Ferill 659. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1436  —  659. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Steinunni Þóru Árnadóttur um gagnkvæman rétt til hlunninda sem almannatryggingar veita.


     1.      Hvaða samningar eru nú í gildi við önnur ríki um gagnkvæman rétt til hlunninda sem almannatryggingar veita, eins og gert er ráð fyrir í 68. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007?
    Við undirbúning þessa svars var aflað umsagnar frá utanríkisráðuneytinu. Milliríkjasamningar sem telja verður að helst megi heimfæra undir fyrirspurnina eru eftirfarandi (raðað í tímaröð):
    Samningur um ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu, milli Íslands, Furstadæmisins Liechtensteins, Konungsríkisins Noregs og Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands frá 28. janúar 2020 (auglýsing nr. 2/2020 í C-deild Stjórnartíðinda).
    Samningur um almannatryggingar við Bandaríkin og stjórnsýslufyrirkomulag vegna framkvæmdar samningsins, frá 27. september 2016 (auglýsing nr. 23/2021 í C-deild Stjórnartíðinda).
    Norðurlandasamningur um almannatryggingar frá 12. júní 2012 (lög nr. 119/2013).
    Samningur við Lúxemborg um almannatryggingar frá 30. nóvember 2001 (auglýsing nr. 66/2004 í C-deild Stjórnartíðinda).
    Stofnsamningur Fríverslunarsamtaka Evrópu (Vaduz-samningurinn), frá 21. júní 2001, sbr. einkum 21. gr. samningsins og viðauka K (auglýsing nr. 34/2002 í C-deild Stjórnartíðinda).
    Samningur við Austurríki um almannatryggingar frá 18. nóvember 1993 (auglýsing nr. 18/1995 í C-deild Stjórnartíðinda).
    Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið frá 2. maí 1992 (EES-samningurinn), sbr. einkum 29. gr. samningsins og gerðir sem falla undir sjötta viðauka (lög nr. 2/1993).
    Samningur um félagslegt öryggi milli Íslands og Kanada frá 25. júní 1988 (auglýsing nr. 10/1989 í C-deild Stjórnartíðinda).
    Samningur um félagslegt öryggi milli ríkisstjórnar Íslands og ríkisstjórnar Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands frá 25. ágúst 1983 (auglýsing nr. 11/1985 í C-deild Stjórnartíðinda).
    Athuga ber að eldri milliríkjasamningar, á sviði almannatrygginga, kunna hér að hafa lítið eða takmarkað gildi að því marki sem nýrri milliríkjasamningar ganga þeim framar hvað varðar breytt réttindi. Þetta á einkum við um samninga við ríki sem eru aðilar að EES-samningnum. Þessir eldri samningar hafa þá aðallega þýðingu fyrir einstaklinga sem fara á milli ríkjanna og falla ekki undir gildissvið EES-samningsins.

     2.      Hverjir eru nýjustu samningarnir þessarar gerðar?
    Sjá svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar þar sem samningunum er raðað í tímaröð.

     3.      Hvaða áætlanir, ef einhverjar, eru um að fjölga samningum af þessum toga?
    Á þessu stigi máls liggja ekki fyrir sérstakar áætlanir um gerð nýrra milliríkjasamninga af þessum toga við einstök ríki. Í ráðuneytinu er þó grannt fylgst með þróun mála á þessu sviði og hugað að slíkri samningagerð þegar nauðsynlegt þykir. Framangreindur samningur við Bretland frá árinu 2020 er nýjasta dæmið um slíka vinnu og yfirstandandi eru samningaviðræður milli Íslands, Noregs, Liechtenstein og Bretlands um gerð samnings um almannatryggingar.

     4.      Við hvaða ríki telur ráðherra brýnast að gerðir verði slíkir samningar?
    Sjá svar við 3. tölul. fyrirspurnarinnar.