Ferill 763. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1448 — 763. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um nýjan Landspítala.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða starfsemi sem stunduð er innan veggja Landspítalans í dag er ekki ætlað rými í nýja meðferðarkjarnanum og tengdum byggingum?
Nú er unnið að fyrsta áfanga við Hringbraut. Í þeim áfanga er meðferðarkjarni, rannsóknahús og bílastæða- og tæknihús samkvæmt núverandi skipulagi Hringbrautarverkefnisins. Nýtt sjúkrahótel var tekið í notkun árið 2019. Annar áfangi er fyrirhugaður 2028–2040.
Hvaða starfsemi flyst í meðferðarkjarnann og aðrar tengdar byggingar verður nánar útfært þegar úttekt og yfirferð á ástandi eldri bygginga lýkur. Von er á niðurstöðum þess verkefnis á næstu vikum og væri þá betra að fá tækifæri til að svara þessari fyrirspurn nánar.
Ljóst er að öll rannsóknastarfsemi mun flytjast í nýtt rannsóknahús en hvaða starfsemi verður í meðferðarkjarnanum er ekki hægt að fullyrða um fyrr en ástand eldri bygginga liggur fyrir. Það verður að taka tillit til allra starfsemisþátta og eiginleika eldri bygginganna þegar niðurröðun á sér stað.
Á Hringbrautarsvæðinu er síðan einnig gert ráð fyrir að nýtt dag-, göngu- og legudeildarhús geti risið auk annarra nýbygginga.