Ferill 746. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1441  —  746. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um biðtíma eftir heilbrigðisþjónustu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig hefur biðtími eftir heilbrigðisþjónustu þróast frá árinu 2017 til 2022, flokkað eftir þjónustusviðum?

    Heilbrigðisþjónusta er hvers kyns þjónusta sem heilbrigðisstarfsfólk veitir innan og utan heilbrigðisstofnana. Hún skiptist í fyrsta, annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu.
    Biðtími er ýmist metinn frá þeim tíma sem líður frá því að sjúklingur hefur samband við heilbrigðisþjónustuveitanda vegna einkenna eða frá því að þörf fyrir viðkomandi þjónustu er greind. Heildarbiðtími liggur fyrir þegar þjónustan hefur verið veitt en misjafnt er hvernig haldið er utan um upplýsingar um biðtíma og hvernig hægt er að nálgast upplýsingar um biðtíma. Forgangsröðun sjúkdóma og slysa hefur áhrif á bið eftir þjónustu sem og skipulag starfsemi heilbrigðisstofnana og þjónustuveitenda.
    Undanfarin tvö ár hefur biðtími eftir heilbrigðisþjónustu almennt lengst vegna hærri forgangsröðunar á þjónustu tengdri heimsfaraldri Covid-19. Þá hefur meðferð lífsógnandi ástands verið forgangsraðað umfram aðra þjónustu sem ekki krefst tafarlausrar meðferðar.
    Embætti landlæknis safnar upplýsingum um biðtíma ákveðinna skurðaðgerða hjá völdum þjónustuveitendum og má nálgast þær tölur á vef embættisins. Nýjustu greinargerð embættisins er hægt að nálgast á vefsíðu þess. 1 Einnig hefur embættið fylgst með bið eftir hjúkrunarrými á landsvísu og birtir niðurstöður á vefsíðu sinni, sjá m.a. stutta samantekt embættisins frá janúar 2022. 2
    Samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, ber læknum að gefa sjúklingum sínum skýringar á því hvers vegna bið er eftir aðgerð eða annarri meðferð. Þá er þeim enn fremur skylt að veita upplýsingar um áætlaðan biðtíma og þá möguleika sem eru á að fá aðgerðina/meðferðina framkvæmda fyrr annars staðar.
    Að lokum er vísað til upplýsinga um ásættanlegan biðtíma eftir heilbrigðisþjónustu sem fram koma í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttir í 540. máli á 152. löggjafarþingi.

1     www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item49179/Greinargerd_bid_valdar_skurdadgerdir.mars2022.pdf
2      www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item48624/Hjukrunarrymi_stutt_samantekt_25.01.2022.pdf