Ferill 765. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1455  —  765. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um endurmenntun til ökuréttinda.


     1.      Hver er fjöldi einstaklinga sem hefur sótt sér endurmenntun til að viðhalda auknum ökuréttindum síðastliðin 10 ár? Óskað er eftir að fjöldinn verði tilgreindur eftir árum og skipt eftir kyni og landshlutum.
    Í töflunum hér á eftir er að finna upplýsingar um endurmenntun atvinnubílstjóra sem aka ökutækjum í C1-, C-, D1- og D-flokki. Aftan við svar við 2. tölul. fyrirspurnarinnar koma fram skilgreiningar á viðeigandi ökutækjaflokkum.
    Fyrri taflan sýnir fjölda þeirra sem hafa sótt sér endurmenntun hér á landi eftir því sveitarfélagi sem námskeið var haldið í. Í seinni töflunni eru sömu upplýsingar settar fram eftir landshlutum. Fram koma upplýsingar um einstaklinga sem tóku eitt eða fleiri námskeið ár hvert.
    Á tímabilinu sem spurt er um hefur lögbundin skylda til að sækja sér endurmenntun aðeins verið til staðar frá árinu 2015 og því hafa töflurnar aðeins að geyma tölulegar upplýsingar frá þeim tíma.
    Endurmenntun þeirra sem vilja viðhalda réttindum til aksturs í atvinnuskyni samanstendur af fimm námskeiðum sem öllum þarf að ljúka einhvern tímann á síðustu fimm árunum áður en kemur endurnýjun atvinnuréttindanna. Mögulegt er að taka öll námskeiðin á einu ári eða dreifa þeim á þetta fimm ára tímabil. Hafi einstaklingur dreift námskeiðum á fleiri en eitt ár kemur hann fram í upplýsingum fyrir hvert ár sem hann tók námskeið.
    Kyn eru ekki skráð í gagnagrunninn sem heldur utan um endurmenntun atvinnubílstjóra og því ekki unnt að taka saman upplýsingar eftir kyni.

2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021
Akranes - - 23 78 5 - -
Akureyri - 52 69 462 233 64 118
Blönduós - - - 42 - - -
Borgarnes - - - 98 - - -
Búðardalur - - - 33 - - -
Dalvíkurbyggð - - - 36 30 - -
Djúpivogur - - - 16 - - -
Egilsstaðir - 35 22 207 14 - 34
Eskifjörður - - - 29 - - -
Fjarðabyggð 18 - - - - -
Fljótsdalshérað - - 58 - - - -
Flúðir - - - 39 - - -
Garðabær - - - 59 - - -
Grindavík - - - 26 - - -
Grundarfjörður - - 28 29 8 - -
Hafnarfjörður - - 39 46 40 - 37
Hella - - - 28 - - -
Hólmavík - - - 9 - - -
Húnaþing vestra - - - 50 - - -
Húsavík - - 26 80 - - -
Hvolsvöllur - - - 42 - - -
Höfn í Hornafirði - 21 26 77 35 - -
Ísafjörður - - 74 137 - 13 10
Kirkjubæjarklaustur - - 16 15 - - -
Kópasker - - - 30 - - -
Kópavogur - - 18 58 - - -
Ólafsvík - - - 19 - - -
Patreksfjörður - - - 3 - - -
Reyðarfjörður - 1 34 48 - - -
Reykhólahreppur - - - 25 40 - -
Reykjanesbær - 34 210 211 759 20 -
Reykjavík - 464 1.037 2.654 - 587 709
Sandgerði - - - 15 - - -
Sauðárkrókur - - 48 230 104 18 16
Selfoss - - 32 270 - 68 94
Siglufjörður - - - 27 - - -
Stokkseyri - - 24 - - - -
Strandabyggð - - - 2 - - -
Stykkishólmur - - - 22 - - -
Vestmannaeyjar - - - 49 - - -
Vík í Mýrdal - - 11 33 - - -
Vopnafjörður - - 20 21 18 - -
Þingeyjarsveit - - - 31 - - -
Þórshöfn - - 38 29 59 - -
Samtals - 625 1.853 5.415 1.345 770 1.018
Vesturland - - 51 282 13 - -
Norðurland - 52 181 1.017 426 82 134
Suðurland - - 83 476 - 68 94
Austurland - 75 160 398 67 - 34
Vestfirðir - - 74 173 40 13 10
Suðurnes - 34 210 252 759 20 -
Höfuðborgarsvæði - 464 1.094 2.817 40 587 746
Samtals - 625 1.853 5.415 1.345 770 1.018
Alls fyrir árin 2016 til 2021 11.042

     2.      Hvert hefur verið aldursviðmið til að öðlast aukin ökuréttindi undanfarin 30 ár og hafa undanþágur hafi verið veittar frá því?
    Ökuréttindaflokkar voru skilgreindir með öðru móti á árum áður. Árið 1992 voru aldurskröfur til að öðlast ökuréttindi til aksturs fólksbifreiða fyrir fleiri en 16 farþega að viðkomandi væri orðinn 20 ára. Aldurskröfur voru þær sömu til ökuréttinda til aksturs vörubifreiða fyrir 5 smálesta farm eða meira.
    Frá og með 1. janúar 1996 voru aldursmörk til að stjórna hópbifreið 21 árs og aldursmörk til að stjórna bifreið sem ekki er hópbifreið sem er meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd voru að einstaklingur væri orðinn 20 ára.
    Frá og með 10. september 2011 hafa aldursmörk til að öðlast ökuréttindi í C1 og C1E-flokki verið 18 ár. Til að öðlast ökuréttindi í C-, CE-, D1- og D1E-flokki þarf viðkomandi að vera orðinn 21 árs. Til að öðlast ökuréttindi í D- og DE-flokki eru aldursmörkin 23 ár. Ekki eru veittar undanþágur frá skilyrðum um aldursmörk við útgáfu ökuréttinda.
    Skilgreiningar á viðkomandi ökuréttindaflokkum eru eftirfarandi:
     C1 – réttindi til að stjórna bifreið sem gerð er fyrir 8 farþega eða færri auk ökumanns og er meira en 3.500 kg en ekki meira en 7.500 kg að leyfðri heildarþyngd sem tengja má við eftirvagn sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd.
     C1E – réttindi til að stjórna bifreið í: C1-flokki með eftirvagn meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd og má leyfð heildarþyngd vagnlestar ekki vera meiri en 12.000 kg, B-flokki með eftirvagn meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd og má leyfð heildarþyngd vagnlestar ekki vera meiri en 12.000 kg, réttindi til að stjórna bifreið í B-flokki með eftirvagn í BE-flokki.
    C – réttindi til að stjórna bifreið sem gerð er fyrir 8 farþega eða færri auk ökumanns og er meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd sem tengja má við eftirvagn sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd, þar með talið til vöruflutninga í atvinnuskyni.
     CE – réttindi til að stjórna bifreið í C-flokki með eftirvagn sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, réttindi til að stjórna bifreið í B- og C1-flokki sem tengja má við eftirvagn í BE- og C1E-flokki, D1- og D-flokki með eftirvagn í D1E- og DE-flokki enda hafi viðkomandi réttindi fyrir D1- og D-flokk.
     D1 – réttindi til að stjórna bifreið sem er ekki lengri en 8 m og gerð er fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns sem tengja má við eftirvagn sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd.
     D1E – réttindi til að stjórna bifreið í D1-flokki með eftirvagn sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, réttindi til að stjórna bifreið í B-flokki með eftirvagn í BE-flokki.
     D – tengja má við eftirvagn sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd.
     DE – réttindi til að stjórna bifreið í D-flokki með eftirvagn sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, réttindi til að stjórna bifreið í B- og D1-flokki með eftirvagn í BE- og D1E-flokki.