbær | 22,53% | 23,79% |
| 3811 | Dalabyggð | 14,86% | 15,95% |
| 4100 | Bolungarvíkurkaupstaður | 29,67% | 30,07% |
| 4200 | Ísafjarðarbær | 20,26% | 21,08% |
| 4502 | Reykhólahreppur | 25,78% | 27,17% |
| 4604 | Tálknafjarðarhreppur | 34,37% | 35,21% |
| 4607 | Vesturbyggð | 21,23% | 21,61% |
| 4803 | Súðavíkurhreppur | 19,34% | 19,83% |
| 4911 | Strandabyggð | 16,59% | 17,40% |
| 5200 | Sveitarfélagið Skagafjörður | 16,25% | 17,07% |
| 5508 | Húnaþing vestra | 21,16% | 21,16% |
| 5604 | Blönduósbær | 24,82% | 25,66% |
| 5609 | Sveitarfélagið Skagaströnd | 17,23% | 17,92% |
| 5612 | Húnavatnshreppur | 15,22% | 16,96% |
| 6000 | Akureyrarbær | 25,38% | 25,78% |
| 6100 | Norðurþing | 8,87% | 10,00% |
| 6250 | Fjallabyggð | 19,73% | 20,75% |
| 6400 | Dalvíkurbyggð | 5,09% | 6,04% |
| 6513 | Eyjafjarðarsveit | 13,37% | 14,28% |
| 6515 | Hörgársveit | 7,63% | 8,34% |
| 6601 | Svalbarðsstrandarhreppur | 13,96% | 15,51% |
| 6602 | Grýtubakkahreppur | 35,31% | 35,78% |
| 6607 | Skútustaðahreppur | 8,04% | 8,04% |
| 6612 | Þingeyjarsveit | 9,30% | 10,15% |
| 6709 | Langanesbyggð | 26,05% | 26,67% |
| 7300 | Fjarðabyggð | 24,31% | 24,63% |
| 7400 | Múlaþing | 22,81% | 23,12% |
| 7502 | Vopnafjarðarhreppur | 9,97% | 10,50% |
| 8000 | Vestmannaeyjabær | 8,41% | 9,70% |
| 8200 | Sveitarfélagið Árborg | 36,15% | 36,54% |
| 8401 | Sveitarfélagið Hornafjörður | 20,86% | 21,26% |
| 8508 | Mýrdalshreppur | 23,09% | 23,86% |
| 8509 | Skaftárhreppur | 11,51% | 12,28% |
| 8613 | Rangárþing eystra | 21,47% | 22,08% |
| 8614 | Rangárþing ytra | 24,54% | 25,42% |
| 8710 | Hrunamannahreppur | 19,85% | 20,15% |
| 8716 | Hveragerðisbær | 36,28% | 36,57% |
| 8717 | Sveitarfélagið Ölfus | 35,04% | 35,51% |
| 8719 | Grímsnes- og Grafningshreppur | 27,34% | 27,63% |
| 8720 | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | 30,86% | 30,86% |
| 8721 | Bláskógabyggð | 22,84% | 23,13% |
| 8722 | Flóahreppur | 29,36% | 30,54% |
| Meðaltal | 21,03% | 21,71% |
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að sveitarfélög lækki álagningarhlutfall gjalda sem taka mið af fasteignamati til að mæta hækkun fasteignamats um næstu áramót?
Kveðið er á um sjálfsstjórnarrétt sveitarfélaga í 1. mgr. 78. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, en þar er mælt fyrir um að sveitarfélög ráði málefnum sínum sjálf eftir því sem lög ákveða. Í sjálfsstjórnarrétti sveitarfélaga felst að stjórn sveitarfélaga hefur tiltekið sjálfstæði innan stjórnsýslukerfisins, nema lög kveði á um annað. Samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga ákveður sveitarstjórn skatthlutfall fasteignaskatts innan þeirra marka sem kveðið er á um í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sbr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga. Ákvörðun um skatthlutfall fasteignaskatta fellur því innan ákvörðunar- og fjárstjórnarvalds sveitarstjórnar sem lýðræðislega kjörins stjórnvalds, sbr. 7. og 8. og 58. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, og jafnframt undir sjálfsstjórnarrétt sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar.
3. Telur ráðherra koma til greina að afnema beina tengingu fasteignagjalda og eftir atvikum annarra gjalda af húsnæði við fasteignamat eða gera lagabreytingar til að milda áhrif skarpra hækkana húsnæðisverðs á þau gjöld?
Sveitarfélögin hafa lagt mikla áherslu á að varðveita það kerfi sem nú er við lýði, enda er um mikilvægan skattstofn að ræða. Í vinnu við endurskoðun tekjustofna hafa komið upp hugmyndir að því hvernig hægt væri að þróa kerfið þannig að breytingar séu hóflegar og þróun skattstofnsins fyrirsjáanleg. Mikilvægt er að huga að því hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að stökkbreytingar á skattstofninum hafi alvarleg áhrif á sjálfa álagninguna.
4. Telur ráðherra koma til greina að gera breytingar á skattkerfinu til að draga úr sjálfvirkri tengingu skatta og opinberra gjalda við gjaldstofna sem eru ekki á valdi kjörinna fulltrúa heldur háðir duttlungum markaðarins?
Skattkerfið er í stöðugri endurskoðun með það í huga að það sé sanngjarnt. Það er þó óhjákvæmilegt að þróun á hinum og þessum mörkuðum hafi áhrif. Markmiðið hlýtur þó alltaf að vera að skoða hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að miklar og sjálfvirkar breytingar á stofnum hafi veruleg áhrif á álagningu skattsins.