Ferill 745. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1442  —  745. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um neysluskammt fíkniefna.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað er neysluskammtur fíkniefna að mati ráðherra, flokkað eftir tegundum fíkniefna?

    Starfshópur skipaður af ráðherra er nú að störfum og hefur það hlutverk að vinna að endurbættu frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing neysluskammta). Starfshópnum er falið að skilgreina dagskammt eða neysluskammt í tengslum við framangreinda vinnu og er áætlað að setja þá skilgreiningu í reglugerð sem lögð verður fram með endurbættu frumvarpi.
    Starfshópurinn er þannig skipaður:
    Helga Sif Friðjónsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, formaður.
    Bjarni Sigurðsson, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.
    Björg Þorkelsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.
    Kristín Jónsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneytinu.
    Kristinn Páll Sigurbjörnsson, tilnefndur af Lyfjastofnun.
    Hulda Elsa Björgvinsdóttir, tilnefnd af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
    Kristín Davíðsdóttir, tilnefnd af Rauða krossinum á höfuðborgarsvæðinu.
    Karl Steinar Valsson, tilnefndur af ríkislögreglustjóra.
    Marín Ólafsdóttir, tilnefnd af ríkissaksóknara.
    Rafn Magnús Jónsson, tilnefndur af embætti landlæknis.
    Sylvía Björg Runólfsdóttir, tilnefnd af SÁÁ.
    Kristján Ernir Björgvinsson, án tilnefningar.
    Guðmundur Ingi Þóroddsson, án tilnefningar.
    Áætlað er að starfshópurinn ljúki störfum á haustdögum 2022 og má í kjölfar þess gera ráð fyrir að þá muni liggja fyrir hver sé neysluskammtur ávana- og fíkniefna, en á þessari stundu liggur slík skilgreining ekki fyrir.