Ferill 487. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1435  —  487. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana barnaverndaryfirvalda.

     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021 vegna ákvarðana barnaverndaryfirvalda á grundvelli barnaverndarlaga, nr. 80/2002, sundurliðað eftir árum, því hvaða ákvæði laganna hin kærða ákvörðun byggðist á og hlutaðeigandi yfirvöldum?
    Upplýsingar um á hvaða ákvæði laganna ákvörðun byggðist á liggja ekki fyrir.
    Á árinu 2016 bárust 32 kærur:
     –      32 mál vegna ákvarðana barnaverndarnefnda.
    Á árinu 2017 bárust 23 kærur:
     –      18 mál vegna ákvarðana barnaverndarnefnda,
     –      4 mál vegna ákvörðunar Barnaverndarstofu.
    Á árinu 2018 bárust 17 kærur:
     –      17 mál vegna ákvarðana barnaverndarnefnda.
    Á árinu 2019 bárust 37 kærur:
     –      37 mál vegna ákvarðana barnaverndarnefnda.
    Á árinu 2020 bárust 25 kærur:
     –      25 mál vegna ákvarðana barnaverndarnefnda.
    Á árinu 2021 bárust 54 kærur:
     –      53 mál vegna ákvarðana barnaverndarnefnda,
     –      1 mál vegna ákvörðunar Barnaverndarstofu.

     2.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að barnaverndaryfirvöld tóku mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
    Árið 2016 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2017 var einu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2018 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2019 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2020 var einu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2021 var engu máli vísað frá á þessum grundvelli.

     3.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2016 var 3,4 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2017 var 3,8 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2018 var 3,0 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2019 var 3,8 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2020 var 3,5 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2021 var 3,6 mánuðir.

     4.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
    2016 var málsmeðferðartími í 69% mála lengri en þrír mánuðir.
    2017 var málsmeðferðartími í 87% mála lengri en þrír mánuðir.
    2018 var málsmeðferðartími í 61% mála lengri en þrír mánuðir.
    2019 var málsmeðferðartími í 75% mála lengri en þrír mánuðir.
    2020 var málsmeðferðartími í 79% mála lengri en þrír mánuðir.
    2021 var málsmeðferðartími í 62% mála lengri en þrír mánuðir.

     5.      Hversu oft hafa barnaverndaryfirvöld höfðað dómsmál til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt, sundurliðað eftir árum og yfirvöldum?
    Ráðherra hefur ekki upplýsingar um það hvort og þá hversu oft barnaverndaryfirvöld hafi höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt. Leitað var til Barna- og fjölskyldustofu vegna þessa en samkvæmt svörum stofnunarinnar liggja þessar upplýsingar ekki heldur fyrir hjá stofnuninni. Samkvæmt upplýsingum borgarlögmanns hefur Reykjavíkurborg ekki höfðað nein mál til ógildingar úrskurðum úrskurðarnefndarinnar á því tímabili sem spurt er um, en borgarlögmaður fer meðal annars með barnaverndarmál.

     6.      Hversu oft hafa aðrir en barnaverndaryfirvöld höfðað dómsmál til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt, sundurliðað eftir árum?
    Ráðherra hefur ekki upplýsingar um það hvort og þá hversu oft aðrir en barnaverndaryfirvöld hafa höfðað dómsmál til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt.