Ferill 522. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1457  —  522. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um húsmæðraorlof.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvert er markmiðið með lögum um orlof húsmæðra, nr. 53/1972? Telur ráðherra það markmið eiga jafn vel við nú eins og þegar lögin voru sett?
     2.      Hversu margar konur hafa átt rétt á húsmæðraorlofi í hverju sveitarfélagi á hverju ári sl. 10 ár?
     3.      Hversu margar konur hafa nýtt sér rétt til húsmæðraorlofs í hverju sveitarfélagi á hverju ári sl. 10 ár?
     4.      Hver hefur kostnaður hvers sveitarfélags vegna orlofs húsmæðra verið á hverju ári sl. 10 ár?
     5.      Hvernig hefur kostnaður skipst milli húsmæðra eftir félagslegri stöðu, sbr. 2. mgr. 6. gr. laganna, á hverju ári sl. 10 ár?


    Markmið laga um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, er meðal annars að standa straum af kostnaði við orlof kvenna sem veita eða hafa veitt heimili forstöðu, án launagreiðslu fyrir það starf. Í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögunum kemur meðal annars fram að þar „sem húsmæður fá engin laun fyrir störf sín, m.a. við að ala upp næstu kynslóð, væri það verðug viðurkenning af hálfu þjóðfélagsins, að í fjárlögum væru ætlaðar a.m.k. kr. 100,00 á ári fyrir hverja húsmóður í landinu, í því skyni að gefa nokkrum hluta þeirra kost á orlofi og hvíld frá störfum.“
    Lög um orlof húsmæðra eiga sér langa sögu hér á landi en gildandi lög um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, eru afrakstur vinnu nefndar sem þáverandi félagsmálaráðherra skipaði 21. september 1971 í því skyni að endurskoða þágildandi lög um orlof húsmæðra, nr. 46/1960. Að mati félags- og vinnumarkaðsráðherra er ljóst að miklar breytingar hafa orðið á vinnumarkaði frá því að lög um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, tóku gildi. Þá er jafnframt ljóst að mati ráðherra að miklar og jákvæðar breytingar hafa orðið hvað varðar stöðu og þróun jafnréttismála, ekki síst hvað varðar jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Enn fremur er ljóst að atvinnuþátttaka kvenna hér á landi hefur vaxið mikið á undanförnum áratugum og hefur undanfarin ár verið með því hæsta sem þekkist.
    Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á jafnréttismál og í stjórnarsáttmála hennar kemur meðal annars fram að jafnrétti kynjanna sé mikilvægur þáttur í heilbrigðu samfélagi og að slík mál verði áfram forgangsmál ríkisstjórnarinnar sem og auknar réttarbætur í málefnum hinsegin fólks. Í ljósi framangreinds þykir að mati félags- og vinnumarkaðsráðherra tímabært að rýna markmið og tilgang laga um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, í ljósi kynja- og jafnréttissjónarmiða sem og þeirra breytinga sem orðið hafa á vinnumarkaði undanfarna áratugi.
    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið býr ekki yfir upplýsingum um þau atriði sem spurt er um í 2.–5. lið fyrirspurnarinnar. Skv. 11. gr. laga um orlof húsmæðra er orlofsnefndum skylt að senda ráðuneytinu og viðkomandi sveitarfélögum árlega skýrslu um starfsemi sína ásamt reikningum. Á undanförnum árum hefur það heyrt til undantekninga að slíkar skýrslur berist ráðuneytinu.
    Í ljósi framangreinds óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá sveitarfélögum í tengslum við fyrirspurn þessa. Alls bárust ráðuneytinu svör frá 36 sveitarfélögum en af svörum sveitarfélaganna er ljóst að sveitarfélögin búa almennt ekki yfir upplýsingum um hversu margar konur hafa nýtt sér rétt til húsmæðraorlofs á hverju ári sl. 10 ár eða hvernig kostnaður hefur skipst milli húsmæðra eftir félagslegri stöðu, sbr. 2. mgr. 6. gr. laganna, á hverju ári sl. 10 ár.
    Kostnaður hvers sveitarfélags, sem svaraði fyrirspurn ráðuneytisins, vegna orlofs húsmæðra á verðlagi hvers árs sl. 10 ár var eftirfarandi:

Akureyri.
Ár Kostnaður
2012 1.706.849 kr.
2013 1.798.114 kr.
2014 1.856.067 kr.
2015 1.894.593 kr.
2016 1.946.481 kr.
2017 2.005.578 kr.
2018 2.083.666 kr.
2019 2.157.450 kr.
2020 2.225.545 kr.
2021 2.316.082 kr.
Ásahreppur.
Ár Kostnaður
2012 19.486 kr.
2013 19.127 kr.
2014 20.530 kr.
2015 21.247 kr.
2016 23.089 kr.
2017 23.649 kr.
2018 27.395 kr.
2019 28.024 kr.
2020 28.837 kr.
2021 32.658 kr.
Árborg.
Ár Kostnaður
2012 742.764 kr.
2013 783.696 kr.
2014 815.012 kr.
2015 830.076 kr.
2016 864.926 kr.
2017 890.187 kr.
2018 997.635 kr.
2019 1.071.805 kr.
2020 1.094.057 kr.
2021 1.259.571 kr.
Dalabyggð.
Ár Kostnaður
2012 65.770 kr.
2013 206.905 kr.
2014 206.905 kr.
2015 206.905 kr.
2016 71.420 kr.
2017 73.543 kr.
2018 0 kr.
2019 0 kr.
2020 0 kr.
2021 0 kr.
Dalvíkurbyggð.
Ár Kostnaður
2012 182.825 kr.
2013 186.160 kr.
2014 192.570 kr.
2015 193.823 kr.
2016 195.776 kr.
2017 198.627 kr.
2018 208.680 kr.
2019 217.170 kr.
2020 222.613 kr.
2021 223.547 kr.
Fjallabyggð.
Ár Kostnaður
2012 195.816 kr.
2013 201.581 kr.
2014 207.860 kr.
2015 212.451 kr.
2016 215.460 kr.
2017 220.540 kr.
2018 223.665 kr.
2019 228.798 kr.
2020 234.662 kr.
2021 237.405 kr.
Fjarðabyggð.
Ár Kostnaður
2012 462.747 kr.
2013 478.222 kr.
2014 494.400 kr.
2015 499.335 kr.
2016 508.833 kr.
2017 550.335 kr.
2018 0 kr.
2019 0 kr.
2020 0 kr.
2021 0 kr.
Fljótsdalur.
Ár Kostnaður
2012 Upplýsingar ekki tiltækar
2013 8.011 kr.
2014 8.265 kr.
2015 7.811 kr.
2016 7.874 kr.
2017 8.786 kr.
2018 8.429 kr.
2019 8.452 kr.
2020 8.452 kr.
2021 Upplýsingar ekki tiltækar
Garðabær.
Ár Kostnaður
2012 1.076.810 kr.
2013 1.389.442 kr.
2014 1.460.793 kr.
2015 1.477.147 kr.
2016 1.567.600 kr.
2017 1.654.170 kr.
2018 1.743.000 kr.
2019 1.861.700 kr.
2020 1.959.968 kr.
2021 2.132.183 kr.
Grýtubakkahreppur.
Ár Kostnaður
2012 33.527 kr.
2013 35.800 kr.
2014 36.778 kr.
2015 38.327 kr.
2016 37.772 kr.
2017 38.398 kr.
2018 42.376 kr.
2019 42.850 kr.
2020 44.709 kr.
2021 47.345 kr.
Hafnarfjörður.
Ár Kostnaður
2012 2.543.411 kr.
2013 2.707.185 kr.
2014 2.838.959 kr.
2015 2.911.096 kr.
2016 3.015.482 kr.
2017 3.134.783 kr.
2018 3.282.160 kr.
2019 3.413.921 kr.
2020 3.458.666 kr.
2021 3.567.096 kr.
Húnaþing vestra.
Ár Kostnaður
2012 Upplýsingar ekki tiltækar
2013 Upplýsingar ekki tiltækar
2014 121.183 kr.
2015 121.960 kr.
2016 123.424 kr.
2017 127.344 kr.
2018 131.983 kr.
2019 134.779 kr.
2020 140.130 kr.
2021 145.576 kr.
Hvalfjarðarsveit.
Ár Kostnaður
2012 58.556 kr.
2013 60.985 kr.
2014 62.301 kr.
2015 65.519 kr.
2016 64.943 kr.
2017 68.124 kr.
2018 70.912 kr.
2019 72.314 kr.
2020 72.160 kr.
2021 77.507 kr.
Kópavogur.
Ár Kostnaður
2012 2.765.506 kr.
2013 2.980.988 kr.
2014 3.177.422 kr.
2015 3.424.718 kr.
2016 3.912.012 kr.
2017 3.508.167 kr.
2018 3.989.655 kr.
2019 4.224.655 kr.
2020 4.449.912 kr.
2021 4.619.028 kr.
Mosfellsbær.
Ár Kostnaður
2012 842.977 kr.
2013 899.557 kr.
2014 911.516 kr.
2015 945.461 kr.
2016 1.007.900 kr.
2017 1.059.750 kr.
2018 1.171.188 kr.
2019 1.309.300 kr.
2020 1.398.174 kr.
2021 1.517.100 kr.
Norðurþing.
Ár Kostnaður
2012 213.678 kr.
2013 223.000 kr.
2014 239.059 kr.
2015 293.911 kr.
2016 300.580 kr.
2017 325.410 kr.
2018 358.683 kr.
2019 346.543 kr.
2020 360.053 kr.
2021 364.061 kr.
Reykjavíkurborg.
Ár Kostnaður
2012 11.346.507 kr.
2013 11.991.146 kr.
2014 12.398.165 kr.
2015 12.559.271 kr.
2016 12.908.312 kr.
2017 13.234.543 kr.
2018 13.843.959 kr.
2019 14.561.024 kr.
2020 15.187.501 kr.
2021 16.059.195 kr.
Rangárþing eystra.
Ár Kostnaður
2012 Upplýsingar ekki tiltækar
2013 Upplýsingar ekki tiltækar
2014 Upplýsingar ekki tiltækar
2015 Upplýsingar ekki tiltækar
2016 Upplýsingar ekki tiltækar
2017 192.443 kr.
2018 199.416 kr.
2019 217.412 kr.
2020 222.355 kr.
2021 231.861 kr.
Rangárþing ytra.
Ár Kostnaður
2012 143.662 kr.
2013 152.013 kr.
2014 160.440 kr.
2015 161.433 kr.
2016 163.537 kr.
2017 165.540 kr.
2018 178.565 kr.
2019 184.686 kr.
2020 188.770 kr.
2021 209.687 kr.
Reykjanesbær.
Ár Kostnaður
2012 1.352.481
2013 1.457.202
2014 1.513.287
2015 1.513.287
2016 1.626.090
2017 1.779.210
2018 1.975.465
2019 2.161.000
2020 2.249.146
2021 2.371.155
Skeiða- og Gnúpverjahreppur.
Ár Kostnaður
2012 48.524 kr.
2013 50.471 kr.
2014 54.754 kr.
2015 54.754 kr.
2016 55.222 kr.
2017 56.518 kr.
2018 76.528 kr.
2019 70.738 kr.
2020 74.003 kr.
2021 71.101 kr.
Snæfellsbær.
Ár Kostnaður
2012 154.867 kr.
2013 163.019 kr.
2014 173.664 kr.
2015 174.972 kr.
2016 176.943 kr.
2017 174.707 kr.
2018 180.165 kr.
2019 189.840 kr.
2020 194.213 kr.
2021 202.336 kr.
Strandabyggð.
Ár Kostnaður
2012 49.288 kr.
2013 51.873 kr.
2014 0 kr.
2015 0 kr.
2016 0 kr.
2017 0 kr.
2018 0 kr.
2019 0 kr.
2020 0 kr.
2021 0 kr.
Suðurnesjabær.
Ár Kostnaður
2012 Á ekki við
2013 Á ekki við
2014 Á ekki við
2015 Á ekki við
2016 Á ekki við
2017 Á ekki við
2018 Á ekki við
2019 397.400 kr.
2020 415.526 kr.
2021 439.741 kr.
Súðavík.
Ár Kostnaður
2012 Upplýsingar ekki tiltækar
2013 Upplýsingar ekki tiltækar
2014 Upplýsingar ekki tiltækar
2015 Upplýsingar ekki tiltækar
2016 Upplýsingar ekki tiltækar
2017 20.179 kr.
2018 0 kr.
2019 0 kr.
2020 0 kr.
2021 0 kr.
Vopnafjarðarhreppur.
Ár Kostnaður
2012 Upplýsingar ekki tiltækar
2013 Upplýsingar ekki tiltækar
2014 Upplýsingar ekki tiltækar
2015 Upplýsingar ekki tiltækar
2016 Upplýsingar ekki tiltækar
2017 69.963 kr.
2018 72.644 kr.
2019 75.385 kr.
2020 0 kr.
2021 0 kr.

Reykhólahreppur.
    Samkvæmt upplýsingum frá Reykhólahreppi hafa verið greiddar samtals um 300.000 kr. í orlofssjóð húsmæðra sl. 10 ár eða að jafnaði um 30.000 kr. á ári.

Skagabyggð.
    Samkvæmt upplýsingum frá Skagabyggð hafa verið greiddar samtals um 100.000 kr. í orlofssjóð húsmæðra sl. 10 ár eða að jafnaði um 10.000–11.000 kr. á ári.

Kjósarhreppur.
    Samkvæmt upplýsingum frá Kjósarhreppi hafa verið greiddar samtals 252.000 kr. í orlofssjóð húsmæðra sl. 10 ár eða að jafnaði um 25.000 kr. á ári.

Árneshreppur.
    Samkvæmt upplýsingum frá Árneshreppi hefur ekki verið greitt í orlofssjóð húsmæðra sl. 10 ár.

Skútustaðahreppur.
    Samkvæmt upplýsingum frá Skútustaðahreppi hefur ekki verið greitt í orlofssjóð húsmæðra sl. 10 ár.

Vesturbyggð.
    Samkvæmt upplýsingum frá Vesturbyggð hefur ekki verið greitt í orlofssjóð húsmæðra sl. 10 ár.

Flóahreppur.
    Samkvæmt upplýsingum frá Flóahreppi hefur sl. 10 ár verið greitt lögbundið framlag til orlofssjóðs húsmæðra í samræmi við íbúafjölda.

Tjörneshreppur.
    Samkvæmt upplýsingum frá Tjörneshreppi hefur sl. 10 ár verið greitt lögbundið framlag til orlofssjóðs húsmæðra í samræmi við íbúafjölda.

Skagafjörður.
    Samkvæmt upplýsingum frá Skagafirði hefur sl. 10 ár verið greitt lögbundið framlag til orlofssjóðs húsmæðra í samræmi við íbúafjölda.

Grímsnes- og Grafningshreppur.
    Samkvæmt upplýsingum frá Grímsnes- og Grafningshreppi liggja ekki fyrir upplýsingar um kostnað sem greiddur hefur verið í orlofssjóð húsmæðra sl. 10 ár.