Ferill 660. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1443 — 660. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um kynja- og jafnréttissjónarmið í heilbrigðisþjónustu.
1. Hefur verið brugðist við tillögum sem lagðar voru fram í skýrslunni Heilsa og heilbrigðisþjónusta: kynja- og jafnréttissjónarmið og voru til þess fallnar að meta hvort heilbrigðisþjónusta uppfyllti þarfir allra kynja? Ef svo er, hvernig?
Innan ráðuneytis voru verkefni sett á fót til að bregðast við ábendingum sem fram komu í skýrslunni og eru þau mislangt á veg komin. Eitt þeirra verkefna er að móta og innleiða samræmt verklag fyrir heilbrigðisstofnanir vegna þjónustu við þolendur heimilisofbeldis í samstarfi við heilbrigðisstofnanir, embætti landlæknis, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, lögreglu og félagsmálayfirvöld og er það verkefni langt komið.
Uppbygging geðheilbrigðisþjónustu á fyrsta stigi hefur haldið áfram í öllum heilbrigðisumdæmum en klínískar leiðbeiningar benda á að við vægum og miðlungsþungum almennum geðheilbrigðisvanda sé líklegast til árangurs að reyna gagnreynda samtalsmeðferð fyrst áður en aðrar leiðir eru reyndar, svo sem lyfjameðferð.
Tillögur starfshóps ráðherra um úrbætur á þjónustu við einstaklinga með langvinna verki hafa verið settar inn í aðgerðaáætlun um endurhæfingu sem kom út síðastliðið haust.
Embætti landlæknis var falið að greina frekar kynjamun á heimsóknum barna til sérfræðilækna og þær ástæður sem liggja að baki og skila ráðherra minnisblaði með frekari upplýsingum og tillögum um hvort bregðast eigi við með einhverjum hætti.
Unnið er að úttekt í samstarfi við embætti landlæknis á legutíma vegna ákveðinna DRG-greininga eftir kyni til að varpa ljósi á það hvort kyn hafi áhrif á legutíma og mögulega meðferð.
Unnið er að heildarendurskoðun á heilbrigðisþjónustu fyrir fólk sem notar vímuefni þar sem m.a. er skoðað hvaða sértæku þjónustuþarfir mismunandi hópar hafa og er niðurstöðu þeirrar greiningar að vænta í sumar.
Embætti landlæknis hefur verið falið að yfirfara það fræðsluefni sem embættið telur að sé brýnast að sé kynja- og jafnréttishlutlaust. Auk þess hefur því verið beint til embættisins að taka mið af kynja- og jafnréttissjónarmiðum við alla gerð fræðslu- og forvarnaefnis.
Þá hefur vísindasiðanefnd, siðanefnd heilbrigðisrannsókna á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri verið falið að gera kröfu um það í innsendum rannsóknaráætlunum að greint verði hlutfall kynja þátttakenda í umsóknum um vísindarannsóknir.
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að kynjaðar staðalmyndir leiði ekki til beinnar eða óbeinnar mismununar í heilbrigðisþjónustu?
Ráðherra telur það viðvarandi verkefni og réttlætismál að tryggja jafnræði innan þjónustunnar og jafnt aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu, óháð kyni.
3. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að kynjasjónarmið verði í auknum mæli tekin með í reikninginn í heilbrigðisþjónustu þar sem þess er þörf, t.d. við greiningu hjarta- og æðasjúkdóma og í þjónustu við sjúklinga með langvinna verki?
Þegar er unnið að því í þeim verkefnum sem sett voru af stað í tengslum við ábendingar úr umræddri skýrslu, að kynjasjónarmið séu einn af þeim þáttum sem mikilvægt er að taka tillit til í skipulagningu og veitingu heilbrigðisþjónustu.